Innlent„Þetta virðist vera frekar stórt, miðað við fyrri gos á Reykjanesskaganum.“ Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna, sagði í samtali við fréttamann vísis að nú sé upplýsingaöflun í gangi og að þyrla landhelgisgæslunar sé að fara í loftið og samhæfingarmiðstöð Almannavarna hefur verið virkjuð. „Við erum að taka stöðuna á því nákvæmlega hvar þetta er. Þetta virðist vera frekar stórt, miðað við fyrri gos á Reykjanesskaganum.“ Almannavarnir undirstrika að fólk fari ekki á...
InnlentReykjanesbrautin LOKUÐ Lögreglan á Suðurnesjum sendi frá sér tilkynningu um lokun Reykjanesbrautarinnar. Vegfarendum er bent á að rýma Reykjanesbrautina tafarlaust. Þá kemur einnig fram að óskað er eftir að ökumenn teppi ekki vegi í kringum gosið og skapi þannig hættu með að stöðva á akbrautum eða úti í vegkanti. Þá er fólki bent á að rýma þurfi svæðið og tryggja aðgengi viðbragðsaðila...
InnlentTilkynning frá lögreglu: „Eldgos er hafið rýmið Grindavík STRAX en alls ekki um Grindavíkurveg“ Lögreglan á Suðurnesjum sendi frá sér tilkynningu á Fésbókarsíðu sinni: „Eldgos er hafið rýmið Grindavík STRAX en alls ekki um Grindavíkurveg.“
InnlentEldgos er hafið á Reykjanesskaga Samkvæmt Veðurstofu Ísland er gosið norðan Grindavíkur við Sundhnjúkagíga. Sprungan er 3.5 kílómetrar að lengd. Hraunflæði er 100 – 200 rúmmetrar á sekúndu. Á RÚV kemur fram að: „Þyrla Landhelgisgæslunnar fer í loftið innan skamms til þess að staðfesta nákvæma staðsetningu og stærð eldgossins. Nánari upplýsingar verðar aðgengilegar fljótlega.“ Mikil skjálftahrina hefur verið á svæðinu. Ekki liggur fyrir nákvæm staðsetning...
InnlentÍsraelskt fasteignafélag auglýsir strandhús á Gaza: „Nú á forsöluverði!“ Ísraelskt fasteignafélag auglýsir nú strandhús á Gaza-ströndinni til sölu. Palestínsk-ameríski rithöfundurinn og pólitíski aktívistinn Susan Abulhawa bendir á óhugnalega auglýsingu á Instagram síðu sinni. Auglýsingin er frá ísraelska fasteignafélaginu Haray Zahav sem er leiðandi í sölu á húsum í ólöglegu landtökubyggðunum á Vesturbakkanum. Fasteignafélagið birti tvær auglýsingar á Instagram þar sem sjá má mynd af ströndinni á Gaza en þar...
InnlentLandsliðshópur Íslands fyrir EM tilkynntur: „Mæta svo stinnir“ Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfara karlaliðsins í handbolta, tilkynnti fyrr í dag hvaða leikmenn myndu fara á EM í handbolta en það fer fram í janúar í Þýskalandi. Ísland mun hefði undirbúning hérlendis og halda svo til Austurríki og keppa þar æfingaleiki við Austurríki. Athygli vekur að Andri Már Rúnarsson, leikmaður Leipzig í Þýskalandi, er í hópnum en hann hefur ekki...
InnlentMerki Rapyd hvergi að finna á nýrri landsliðstreyju Merki fjármálafyrirtækisins Rapyd er hvergi að finna á nýjum landsliðstreyjum HSÍ sem eru til sölu á Boozt. Handboltasambandið hefur á undanförnum vikum verið harðlega gagnrýnt fyrir að vera í samstarfi við Rapyd en forstjóri Rapyd sagði í október á þessu ári að allar aðgerðir Ísrael á Gaza væru réttlætanlegar. Orð forstjórans hafa farið nokkuð illa í marga Íslendinga og herma...
InnlentHvað finnst þér um tímasetningu verkallsaðgerða flugumferðastjóra? Klukkan 10 í morgun lauk þriðju lotu í verkfalli flugumferðastjóra og er sú fjórða boðuð á miðvikudaginn næstkomandi, frá klukkan fjögur að nóttu til 10 að morgni. Samningaviðræður hafa ekki gengið sem skyldi og að svo stöddu sér sáttasemjari ekki tilefni til að boða til annars fundar. Síðasti fundur var haldinn fyrir helgin. Ekki hefur verið ákveðið að setja lög...
InnlentMögulegt að Grindvíkingar geti haldið jól heima Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum telur ekki ólíklegt að Grindvíkingar geti haldið jól í bænum. Vísir greindi fyrst frá í dag en næsta hættumat Veðurstofunnar verður gefið út á miðvikudaginn næstkomandi. Frá 14.desember hafa íbúar megað dvelja í bænum frá klukkan sjö á morgnanna til níu á kvöldin. Hættustig almannavarna hefur verið í Grindavík frá 23. nóvember en dvalartíminn hefur...
InnlentSigga Beinteins komin á fast Söngdrottningin Sigríður Beinteinsdóttir er komin á fast en þær Eygló Rósa Glódís Agnarsdóttir eru byrjaðar í sambandi. Vísir greinir frá þessu. Sigríður, sem er yfirleitt kölluð Sigga Beinteins, er ein þekktasta söngkona landsins en hún hefur keppt fyrir hönd Íslands í Eurovision þrisvar sinnum og á mörg þekkt lög. Eygló starfar hjá Þórsgarði sem framkvæmdastjóri fasteignasviðs félagsins. Hún er 46...
InnlentVill forðast slaufun: „Tel ég rétt að auglýsa bókina hér“ „Svo mér verði ekki slaufað eins og Ester í bókhaldinu hjá Bónus tel ég rétt að auglýsa þessa frábæru bók hér,“ ritar Brynjar Níelsson fyrrum alþingismaður og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra á Fésbókarsíðu sinni. Brynjari barst á dögunum eintak af bókinni Þriðja Vaktin eftir Þorstein V. Einarsson og Huldu Tölgyes. Í fréttum helgarinnar kom fram að Þorsteinn hafi sigað fylgjendum sínum á...
InnlentRefsigjald á foreldra í Árborg hækkar um helming – 3000 kr fyrir að sækja barnið mínútu of seint Sveitarfélagið Árborg hefur sent út tilkynningu til foreldra leikskólabarna vegna rúmlega helmingshækkunar á leikskólagjaldi er lúta að frávikum umsamins dvalartíma. Kostar hvert korter nú 1.911 krónur en hækkar upp í 3.000 krónur. Breytingin á gjaldskránni tekur gildi 1. janúar 2024. Gjaldið sem um ræðir er óþekkt í sveitarfélögum innan höfuðborgarsvæðisins og víðar. Mannlífi bárust ábendingar frá ósáttum foreldrum og forráðamönnum...