HeimurTólf ára drengur handtekinn grunaður um morð Kona á sjötugsaldri fannst með alvarlega áverka í Sheffeld í Bretlandi í gær, hún lét lífið stuttu eftir að komið var að henni. Talið er að konan hafi orðið fyrir bíl en í dag var tólf ára drengur handtekinn, grunaður um morðið. Blóm lögð þar sem konan fannst. „Lögregla ásamt sjúkraliði kom að konu á sjötugsaldri með mikla áverka. Hún...
HeimurEiginmaður Nicolu Sturgeon handtekinn grunaður um að draga að sér fé Skoska þjóðarflokksins Eiginmaður Nicolu Sturgeon, fráfarandi forsætisráðherra Skotlands, hefur verið handtekinn vegna rannsóknar á fjármögnunar og fjármála Skoska þjóðarflokksins. Í frétt Mirror kemur fram að hinn 58 ára Peter Murrell sé í haldi lögreglu á meðan lögreglan rannsakar fjármögnunarfyrirkomulag Þjóðarflokksins. Hann er fyrrum framkvæmdarstjóri flokksins en lét af störfum í síðasta mánuði. Í tilkynningu sem lögreglan í Skotlandi sendi frá sér segir:...
HeimurNauðgaði 13 ára stúlku en fær ekki fangelsisdóm: „Ég held að fangelsi muni ekki hjálpa þér“ Maður sem dæmdur var fyrir að nauðga 13 ára gamalli stúlku í almenningsgarði, gengur nú frjáls ferða sinna vegna þess að dómarinn í máli hans segir hann of ungan fyrir fangelsisvist. Maðurinn var 17 ára er glæpurinn var framinn en er nú 21 árs. Sean Hogg var fundinn sekur um nauðgun á unglingsstúlkunni í Dalkeith Country garðinum í Midlothian í...
HeimurTwitter-fuglinn flýgur vegna 258 milljarða dollara lögsóknar Samkvæmt fréttaveitunni Reuters segir að eitthvað meira og stærra liggi að breytingum tákns samfélagsmiðlsins Twitter. Þá sé Elon Musk að reyna að sporna við 258 milljarða dollara lögsóknar sem snúi að honum vegna Dogecoin rafmyntarinnar. Er hann ásakaður um að standa að baki pýramídasvindls er varðar rafmyntina. Fyrir dómstólum kölluðu lögmenn Elon Musks og rafbílafyrirtækis Tesla Inc málsókn Dogecoin-fjárfesta „ímyndaðan...
HeimurNasa kynnir áhöfnina sem fer í fyrstu tunglferðina í 50 ár – Fjölbreytileikinn í fyrirrúmi Bandaríska geimvísindastofnunin, Nasa, hefur nú tilkynnt hvaða fjórir geimfarar verða þess heiðurs aðnjótandi að fara í tunglleiðangur, þann fyrsta í 50 ár. Samkvæmt BBC er Christina Koch fyrsti kvenkyns geimfarinn sem fer í tunglleiðangur og Victor Glover verður fyrsti svarti geimfarinn í slíkri ferð. Með þeim fara Reid Wiseman og Jeremy Hansen en hópurinn mun fljúga í kringum tunglið seint...
HeimurLét lífið í svefni eftir að læknar sögðu hana vera á breytingaskeiði: „Ég vil ekki hræða neinn“ Sarah Hawkes, 45 ára, lést í svefni á heimili sínu í Newcastle. Það var ekki fyrr en eftir að krufning var framkvæmd sem fjölskyldan fékk að vita að Sarah hafði verið með fjórða stigs krabbameinsæxli í heila. Hún hafði leitað til læknis vegna einkenna sinna, henni þá sagt að hún væri á breytingaskeiði. „Hún leitaði til læknis með slæmt mígreni,...
HeimurHandtóku eina konu og tvo karlmenn eftir að feðgar fundust látnir Þrír hafa verið handteknir eftir að feðgar voru skotnir til bana í tveimur þorpum í Bretlandi fyrr í vikunni. Lögreglan í Cambridgeshire fann lík 32 ára karlmanns í Meridian Close, Bluntisham, um klukkan á miðvikudagskvöld. Skömmu síðar fann lögregla lík 57 ára karlmanns í Sutton. Fórnarlömbin voru Gary Dunmore og sonur hans Josh Dunmore. Þá handtók lögregla 27 ára karlmann...
HeimurÁtakanlegt myndband frá skotárásinni í Nashville – Árásarmaðurinn skotinn til bana Sjö manns létust í skotárás í The Covenant School í Nashville í Bandaríkjunum á mánudaginn, þar af þrjú börn. Skotmaðurinn hafði áður verið nemandi skólans en samkvæmt heimildum lögreglu var hann vopnaður tveimur hríðskotabyssum auk skammbyssu. Átakanlegt myndband úr búkmyndavél lögreglu hefur nú farið sem eldur í sinu um internetið þar sem lögreglan sést ganga um skólann. Að lokum fara...
HeimurLögreglan í Nashville birtir myndskeið af skotmanninum – Skaut sig inn í skólann og hóf skothríð Audrey Elizabeth Hale er nafn þess sem skaut sex einstaklinga til bana í skóla Nashville í Bandaríkjunum í gær, þar af þrjú níu ára börn. Upptaka úr öryggismyndavélum skólans hefur nú verið birt opinberlega. Audrey, sem er 28 ára transmaður, var fyrrverandi nemandi við skólann sem er kristinn einkaskóli í Tennessee. Mætti hann í skólann vopnaður þremur byssum og skaut...
HeimurÁstrali datt heldur betur í lukkupottinn er hann fann stærðarinnar gullmola: „Konan verður ánægð“ Ástralskur maður, vopnaður ódýru málmleitartæki datt heldur betur í lukkupottinn á dögunum er hann fann stærðarinnar gullhnullung. Maðurinn, sem ekki vill vera nafngreindur, fann gullið á gullsvæðinu í Victoriu-fylki en þar var hjarta ástralska gullæðisins á nítjándu öld. Hnullungurinn vó heil 4,6 kíló en Darren Kamp, sá sem mat virði gullsins og keypti það af manninum, sagði að þetta væri...
HeimurTikTok-stjarna lést skyndilega aðeins þrítug að aldri: „Ég mun ekki gefast upp“ TikTok-stjarnan Jehane Thomas er látin, aðeins þrítug að aldri. Hin enska Jehane Thomas, sem sló í gegn á TikTok með myndbandsfærslum sem tveggja bara móðir, er látin, þrítug að aldri. Þeir deyja ungir sem guðirnir elska.Mynd: Trausti Hafsteinsson Nokkrum mánuðum fyrir andlátið byrjaði hún að skrásetja heilsuvanda sinn á samfélagsmiðlinum en hún þjáðist meðal annars af gríðarlegum mígrenisköstum. Góðvinur hennar...
HeimurLést á meðgöngu eftir baráttu við sjúklega morgunógleði Jessica Cronshaw var gengin 28 vikna meðgöngu þegar hún lést eftir hrottafulla baráttu við ógleði. Jessica var 26 ára og glímdi við það sem kallað er „hyperemesis gravidarum“ en eða sjúkleg morgunógleði. Um 75% kvenna finna fyrir ógleði á meðgöngu og fylgir hún oft fyrstu mánuðum. Ekki er fyllilega vitað hvað veldur þessu en oftast er ógleðin yfirstaðin á 16...