InnlentAðili veittist að öðrum með hníf í sundlaug – Annar reyndi að stofna til slagsmála á skemmtistað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt, samkvæmt dagbók hennar. Lögreglustöðin sem sinnir Austurbæ, Miðbænum, Vesturbænum og Seltjarnarnesi, fékk ansi fjölbreyttar tilkynningar í gær en sem dæmi má nefna var tilkynnt um þjófnað í verslun í háaleitis og bústaðahverfinu en málið var afgreitt með vettvangsskýrslu á staðnum, innbrot í heimahúsi í hverfi 103 og...
InnlentGlúmur tekur upp hanskann fyrir pabba sinn: „Mikið er þögn RÚV pínleg en miklu fremur aumleg“ Glúmur Baldvinsson lætur fjölmiðla heyra það um leið og hann tekur upp hanskann fyrir föður sinn. Alþjóðastjórmálafræðingurinn Glúmur Baldvinsson tók upp hanskann fyrir föður sinn, Jón Baldvin Hannibalsson, sem 21. febrúar var boðið að ávarpa þingið í Eistlandi en Glúmur er afar óánægður með skort á fréttaflutningi vegna þess heiðurs sem föður honum var sýndur. Skýtur hann fastast á Ríkisútvarpið...
InnlentÞorvaldur nýr formaður KSÍ Þorvaldur Örlygsson hefur verið kjörinn formaður Knattspyrnusambands Íslands, með 51,72 prósent atkvæðum. Kosið var til formanns á ársþingi KSÍ, sem enn stendur yfir. Samkvæmt frétt RÚV um málið er Þorvaldur Örlygsson hinn nýji formaður sambandsins en vitað var fyrir ársþingið að nýr formaður yrði kosinn því Vanda Sigurgeirsdóttir hafðu áður lýst því yfir að hún gæfi ekki kost á sér...
InnlentMál Alberts fellt niður – Þótti ekki líklegt til sakfellingar Mál gegn Alberti Guðmundssyni var fellt niður á fimmtudaginn af Héraðssaksóknara. Ástæðan var sú að ekki þótti málið líklegt til sakfellingar. Albert, sem er leikmaður knattspyrnuliðsins Genóa á Ítalíu og íslenska landsliðsins, var í fyrrasumar kærður fyrir kynferðisbrot en hann hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu. Verjandi hans, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, staðfesti niðurfellinguna við fréttastofu RÚV. Þá staðfeseti Kolbrún...
InnlentÁskorun djákna og presta vegna fjöldamorðsins á Gaza: „Vopnahlé er eina leiðin“ Hópur djákna og presta á Íslandi senda frá sér áskorun vegna fjöldamorðsins á Gaza. Djáknar og prestar sendu fjölmiðlum í gær áskorun sína vegna fjöldamorðsins á Gaza, sem nú á sér stað frammi fyrir augunum á heiminum. Í áskoruninni fordæmir hópurinn fjöldamorð Ísraelsríkis á saklausum borgurum á Gaza. Skora þau á stjórnvöld á Íslandi að fordæma einnig árásir Ísraels á...
InnlentSegir hælisleitendur blóraböggla „stjórnmálaelítunnar“:„Kannski erum við komin inn í öld hatursins“ Gunnar Smári Egilsson segir „stjórnmálaelítuna“ hafa „fundið sér blóraböggla til að fela eigin vanrækslu og fyrirhyggjuleysi, réttlætingu fyrir niðurdrep allra innviða.“ Sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson skrifaði Facebook-færslu í gær þar sem hann bendir á tölulegar staðreyndi í hælisleitendamálum á Íslandi og gagnrýnir í kjölfarið málflutning stjórnmálamanna. „Frá september 2022 til janúar 2023 sóttu 2.422 um hæli á Íslandi. Frá september...
InnlentKalli í Pelsinum er látinn Karl J. Steingrímsson, oft kallaður Kalli í Pelsinum, athafnamaður, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 22. febrúar. Karl var 76 ára. Karl fæddist í Reykjavík 19. mars árið 1947 og ólst upp í Vesturbænum. Karl var sonur þeirra Steingríms Kingenberg Guðmundssonar og Þórunnar Sigurðardóttur. Stundaði hann nám í Miðbæjarskólanum, Laugarnesskóla og seinna í Verzlunarskóla Íslands. Þá lék Karl knattspyrnu með...
InnlentTilkynnt um mann vopnaðan ryksugu – Grunsamlegar mannaferðir í bakgarði Alþingis Alls gistu átta aðilar fangageymslur lögreglu eftir nóttina, eftir því sem kemur fram í dagbók hennar. Tilkynning barst lögreglu vegna „æstrar“ konu utan við skemmtistað í miðborginni en henni var vísað á brott og hélt hún sína leið. Einnig barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir í bakgarði Alþingis en ekki kemur fram í dagbók lögreglu, hvort einhver hafi verið þar er...
InnlentFjölskylduharmleikurinn á nýárskvöld 1931 – Aðeins ungabarnið lifði slysið af Hjónin Methúsalem Ólason og Kristrún Ólason höfðu átt góða stund með börnum sínum fjórum og vinahjónum og tveimur börnum þeirra, á nýársdag árið 1931 en þau höfðu farið saman í miðdegisverðarboð, nærri Chicago. Heimleiðin endaði hins vegar með slíkum hryllingi að aðeins ein manneskja hélt lífi úr þessum tveimur fjölskyldum. Methúsalem Ólason Þau Methúsalem og Kristrún voru af annarri kynslóð...
53:17InnlentSjóarinnKristján um slaginn við lífeyrissjóðina:„Pirringur að standa í þessu helvítis þrasi við svona fólk“ Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, er gestur Reynis Traustasonar í persónulegu viðtali í þættinum Sjóarinn. Reynir spurði Kristján út í slaginn sem var innan stjórnar Granda áður en hann seldi sinn hlut í fyrirtækinu, og þátt lífeyrissjóðanna í þeim slag. „Lífeyrissjóðirnir fóru eiginlega gegn gegn þér,“ fullyrti Reynir og Kristján svaraði: „Já, þeir, sérstaklega Gildi. Í eitt skipti lögðu þeir mikla...
InnlentVíða byggt á sprungum á höfuðborgarsvæðinu – Ný hverfi á sprungusvæðum Í Grindavík er nú unnið hörðum höndum að því að kortleggja og ná utan um stærð og umfang sprungna á svæðinu. Jarðhræringar á Reykjanesi og staðan í Grindavík hafa fengið marga íbúa höfuðborgarsvæðins til að velta fyrir sér hvort viðlíka hamfarir geti raungerst innan borgarmarkanna. Í nóvember 2018 birtist greinin, Bergsprungur og byggingar á höfuðborgarsvæðinu, í Verktækni – Tímariti Verkfræðingafélags...
InnlentViltu að Spaugstofan snúi aftur? Frétt um hugsanlega endurkomu Spaugstofunnar vakti gríðarleg viðbrögð meðal lesenda Mannlífs. Var hún skrifuð í kjölfar færslu Karl Ágústar Úlfssonar sem lék sér að því að stríða fylgjendum sínum með því að birta mynd af genginu og spyrja: „Hvað er nú í gangi?“ Í samtali við blaðamann Mannlífs sagði Karl: „Við höfum að vísu af og til nefnt það hvort...