InnlentBjörn er látinn Björn Jónasson bókaútgefandi er látinn, sjötugur að aldri. Björn var afkastamikill útgefandi. Hann var ritstjóri Stúdentablaðs Háskóla Íslands og kom að starfsemi Gallerís Svart á hvítu í Suðurgötu 7 í Reykjavík. Hann stofnaði útgáfuna Svart á hvítu sem gaf út Íslendingasögurnar með nútímastafsetningu, Sturlungasögu og heildarverk Jónasar Hallgrímssonar. Svart á hvítu var jafnframt útgefandi fjölda þýddra sem og íslenskra skáldverka....
InnlentViðskiptavinur með stolið kort lét sig hverfa – Dópaður ökumaður, próflaus og ekki í öryggisbelti Á svæði Hafnarfjarðarlögreglu reyndi þjófur nokkur að greiða í verslun með stolni korti. Afgreiðslufólk sá í gegnum áform mannsins og kallaði til lögreglu. Þá lét kortaþjófurinn sig snarlega hverfa og hefur ekkert spurst af honum síðar. Lögreglu barst tilkynning um rúðubrot. Múrsteini hafði verið kastað í gegnum glugga. Óljóst er um lyktir þess máls. Íbúar í Vesturbæ Reykjavíkur sáu til...
InnlentTveir lögreglumenn kýldir í andlitið á Ljósanótt Tveir gistu fangageymslu vegna ölvunar á almannafæri á Ljósanótt í Reykjanesbæ en annar þeirra kýldi tvo lögreglumenn í andlitið. Á stærsta kvöldi Ljósanætur í Reykjanesbæ í gær var mannfjöldinn mikill en samkvæmt tilkynningu lögreglu var löggæsla sýnileg við hátíðarsvæðið. Ein tilkynning barst um líkamsárás á einum af skemmtistöðum Reykjanesbæjar en enginn var handtekinn að sögn lögreglunnar. Telur hún sig þó...
InnlentBrynjar neitar að hafa snúið baki við Bjarna Ben: „Enginn með tærnar þar sem hann hefur hælana“ Brynjar Níelsson segist ekki hafa snúið baki við Bjarna Benediktsson, eins og fullyrt var í Orðrómi frá ritstjóra Mannlífs sem birtist í gær. Sjá einnig: Brynjar snýr baki við Bjarna Fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Brynjar Níelsson byrjaði Facebook-færslu sem hann birti í gær, á að eiginkona hans, Arnfríður taki undir Kolbrúnu Bergþórsdóttur sem talar um vælulega Sjálfstæðismenn. Hefst færslan með eftirfarandi...
InnlentRéðst á ferðamann í miðborginni og rændi hann – Var til vandræða við lögreglustöðina við Hlemm Aðili var til vandræða við lögreglustöðina við Hverfisgötu en ítrekað hafði verið reynt að fá manninn til að yfirgefa svæðið en án árangurs. Var hann því handtekinn og vistaður í fangaklefa. Fyrir utan hótel í miðbænum var ráðist á erlendan ferðamann og hann rændur. Ræninginn var handtekinn stuttu síðar en hann viðurkenndi verknaðinn og vísaði á verðmætin sem hann hafði...
InnlentBjörgunarsveitir sóttu slasaðan smala í Borgarbyggð Björgunarsveitir í Borgarfirði voru kallaðar út í dag vegna smala sem hrasað hafði við smalamennsku í Skorradal en hann slasaðist lítillega á fæti. Samkvæmt frétt RÚV um málið er landið sem smalinn var að smala á, afar erfitt yfirferðar. Víða í sveitum Borgarbyggðar hefur smölun á fé staðið yfir í dag en björgunarsveitir voru kallaðar út rétt fyrir klukkan 13:00...
InnlentSéra Bjarni Karlsson flutti minningarorð um Þorvald Halldórsson: „Hvar sem hann kom fylgdi sómi“ Þorvaldur Halldórsson, söngvari var jarðsettur í dag en jarðarförin fór fram í Hallgrímskirkju. Séra Bjarni Karlsson flutti minningarorð um Þorvald Halldórsson en jarðarför hans fór fram í dag í Hallgrímskirkju. Hægt er að lesa minningarorðin í heild sinni hér fyrir neðan: Vinur okkar allra, Þorvaldur Halldórsson, var kvaddur hinstu kveðju frá Hallgrímskirkju í dag að viðstöddu fjölmenni. Hér eru minningarorðin...
InnlentLögreglan lýsir eftir hinni 16 ára Sigríði Eyrúnu Heiðarsdóttur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sigríði Eyrúnu Heiðarsdóttur, 16 ára. Talið er að hún sé klædd dökkbláar gallabuxur, svörtum hlýrabol og bleikum crocs skóm. Sigríður, sem er grannvaxin og 165 sm á hæð, er með brúngræn augu og millisítt, dökkt hár. Síðast er vitað um ferðir hennar í Reykjavík seint á miðvikudagskvöld. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Sigríðar...
InnlentDrífa rífur auglýsingaherferð Play í sig: „Afmennskun kvenna ógnar öryggi þeirra“ Drífa Snædal rífur flugfélagið Play í sig í nýrri Facebook-færslu. Talskona Stígamóta, Drífa Snædal er síður en svo ánægð með nýja auglýsingaherferð Play en herferðin hefur verið harðlega gagnrýnd því hún þykir ósmekkleg með öllu. „Í framtíðinni verður auglýsingaherferð Play væntanlega notuð sem dæmi um hlutgervingu kvenna eins og svo margar slíkar herferðir á árum áður. Konur smættaðar niður í...
InnlentForsetinn vill að Íslendingar verði riddarar kærleikans: „Við erum öll harmi slegin“ Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir vill að kærleikurinn verði eina vopnið í samfélaginu og segir alla Íslendinga harmi slegna vegna andlát Bryndísar Klöru Birgisdóttur sem stungin var til bana á Menningarnótt. „Kæru vinir, Við erum öll harmi slegin vegna skelfilega sorglegra atburða sem átt hafa sér stað í okkar samfélagi og eru óbærilegir og ólíðandi. Við verðum að ráðast að rótum...
InnlentPlay sakað um siðleysi Flugfélagið Play er sakað um siðleysi og kvenfyrirlitningu í nýrri auglýsingaherferð þar sem stór konubrjóst og stinnur karlmannskroppur koma við sögu. Gagnrýni á flugfélagið er harkaleg og kemur úr ýmsum áttum. Eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush segist vera orðlaus yfir auglýsingum flugfélagsins. „Langar svo mikið að halda með þeim. En er orðlaus,“ segir Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi Blush, í umræðu um auglýsingarnar...
InnlentTrylltur skemmdarvargur með höggvopn á hóteli í Reykjavík – Byssumaður með fíkniefni handjárnaður Lögregla var kölluð til vegna manns sem hafði valdið eignaspjöllum á hóteli í miðbæ Reykjavíkur. Við komu lögreglu á vettvang var töluverður hópur í kringum skemmdarvarginn sem brást illa við afskiptum lögreglu og var æstur og streittist á móti handtöku. Við öryggisleit á aðilanum fannst höggvopn og nokkuð af fíkniefnum. Maðurinn var læstur inni í fangaklefa og vistaður í þágu...