Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Segir hælisleitendur blóraböggla „stjórnmálaelítunnar“:„Kannski erum við komin inn í öld hatursins“

Bjarni, Katrín og Sigurður Ingi á góðri stund.
Bjarni, Katrín og Sigurður Ingi á góðri stund.

Gunnar Smári Egilsson segir „stjórn­mála­el­ít­una“ hafa „fundið sér blóra­böggla til að fela eigin van­rækslu og fyr­ir­hyggju­leysi, rétt­læt­ingu fyrir nið­ur­drep allra inn­viða.“

Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson skrif­aði Facebook-færslu í gær þar sem hann bendir á tölu­legar stað­reyndi í hæl­is­leit­enda­málum á Íslandi og gagn­rýnir í kjöl­farið mál­flutn­ing stjórn­mála­manna. „Frá sept­em­ber 2022 til jan­úar 2023 sóttu 2.422 um hæli á Íslandi. Frá sept­em­ber 2023 til jan­úar 2024 sóttu 1.368 um hæli. Þetta er fækkun um 1.054 eða um 44%. Samt þurfum við dag eftir dag að hlusta á stjórn­mála­fólk belgja sig út um stjórn­leysi á landa­mærum, að ekk­ert verði við neitt ráðið og að grípa þurfi til aðgerða strax. Og helst þurfi að þrengja að þeim sem hingað koma á eigin vegum upp á von og óvön.“

Gunnar Smári bendir einnig á að í raun hefur orðið fækkun á komu fólks utan Úkraínu og Venes­ú­ela upp á 39 pró­sent. „Og helst þurfi að þrengja að þeim sem hingað koma á eigin vegum upp á von og óvön. Á fimm mán­aða tíma­bili frá sept­em­ber 2022 til jan­úar 2023 komu 573 frá öðrum löndum en Úkraínu eða Venes­ú­ela. Á fimm mán­aða tíma­bili frá sept­em­ber 2023 til jan­úar 2024 komu 347 frá öðrum löndum en Úkraínu eða Venes­ú­ela. Þetta er fækkun um 226 eða um 39%. Fyrir utan til­boð stjórn­valda til íbúa Úkraínu og Venes­ú­ela varð hér engin aukn­ing hæl­is­leit­enda sem ekki mátti skýra með smá kúf sem fylgdi eftir cóvid. Allt tal stjórn­mála­fólks­ins um að sér­reglur á Íslandi dragi fólk hingað í meira mæli en til ann­arra landa er þvæla. Fyrir utan að fjöldi hæl­is­leit­enda sem hingað koma á eigin vegum skýra á engan hátt auk­inn kostnað við hæl­is­leit­enda­kerfið og enn síður veika stöðu inn­viða og grunn­kerfa sam­fé­lags­ins.“

Sós­í­alista­for­ing­inn segir að „stjórn­mála­el­ítan“ hafi þarna fundið sér blóra­böggla. „Stjórn­mála­el­ítan hefur fundið sér blóra­böggla til að fela eigin van­rækslu og
fyr­ir­hyggju­leysi, rétt­læt­ingu fyrir nið­ur­drep allra inn­viða. Og hún valdi bjarg­ar­laust fólk, fólk sem ekk­ert á nema fötin sem það stendur í. Þetta er skammar­leg­asta fram­ganga yfir­valda á minni ævi. Ég hef ekki orðið vitni að öðru eins um mína daga.“

Illugi Jök­uls­son rit­höf­undur og fjöl­miðla­maður, deildi færslu Gunnars Smára á Facebook og skrif­aði eft­ir­far­andi við færsl­una: „Lesið. Þetta er því miður rétt. Eltist ekki við óhæf­una Sam­fylk­ing­ar­menn.“

Þessu svarar Gunnar Smári:

„Of seint. Sam­fylk­ingin er komin á vagn­inn. Skoðaðu bara Facebook. Maður sá afleið­ingar þess þegar Bjarni Ben skvetti olíu á eld­inn. En bálið gaus svo enn frekar upp þegar Kristrún hellti úr sínum fötum. Ég hef aldrei séð aðra eins sveiflu í ummælum eins og síð­ustu daga. Það er eins og sam­fé­lagi logi stafn­ana á milli af ras­isma og Islamó­fó­bíu. Kannski er þetta var­an­leg eyði­legg­ing, kannski erum við komin inn í öld hat­urs­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

6
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum