InnlentSegir hræsni Biskups óþolandi:„Hefur hvorki opnað hús eða hjarta fyrir flóttafólki eða fátæklingum“ Séra Skírnir Garðarsson segir hræsni Agnesar M. Sigurðardóttir, fráfarandi biskups vera „alveg óþolandi.“ Séra Skírnir Garðarsson var duglegur að skrifa pistla sem birtust hjá Mannlífi á þessu ári en þar var hann gjarnan að gagnrýna Agnesi biskup harðlega. Og hann heldur því áfram í samtali við Mannlíf sem heyrði í honum hljóðið, svona í lok árs. „Það er aumkunarvert að...
InnlentBergþóra um ríkisstjórnina og Gaza: „Sagan mun dæma viðbrögð ykkar, hugleysi og linkuhátt“ Bergþóra Snæbjörnsdóttir segir yfirvöld ljúga því að landamæri séu lokuð fólki með palestínsk vegafréf og vill fá þann hóp sem er með samþykkta fjölskyldusameiningur, til Íslands. Rithöfundurinn Bergþóra Snæbjörnsdóttir skrifaði Facebook-færslu þar sem hún segist hafa keypt jólagjafir fyrir þrjú lítil börn frá Palestínu en þau fái ekki pakkana því þau fá ekki enn að koma til landsins, þrátt fyrir...
InnlentGul viðvörun og snjókoma Færð á Suðurlandi verður erfið í dag en gul viðvörun er í gildi til klukkan átta í kvöld. Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að færðin sé þegar mjög slæm og mikil snjókoma sé á Hellisheiði og í Þrengslum. Blint sé á köflum og vegfarendur því hvattir til þess að aka varlega. Á höfuðborgarsvæðinu er búist við snjókomu í dag en...
InnlentLeita að föður fjögurra barna sem fundust látin á jóladag Lögreglan í Frakklandi leitar nú að 33 ára gömlum föður eftir að börnin hans fjögur fundust látin á heimili sínu í gær. Ættingjar barnanna höfðu samband við lögreglu eftir að ekkert hafði heyrst frá fjölskyldunni um jólin en breska ríkisútvarpið fjallaði um málið í morgun. Lögregla fór inn í íbúðina sem var norðaustur af París. Þegar þangað var komið voru...
InnlentSegir að Ísrael muni setja aukinn þunga í árásir á Gaza Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hefur sagt ríkið ætla sér að ganga enn harðar fram í baráttu sinni við hryðjuverkasamtökin Hamas og árásum á Palestínu á næstu dögum. Breska ríkisútvarpið greindi frá þessu en eftir að hann heimsótti Gasaströndina í gærmorgun sagði hann flokki sínum að hernaðaraðgerðum Ísraels á Gasa væri hvergi nærri lokið. Anthony Blinken hvatti Ísrael í gær til...
InnlentHrun í útgáfu þýddra verka: „Storytel er eins og stórt skrímsli sem er að éta hann upp“ „Við verðum að átta okkur á því að þetta efni er ekki ókeypis og á ekki að vera það. Núna er það undirverðlagt og þá hefur enginn í keðjunni nóg til að lifa af, hvorki útgefendur né höfundar og í raun og veru ekki streymisveitan heldur. Markaðurinn hér á landi er lítill og viðkvæmur og Storytel er eins og stórt...
InnlentGagnrýna vetrarþjónustu borgarinnar: „Liggur við að maður fari á skautum í vinnuna“ Á jóladag er tilvalið að fara með fjölskyldunni út að ganga. Á stystu dögum ársins þrá flestir dagsbirtuna. En það er ekki öllum gefið að fara út að ganga þar sem víða eru hálkuvarnir í ólagi. Helstu stofnbrautir og gangstéttir eru saltaðar en öðru máli gegnir um íbúagötur. Í hverfagrúppunni Vesturbærinn kvarta íbúar sáran undan flughálum gangstéttum í borghlutanum. Í...
Innlent44 fluttir með sjúkrabíl í nótt Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafði í nægu að snúast í nótt. 100 sjúkraflutningsferðir voru farnar síðastliðin sólarhring, þar af 44 flutningar í nótt. Af heildinni voru 25 sjúkraflutningar í forgangsakstri. „Dælubílarnir fóru í 5 verkefni síðastliðinn sólarhring flest minni háttar eitt stóð þó uppúr en þar hafði kveiknað í jólaskreytingu sem gleymst hafði að slökkva á áður en íbúð var yfirgefin. Sem...
InnlentÞrír gistu í fangaklefa – Tveir höfðu ekki í önnur hús að vernda Samkvæmt dagbók lögreglu voru næturverkin talsverð. Þrír gistu í fangaklefa í nótt, einn fyrir innbrot og hinir tveir vegna þess að þeir höfðu ekki í önnur hús að venda, að sögn lögreglu. Einstaklingur var handtekinn vegna gruns um innbrot í vesturhluta borgarinnar. Hann gistir í fangaklefa þar til hægt verður að yfirheyra hann. Eitthvað var um að ökumenn voru stöðvaðir...
InnlentSorphirða borgarinnar í ólagi fyrir jól – Yfirfullar tunnur víðs vegar í borginni Ruslið í Reykjavík nær enn og aftur í fréttir. Á hinum ýmsu hverfagrúppum á Facebook verður vart við óþreyjufulla íbúa sem spyrja nágranna sína um stöðu sorphirðu í hverfinu. Þá virðist sem ekki hefur náðst að tæma allar tunnur í Vesturbænum, Hlíðunum og víðsvegar í Breiðholti. Hátíðardagarnir eru þeir dagar ársins þar sem hvað mestur úrgangur og rusl fellur frá...
InnlentSlæm færð á Vestfjörðum Lögreglan á Vestfjörðum birti fyrir skemmstu stöðufærslu á Fésbókarsíðu sinni. Fram kemur að allir helstu vegir Vestfjarða séu lokaðir. Mikil úrkoma og hvassviðri hefur verið í landshlutanum sem hefur torfellt hreinsunarstarf á vegum. „Þá er vegurinn milli Ísafjarðar og Súðavíkur lokaður vegna snjóflóðahættu. Sama er með Flateyrarveg og loks var veginum milli Hnífsdals og Ísafjarðar lokað seint í gærkveldi en...
InnlentBergþóra féll í Sogið við björgun á tveimur hundum: „Ísinn brast og fór hún á bólakaf“ Bergþóra Eiðsdóttir féll í Sogið í gær, við björgun á tveimur hundunum sínum, þeim Medúsu og Aski. „Þegar Bergþóra var rétt komin út á ísinn brast og fór hún á bólakaf,“ greinir Eiður Haralds Eiðsson, faðir Bergþóru, frá inni á Fésbókarhópnum Hundasamfélagið. „Við Bergþóra fórum að viðra hundana okkar í hádeginu í dag upp í Þrastarskóg eins og við gerum...