Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Skotmaðurinn kominn út úr húsinu og hefur verið handtekinn

Sérsveit ríkislögreglustjóra. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd / Stundin.
Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd / Stundin.

Einstaklingurinn sem grunaður er um að hafa skotið á kyrr­stæðan bíl úr fjölbýlis­húsi er nú kominn út úr húsinu og hefur verið hand­tekinn. RÚV greinir frá þessu.

Um er að ræða fjölbýlishús í Miðvangi í Hafnar­firði. Sérsveitin fór inn í húsið í morgun og var mikill viðbúnaður á svæðinu. Leikskóla í nálægð við húsið var lokað og foreldrum barst tilkynning um að börn þeirra væru örugg inni í skólanum.

Hjá RÚV kemur fram að skot­maðurinn hafi komið út úr húsinu um tuttugu mínútur yfir tólf. Hann var þá hand­tekinn og færður niður á lögreglustöð. Í hádegis­fréttum RÚV kom fram að formleg rannsókn málsins gæti nú hafist og að hvað úr hverju yrði dregið úr lokunum á vettvangi, en leiðir til og frá leik­skólanum voru til að mynda lokaðar.

Það var eigandi bílsins sem skotið var á á bílastæði sem tilkynnti um málið í morgun. Á þriðja tug lögreglu­manna kom að aðgerðunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá