InnlentGagnrýnir viðbrögð við þjóðarmorðinu á Gaza: „Smánarblettur á íslenskri stjórnmálasögu“ Sema Erla Serdaroglu segir ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og viðbrögð hennar við þjóðarmorði á Palestínumönnum, vera „smánarblett á íslenskri stjórnmálasögu.“ Nú standa yfir réttarhöld í Alþjóðadómstólnum í Haag en Suður Afríka hefur nú kært Ísrael fyrir þjóðarmorð. Sema Erla Sedaroglu hjá Solaris hjálparsamtökunum skrifaði Facebook-færslu á dögunum þar sem hún gagnrýnir ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur harðlega fyrir meðferð hennar á palestínsku flóttafólki...
InnlentTveir létust í bílslysinu Tveir erlendir ferðamenn létust í alvarlegu bílslysi er varð rétt fyrir tíu í morgun á Þjóðvegi 1, vestan við afleggjarann að Skaftafelli. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi skullu tveir bílar saman en þeir komu úr gagnstæðum áttum. Mikil hálka var á vettvangi. Alls voru átta í bílunum tveimur en tveir þeirra, erlendir ferðamenn, voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Hinir...
InnlentLandhelgisgæslan æfir björgun úr þyrlu í vatni – Myndskeið Þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar æfa nú björgun úr þyrlu í vatni í hollensku borginni Rotterdam. Samkvæmt heimasíðu Landhelgisgæslunnar verða allar þyrluáhafnir Gæslunnar að gangast undir svokallaða HUET-þjálfu, með reglulegu millibili en það á jafnt við um flugmenn, sigmenn, spilmenn og lækna. Stefnumarkið er að allir um borð séu undir það búnir að komast úr þyrlu sem þarf að lenda í sjó eða...
InnlentAlvarlegt hópslys á þjóðveginum nærri Skaftafellsá – Þyrla á leið á vettvang Tveggja bíla árekstur tveggja bíla varð á þjóðveginum nálægt Skaftafellsá við Svínafellsjökul á Suðurlandi. Átta eru sagðir slasaðir, þar af tveir alvarlega. Samkvæmt frétt Vísis hefur hópslysaáætlun verið virkjuð á Suðurlandi eftir árekstur tveggja bíla nærri Skaftafellsá við Svínafellsjökul en átta eru sagðir slasaðir, þar af tveir alvarlega. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið á vettvang. Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn á...
InnlentÍ hvaða sæti endar Ísland á EM í handbolta? Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Serbíu í fyrsta leik liðsins á Evrópumótinu í handbolta klukkan 17:00 í dag. Miklar væntingar eru gerðar til liðsins eins og gengur og gerist með landsliðið og telja sérfræðingar að liðið eigi möguleika á að lenda í efstu þremur sætunum ef allt gengur upp en landsliðið náði ekki að sýna sitt rétt andlit á Heimsmeistaramótinu...
InnlentBirti málflutning Suður Afríku gegn Ísrael: „Þau gildi liggja dáinn og grafin í rústum Gaza“ Suður Afríka kærði Ísrael fyrir þjóðarmorð á Gaza og flutti mál sitt fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag í gær. Kristinn Hrafnsson deildi samantekt írska lögmannsins sem sækir málið gegn Ísrael. Ritstjóri Wikileaks, Kristinn Hrafnsson deildi myndbandi á Facebook þar sem írski lögmaðurinn Blinne Ní Ghrâlaigh, fara yfir viðbjóðinn sem enn er í gangi á Gaza. Við myndbandið skrifaði Kristinn færslu þar...
InnlentÍsland hefur leik á EM í dag: „Án allra þessara gilda verður róðurinn oft þungur hjá liðinu“ Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Serbíu í fyrsta leik liðsins á Evrópumótinu í handbolta klukkan 17:00 í dag og verður leikurinn í beinni útsendingu á RÚV. Miklar væntingar eru gerðar til liðsins eins og gengur og gerist með landsliðið og telja sérfræðingar að liðið eigi möguleika á að lenda í efstu þremur sætunum ef allt gengur upp en landsliðið náði...
InnlentGerðu hlé á leit í sprungunni seint í gærkvöld Leit af manninum sem féll ofan í sprungu í Grindavík liggur niðri en aðstæður á svæðinu eru erfiðar. Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, staðfesti það í samtali við mbl.is að grjóthrun hefði orðið í sprungunni og því hafi þeir gert hlé á leitinni. Stöðufundur verður tekinn klukkan níu en þá verði staðan endurmetin. Enn er óljóst hvernig leitin gengur en...
InnlentSigríður Dögg rýfur þögnina: „Er ekki sek um það sem ég er sökuð um“ Sigríður Dögg Auðunsdóttir svarar loksins fyrir svaraleysi sitt gagnvart skattamálum sínum. Segir hún einnig að Hjálmar Jónsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands, hafi margítrekað neitað að vinna þau verkefni sem stjórnin fól honum að vinna. Mannlíf heyrði í Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formanni BÍ og ræddi við hana um nýjust vendingarnar hjá félaginu en framkvæmdastjóranum, Hjálmari Jónssyni var sagt upp í gær....
InnlentEdda Björk dæmd í 20 mánaða fangelsi Edda Björk Arnardóttir hefur verið dæmd í 20 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Noregi en Nútíminn greinir frá þessu. Edda hefur verið í gæsluvarðhaldi þar í landi síðan í desember en var hún dæmd fyrir að ræna börnum sínum en hún hefur ekki haft forræði yfir þremur drengjum sínum sem hún flutti til Íslands. Mál Eddu hefur vakið athygli síðan fyrri...
InnlentDeilan innan BÍ kemur Brynjari ekki á óvart: „Geri mér grein fyrir mikilvægi fjölmiðla“ Brynjar Níelsson segist gera sér grein fyrir mikilvægi fjölmiðla í nýrri Facebook-færslu. Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, Brynjar Níelsson segir í nýrri Facebook-færslu að hann geri sér grein fyrir mikilvægi fjölmiðla, þó hann „jagist stundum í blaðamönnum.“ Í færslunni rifjar hann upp kynni sín við Hjálmar Jónsson, fráfaranda framkvæmdarstjóra Blaðamannafélagsins, sem hann segir hreinan og beinann mann sem „brennur greinilega fyrir hagsmunum umbjóðaenda...
InnlentLögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir tveimur bílum Í nýrri tilkynningu á Facebook lýsir lögreglan eftir tveimur bílum: „Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir tveimur stolnum ökutækjum. En það eru bifreiðarnar UL-N28 sem er hvít Dacia Duster árgerð 2013 og KK-022 sem er hvít Toyota Yaris árgerð 2000. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bílarnir eru niðurkomnir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma...