InnlentSérsveitin kölluð að Fjölbrautaskólanum í Breiðholti vegna „fíflagangs“ Stærðarinnar lögregluaðgerð stendur yfir við Fjölbrautaskólann í Breiðholti en sérsveit Ríkislögreglustjóra var meðal annars kölluð til. Samkvæmt frétt Vísis, sást sérsveit Ríkislögreglustjóra aka á móti umferð á Sæbraut við Skútuvog í Reykjavík á fjórtánda tímanum í dag. Þá hafi fjölmargir lögreglubílar, bæði merktir og ómerktir verið við Fjölbrautaskólann í Breiðholti um svipað leiti og ljóst að um stóra lögregluaðgerð er...
InnlentSéra Kristján vill verða biskup: „Gefast nú tækifæri til að móta skipulag kirkjunnar“ Séra Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis biskups Íslands. „Ef ég fæ nægjanlega margar tilnefningar mun ég gefa kost á mér í biskupskjöri,“ sagði Kristján í samtali við mbl.is um málið. „Ég hef sinnt störfum biskups mikið undanfarið og veit því vel út á hvað starfið gengur. Ýmsir prestar hafa komið að...
InnlentAðalsteinn og Þórður kæra til ríkissaksóknara: „Greinilegt að það er ekki sama hver er“ Aðalsteinn Kjartansson og Þórður Snær Júlíusson hafa kært ákvörðun lögreglustjórans á Norðurlandi eystra um að hætta rannsókn á meintum hótunum Páls Steingrímssonar á hendur þeim. Líkt og Mannlíf sagði frá í byrjun árs, ákvað lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, að láta rannsókn á kærum Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns Heimildarinnar, Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Heimildarinnar og Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra, gegn Páli Steingrímssyni, niður...
InnlentAlfreð er fallinn frá Alfreð Árnason er látinn, 85 ára gamall. Mbl.is greinir frá. Alfreð fæddist árið 1938 í Skálakoti undir Eyjafjöllum. Alfreð var menntamaður mikill en að loknu landsprófi hóf hann nám við Menntaskólann á Laugarvatni. Hann hélt svo til Norður-Írlands þar sem hann lauk B.Sc.-gráðu í dýrafræði árið 1964 og M.Sc.-gráðu í lífefnafræðilegri efnafræði árið 1966. Hann lauk svo doktorsprófi í Glasgow...
InnlentInnbrotsþjófar náðust á upptöku að ræna fyrirtæki Guðmundar: „Það er verið að filma okkur“ Pípulagningameistarinn Guðmundur Páll Ólafsson deildi með fylgjendum sínum myndbandi af innbroti á vinnustað hans. Í færslu sem Guðmundur birti segir hann að þetta sé annað innbrotið sem fyrirtækið verður fyrir á skömmum tíma og að innbrotsþjófarnir tveir séu sennilega íslenskir en í myndbandinu heyrist annar þeirra segja „Það er verið að filma okkur.“ Innbrotið átti sér stað snemma morguns 24....
InnlentStormur fram að hádegi Stormur geisar nú á landinu en gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi um allt land. Á Suðurlandi er búist við að veðrið nái hámarki um klukkan átta en ölítið seinna austan lands. Samkvæmt heimildum Vísis var slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu kallað út klukkan hálf fimm í morgun vegna bárujárns sem fauk um Hringbraut í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúar eru því hvattir...
InnlentKarlmaður áreitti ungar stúlkur á Völlunum Lögreglunni barst tilkynning í gær um ökumann sem áreitti ungar stúlkur í Hafnarfirði. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort maðurinn náðist en atvikið átti sér stað á Völlunum. Síðar um daginn sinnti lögregla útkalli í Garðabæ en þar var karlmaður í annarlegu ástandi. Sá hafði gengið á milli húsa og tekið í hurðarhúna. Þá handtók lögregla annan karlmann í...
InnlentDorrit birtir ljósmynd af sér með forseta Ísraels – Ekki ánægð með Netanyahu Dorrit Moussaieff birtir ljósmynd af sér með forseta Ísraels á Instagram. Fyrrverandi forsetafrú Íslands, Dorrit Moussaieff er að minnsta kosti málkunnug Isaac Herzog, forseta Ísrael, ef marka má færslu hennar á Instagram fyrir tveimur dögum. Í færslunni birti Dorrit ljósmynd af sér við hlið Herzog, sem heldur um axlir Dorritar. Rachel nokkur skrifar athugasemd við færsluna og virðist síður en...
InnlentSéra Friðrik rifinn niður Styttan af séra Friðriki verður ekki til sýnis við Lækjargötu. Styttan af séra Friðriki Friðrikssyni hefur verið rifin niður af borgaryfirvöldum en ákvörðun um slíkt var tekin af borgarráði í nóvember í fyrra. Sú ákvörðun var tekin í kjölfar þess að bók, sem sagnfræðingurinn Guðmundur Magnússon sendi frá sér, sem fjallar um ævi séra Friðriks kom út. Í henni greinir...
InnlentGuðbjörg stækkar enn veldi sitt – Kaupir í skugga tapreksturs Moggans Guðbjörg Magnea Matthíasdóttir stækkar nú veldi sitt en hún hefur nú keypt þrjú fyrirtæki í gegnum félag sitt Fastus ehf. Athafnakonan úr Vestmannaeyjum og stærsti eigandi Morgunblaðsins, Guðbjörg Magnea Matthíasdóttir hefur nú keypt fyrirtækin Expert, Expert kæling og GS Import, í gegnum félag sitt Fastus ehf sem sérhæfir sig í heildsöluverslun en sameinast nú hinum nýkeyptu fyrirtækjum. Samkvæmt Vísi ber...
InnlentSamstöðuganga boðuð við Hallgrímskirkju: „Nú verður að grípa til alvöru aðgerða“ Félagið Ísland-Palestínu boðar til samstöðugöngu fyrir utan Hallgrímskirkju á laugardaginn 27. janúar. Klukkan 14 á laugardaginn næsta mun fólk safnast saman fyrir framan Hallgrímskirkju og þaðan verður gengið niður Skólavörðustíg, að Alþingi á Austurvelli en þar mun fara fram samstöðufundur. Í viðburðalýsingu um gönguna á Facebook segir að nú sé „mikilvægara en nokkru sinni að almenningur láti rödd sína heyrast...
InnlentStefán Pálsson áskrifandi að Trump-vefriti: „Þetta gefur líka ákveðna innsýn“ Stefán Pálsson sagnfræðingur getur ekki losnað við Trump úr pósthólfinu. „Einhverra hluta vegna er ég á tölvupóstlista hjá e-u bandarísku Trumpista-vefriti. Mögulega hef ég í ógáti smellt á einhvern hnapp í ruslpósti sem ég hefði ekki átt að gera en fyrir vikið fæ ég daglega tölvupóst með yfirliti yfir helstu fréttir. 2-3 tilraunir til að afskrá mig hafa engum árangri...