InnlentLyklaskipti hjá Landhelgisgæslunni Jón Árni Árnason er nýr aðalvarðstjóri hjá Landhelgisgæslu Íslands. Jón Árni tók við starfinu af Björgólfi Ingasyni um mánaðarmótin síðustu. Jón starfaði á varðskipum Landhelgisgæslunnar frá árinu 1996 til 2012 þegar hann færði sig í stjórnstöð hennar. Björgólfur færir sig til í starfi innan Gæslunnar og mun starfa innan siglingaöryggis- og sjómælingadeild hennar, en er tímabundið í sérverkefnum á aðgerðasviði....
InnlentSigurður Hjartarson er látinn Sigurður Hjartarson lést 2. febrúar síðastliðinn á líknardeild Landakotsspítala, 82ja ára að aldri. Sigurður var þjóðinni kunnur sem stofnandi Hins íslenzka reðasafns. Sigurður starfaði lengst af sem framhaldsskólakennari og var hann óhræddur við að fara líflegar og ótroðnar slóðir í kennsluháttum sínum. Svo mikið er víst að Sigurður snerti líf margra sem minnast hans með hlýhug og kærleika. Lilja Svanbjörg...
InnlentBoða mótmæli á Austurvelli klukkan 15: „Þetta er ekki flókið. Börnin heim!“ Félagið Ísland – Palestína boða mótmæli fyrir utan Alþingi í dag en þar verður þess krafist að börn sem föst eru á Gaza en eru með dvalarleyfi á Íslandi, sé komið til landsins. Systkinin sem föst eru á Gaza.Mynd: Instagram-skjáskot Klukkan 15 í dag hyggst félagið Ísland – Palestína mótmæla á Austurvelli og krefjast þess að um 60 börnum, sem...
InnlentArion lækkar vexti Arion banki lækkaði óverðtryggða fasta þriggja ára íbúðalánavexti en þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Vextirnir voru lækkaðir um 0,15% og eru þeir því orðnir 9,45% en aðrir útlánavextir haldast óbreyttir. Auk þess hækka verðtryggðir vextir framtíðarreikninga um 0,6% og verðtryggðir vextir orlofsreikninga um 0,15%. Þá kemur fram að vaxtabreytinar útlána taki meðal annars mið af fjármögnunarkostnaði og útlánaáhættu...
InnlentGrindvíkingar sneru aftur í gær Rúmlega 1.200 manns fóru til Grindavíkur í gær en þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Flestir þeirra sem fóru eru sagðir vera íbúar en einnig voru viðbragðsaðilar sem fóru inn í bæinn. Vel gekk að koma íbúum inn í bæinn frá Nesvegi og Strandvegi og hafa viðbragðsaðilar yfirsýn yfir hversu margir dvelji í bænum. Í tilkynningunni segir einnig að...
InnlentHagaskóli mun ekki reyna stoppa verkfall nemenda: „Berjast fyrir frjálsri Palestínu“ Nemendur Hagaskóla hafa boðað til verkfalls. Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla, segir í viðtali við mbl.is óljóst hversu margir nemendur skólans muni taka þátt í verkfalli sem boðað hefur verið til á þriðjudaginn. Stendur til að nemendur gangi út úr kennslustofum klukkan 10:30 og mótmæli við Austurvöll klukkan 11:00 en verkfallið er til stuðnings Palestínu. Þá segir Ómar að skólinn...
InnlentBílvelta á Sæbraut Betur fór en á horfðist þegar bílslys átti sér stað á gatnamótum Sæbrautar og Holtavegar fyrr í dag. Tveir bílar skullu saman og endaði annar bílinn á hvolfi. Að sögn vitna var mikill viðbúnaður á svæðinu og leit slysið alvarlega út en ekki þurfti að flytja neinn á slysadeild. Vitni á staðnum segja að ljóst sé að bíllinn sem lenti...
InnlentBjarki Már gjörbreyttur: „Stelpupabbi“ Handknattleiksmaðurinn Bjarki Már Elísson breytir um stíl. Landsliðsstjarnan Bjarki Már Elísson hefur um nokkurt skeið verið einn af besti handboltamönnum heimsins en þrátt fyrir það náði hann sér ekki á strik þegar íslenska handboltalandsliðið keppti á Evrópumótinu í Þýskalandi í janúar. Bjarki þarf þó ekki að hafa miklar áhyggjur en stórmót í handbolta eru nánast á hverju ári og hefur...
InnlentSegir Vinstri græna vera í afneitun: „Þetta er rosalega þreytt“ Björn Leví Gunnarsson segir Vinstri græna vera í afneitun. Þingmaður Pírata, Björn Leví Gunnarsson segir í Facebook-færslu að afsökun Vintri grænna fyrir lélegri niðurstöðu flokksins í skoðanakönnunum, vera orðna þreytta. Vitnar hann svo í Orra Pál Jóhannsson, þingflokksformann Vinstri grænna, sem var viðtali við fréttastofu Stöðvar 2. „“Þingflokksformaður VG telur ekki að forysta flokksins eigi þar í hlut heldur sé...
InnlentÞúsund Grindvíkingir halda heim að sækja eigur sínar Almannavarnir leyfa Grindvíkingum að sækja eignir. Um það bil þúsund Grindvíkingar fá í dag að sækja eignir og búslóð inn á svæði sem hingað til hefur verið lokað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum sem var send út í kringum miðnætti. „Á morgun, sunnudaginn 4. febrúar fara yfir 1000 manns inn til Grindavíkur að vitja eigna sinna og/eða aðstoða...
InnlentVímaður og fastur í snjóskafli á ótryggðum bíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði 64 mál í nótt. Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og þurfti ýmsum verkum að sinna. Um klukkan fjögur í nótt barst tilkynning um meðvitundarlausan mann á götunni í miðborg Reykjavíkur. Þegar lögreglan mætti á svæðið mat hún stöðuna svo að um ölvun væri að ræða og gistir einstaklingurinn fangageymslu þar til ástand...
InnlentMislingamaður reyndist vera erlendur ferðamaður: „Óbólusettir eru í hættu“ Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir hefur áhyggjur. Í gær fjölluðu fjölmiðlar um að komið hafi upp mislingatilfelli í manni sem hafði ferðast erlendis frá. Guðrún Aspelund hefur staðfest í samtali við mbl.is að um erlendan ferðmann sé að ræða. Hún sagðist þó ekki geta staðfest hvort maðurinn væri bólusettur eða ekki en sé fólk ekki bólusett gegn mislingum getur það orðið mjög...