„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“ Svavar Knútur Kristinsson
InnlentRannsakað sem tilraun til manndráps – Maður inni í bíl sem skotið var á Skotárásin við Miðvang í Hafnarfirði í morgun verður rannsökuð sem tilraun til manndráps. Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur staðfest þetta við fréttastofu RÚV. Málið er rannsakað af miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar. Upphaflega var fjallað um að skotmaðurinn hefði skotið á einn kyrrstæðan bíl á bílastæði við Miðvang. Hins vegar hefur komið í ljós að hann skaut á tvo...
InnlentÚtför Árna Gils fer fram á morgun Útför Árna Gils Hjaltasonar fer fram í Grafarvogskirkju á morgun, fimmtudaginn 23. júní en einnig verður hægt að horfa á hana á YouTube. Árni Gils lést um daginn, aðeins 29 ára að aldri. Faðir hans, Hjalti „Úrsus“ Árnason hafði í nokkur ár gert allt sem í hans valdi stóð til að hreinsa nafn Árna Gils sem var dæmdur í fangelsi...
InnlentNýja Skerjafirði frestað Á borgarstjórnarfundi 21. júní 2022 kom fram að umræðu og atkvæðagreiðslu á úthlutun lóðar að Einarsnesi 130 væri frestað. Lóðin, Einarsnes 130, er staðsett innan flugvallafirðingarinnar og er byggingaréttur hennar um 140 íbúðir. 17. júní síðastliðinn voru ný ákvæði laga um loftferðir samþykkt á Alþingi. Urðu þar með skipulagsreglur flugvalla rétthærri en deiluskipulag sveitarfélaga. Reykjavíkurborg lagðist gegn lagabreytingunni og vildi...
InnlentSkotmaðurinn kominn út úr húsinu og hefur verið handtekinn Einstaklingurinn sem grunaður er um að hafa skotið á kyrrstæðan bíl úr fjölbýlishúsi er nú kominn út úr húsinu og hefur verið handtekinn. RÚV greinir frá þessu. Um er að ræða fjölbýlishús í Miðvangi í Hafnarfirði. Sérsveitin fór inn í húsið í morgun og var mikill viðbúnaður á svæðinu. Leikskóla í nálægð við húsið var lokað og foreldrum barst tilkynning...
InnlentIngó veðurguð áfrýjar til Landsréttar: „Við teljum dóminn bersýnilega rangan“ Ingólfur Þórarinsson eða Ingó veðurguð eins og hann er jafnan kallaður, hefur ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll 30. maí síðastliðinn. Ingólfur stefndi Sindra Þór Sigríðarsyni fyrir meiðyrði en Héraðsdómur sýknaði hann. Staðfesti Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður Ingólfs, þetta við fréttastofu Vísis. Segir hún áfrýjunarstefnu verða senda Landsrétti í dag. Í málinu krafðist Ingólfur þess að fimm ummæli...
InnlentGuðný María greindist með ólæknandi krabbamein: „Ætla að keppa í Eurovision þegar ég verð 120 ára“ Guðný María Arnþórsdóttir söngkona, aukaleikari og gleðigjafi hefur greinst með ólæknandi beinmergs-krabbamein. Segist hún þó ætla að verða að minnsta kosti 120 ára gömul. Flestir kannast við hina hressu og skemmtilegu Guðný Maríu sem glatt hefur landann með lögum og myndböndum við þau á YouTube þar sem hún syngum með sínu nefi um eitt og annað, sumarið, Akureyri, páskahátíðina og...
InnlentUm 200 töskur skiluðu sér ekki hjá Icelandair í Amsterdam – Slæmt ástand á flugvellinum Mikið magn farangs farþega sem flugu með vél Icelandair í fyrradag týndist. Farþegarnir voru á leið frá Reykjavík til Amsterdam í Hollandi. Eftir um einn og hálfan tíma var farþegum greint frá að allar töskur væru komnar á töskubandið en þó var fjöldi fólks sem fékk farangurinn sinn ekki afhentan. Mbl.is greinir frá. Um 200 töskur skiluðu sér ekki eftir...
InnlentSeðlabankinn hækkar stýrivexti – Afborganir lána halda áfram að hækka Nú í morgun gaf Peningastefnunefnd frá sér yfirlýsingu þess efnis að vextir bankans verði hækkaðir um 1 prósentu. Verða meginvextir bankans á sjö daga innlánum því 4,75%. Fram kemur að hagvöxtur hafi mælst meiri á fyrsta ársfjórðungi en gert var ráð fyrir í maíspá Peningamála. Vísbendingar um þrótt innlendra umsvifa og hlutfall fyrirtækja sem vantar starfsfólk hefur ekki mælist hærra...
InnlentSkotárás í Hafnarfirði – Sérsveitarmenn komnir inn í húsið og leikskóla í hverfinu lokað Mikill viðbúnaður lögreglu er nú í Miðvangi í Hafnarfirði eftir að skotið var á bíl í hverfinu. Sérsveit lögreglunnar er meðal annars á vettvangi og hefur leikskólanum Víðivöllum verið lokað. Öllum leiðum til og frá leikskólanum hefur verið lokað og foreldrum borist tilkynning um að börnin séu örugg inn í skólanum. Sérsveitarmönnum fjölgaði töluvert á svæðinu upp úr klukkan átta...
InnlentSöfnun: Alexandra Eldey lést úr bráðri heilahimnubólgu aðeins 20 mánaða gömul Fjölskylda og vinir Birgittu Jeanne Sigursteinsdóttur og Finnboga Darra Guðmundssonar hafa hafið söfnun eftir að 20 mánaða dóttir þeirra, Alexandra Eldey, lést úr bráðri heilahimnubólgu þann 18.júní síðastliðinn. Fréttablaðið fjallaði um söfnunina í morgun og ræddi við systir Birgittu, hana Eddu Sveinsdóttur, sem sagði ótal marga hafa haft samband til þess að leggja þeim lið. Veikindi Alexöndru gerðu fyrst vart...
InnlentUmferðarslys í Kópavogi – Tveir drengir á rafskútu óku á bíl Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna umferðarslyss í Kópavogi í gærkvöldi. Þar hafði ökumaður keyrt yfir gangbraut án þess að verða var við tvo drengi sem komu akandi á rafskútum. Báðir drengirnir óku á hlið bifreiðarinnar með þeim afleiðingum að þeir duttu af hjólunum. Sem betur fer sluppu drengirnir án meiðsla og var forráðamönnum þeirra gert viðvart. Seinna um...
InnlentSpenntir að hefja hvalveiðar í dag – „150 – 160 hvalir en svo fer þetta eftir veðri“ Stefnt er að því að hefja hvalveiðar á ný í dag en síðastliðin fjögur ár hafa engir hvalir verið veiddir. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær, var rætt við hluta áhafnar hvalbátanna Hvals 8 og Hvals 9, sem voru að undirbúa brottför fyrir daginn í dag. Guðmundur Þorlákur Guðmundsson, háseti á Hval 8, sagðist hlakka til þar sem nú væri...