InnlentSanna: „Engin velferðarborg sættir sig við þá staðreynd að fjöldi barna fari svöng að sofa“ Sanna Magdalena Mörtudóttir segir að ekki sé hugað að öllum íbúum Reykjavíkurborgar, hinir fátæku sitji á hakanum. Borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir, skrifaði færslu á Facebook þar sem hún fór yfir fund borgarstjórnar Reykjavíkur um fátækt og ójöfnuð sem haldinn var á dögunum en þar barst talið að fátækt barna. „Ég hélt að umræðan um slíkt yrði auðveldari með tímanum...
InnlentTóku bangsa með í þyrluferð Landhelgisgæslunnar: „Lóa aðstoðaði við eftirlit um landið og miðin“ Landhelgisgæslan birti krúttfærslu ársins á heimasíðu sinni í gær. Á heimasíðu Landhelgisgæslunnar má oft sjá fréttir af afrekum Gæslunnar eða viðburðum sem hún tekur þátt í en í gær birtist öðruvísi færsla og verður að viðurkennast að hún er í krúttlegri kantinum. Sex ára dóttir eins þyrluflugstjóra Gæslunnar stóð frammi fyrir erfiðu vali í gær, samkvæmt færslunni. Þannig var mál...
InnlentGrindvíkingar safna pening fyrir börn Lúðvíks: „Margt smátt gerir eitt stórt“ Grindvíkingar hafa hafið söfnun fyrir börn Lúðvíks Péturssonar, sem saknað hefur verið frá 10. janúar eftir að hann féll í sprungu í Grindavík. Björn Birgisson samfélagsrýnir frá Grindavík gerði Facebook-færslu þar sem hann birtir texta frá söfnun sem Grindvíkingar standa fyrir, handa börnum Lúðvíks Péturssonar, sem féll ofan í sprungu í Grindavík þann 10. janúar en hann hefur ekki fundist...
InnlentSegir „brosgrettur“ Katrínar Jakobsdóttur „birtingarform lágkúru illskunnar“ Kristinn Hrafnsson líkir vestrænum ríkisstjórnum við Adolf Eichmann, háttsetts foringja SS-sveitar Nasista, sem sagðist bara hafa hlýtt skipunum í seinni heimstyrjöldinni. Alþjóðadómstóllinn í Haag komst að bráðabirgðaniðurstöðu í þjóðarmorðsmáli Suður Afríku gegn Ísrael, í dag en þar er Ísrael gert að reyna mun betur að koma í veg fyrir mannsfall saklausra borgara á Gaza. Þeim er þó ekki gert að...
InnlentLögreglan óskar eftir aðstoð almennings: „Þykjast vera að spyrja eftir einhverjum“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu vegna innbrotaöldu sem hún telur ríkja á höfuðborgarsvæðinu og óskar eftir aðstoð almennings í þeim efnum. Hægt er að lesa tilkynningu lögreglu hér fyrir neðan: Undanfarið hefur verið nokkuð um innbrot í heimahús á höfuðborgarsvæðinu og eru þjófarnir einkum á höttunum eftir skartgripum og peningum að því er virðist. Vegna þessa er...
InnlentÍslendingur á sjötugsaldri handtekinn á Tenerife – Á yfir höfði sér 12 mánaða fangelsi Íslendingur handtekinn á Kanarí. Íslenskur maður á sjötugsaldri hefur verið handtekinn og ákærður af lögreglunni á Kanaríeyjum fyrir að ljúga að lögreglunni. Maðurinn sagði að kreditkorti hans hafi verið stolið og verið tekið út af því rúm milljón króna en maðurinn er á Tenerife, sem er vinsæl eyja á Kanaríeyjum hjá íslenskum ferðamönnum. Í rannsókn sinni komst lögreglan að því...
InnlentBjörn Leví hæðist að „samsæriskenningu“ nafna síns: „Þetta er mjög opinberandi“ Björn Leví Gunnarsson hæðist að Birni Bjarnasyni sem sakar RÚV og Pírata um leikfléttu. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins skrifaði færslu á Facebook þar sem hann segir fréttastofu Ríkisútvarpsins og Pírata hafa verið með „gamalkunna leikfléttu“ þegar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, var spurður í frétt RÚV hvort Bjarni Benediktsson hefði hleypt illu blóði í kjaraviðræðurnar í Silfrinu. Færsluna má...
InnlentDorrit er vinkona forsetans en kallar Netanyahu lygara: „Hann kennir öllum um nema sjálfum sér!“ Dorrit Moussaieff vandar forsætisráðherra Ísraels kveðjur sínar í færslu á Instagram. Fyrrum forsetafrúin er afar góð vinkona forseta Ísraels. Í kjölfar fyrirspurnar Mannlífs til Dorritar Moussaieff, um afstöðu hennar gagnvart ráðamönnum í Ísrael, birti hún yfirlýsingu á Instagram-reikning sinn í gærkvöldi. Þar er hún ómyrk í máli gagnvart Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels. „Ég ákæri Netanyahu. Hann er ábyrgur fyrir gíslunum...
InnlentReykjanesbraut opnuð aftur Uppfært: Lögreglan hefur gefið út að búið sé að opna fyrir umferð á Reykjanesbraut. Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu: „Reykjanesbrautin er lokuð í báðar áttir! Mjög slæmt skyggni er á Reykjanesbraut um þessar mundir og slæm færð. Vegfarendur á svæðinu eru beðnir um að sýna aðgát. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum. Förum gætilega!“
InnlentHallsteinn er látinn Hallsteinn Sigurðsson listamaður er látinn, 78 ára gamall. Mbl.is greindi frá. Hallsteinn fæddist árið 1946 í Reykjavík og ólst þar upp ásamt systkinum sínum. Hallsteinn var þekktur myndhöggvari en hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1963 til 1966. Hann hélt síðan til Englands og þar sem hann lærði höggmyndagerð. Þá var Hallsteinn alla ævi þátttakandi í...
InnlentFjölskylda mannsins sem féll ofan í sprungu segir mörgum spurningum enn ósvarað Fjölskylda mannsins sem fell ofan í sprungu í Grindavík vill að atvikið verði rannsakað af óháðum aðilum en Heimildin fjallaði um málið. Lúðvík Pétursson var við störf þann 10.janúar við íbúðarhús í bænum þegar hrun varð í sprungu sem varð til þess að hann fell skyndilega ofan í sprunguna. Fjölskylda Lúðvíks segir mörgum spurningum enn ósvarað um ákvarðanatöku og aðdraganda...
InnlentEldur í bílskúr í Hafnarfirði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um reyk sem lagði frá bílskúr í Hafnarfirði. Lögregla og slökkvilið voru snögg á vettvang en atvikið átti sér stað skömmu fyrir miðnætti. Eldur logaði í skúrnum og tók það slökkvilið um það bil tíu mínútur að slökkva eldinn og tryggja vettvanginn. Rafmagnsbíll var í bílskúrnum sem var fjarlægður en líklegt þykir að kviknað hafi í...