InnlentGrafarþögn í íslenskum knattspyrnuheimi – Ótti og hræðsla ræður ríkjum Mikil hræðsla og ótti ríkir nú í íslenska knattspyrnuheiminum. Eins og greint var frá í nóvember mun íslenska A-landslið karla mæta Ísrael í mars í umspili fyrir Evrópumót karla sem haldið verður á næsta ári. Undir venjulegum kringumstæðum væru þetta gleðitíðindi fyrir land og þjóð en raunin er allt önnur. Ástæðan er ástandið á Gaza og hernaðaraðgerðir Ísraels á því...
InnlentGasmengun á höfuðborgarsvæðinu í nótt Veðurstofa Íslands bendir á að gosmökkurinn berist í augnablikinu í vestur og norðvestur átt: „Gasmengunar gæti orðið vart í Vestmannaeyjum í dag, en ekki annars staðar í byggð. Samkvæmt veðurspá gæti gasmengunar orðið vart á höfuðborgarsvæðinu seint í nótt eða í fyrramálið.“ Fram kemur að dregið hafi úr krafti eldgossins. Hraunflæðið fjórðungur af því sem það var í upphafi og...
InnlentSegir eldgosið víst vera „túristagos“: „Ígildi milljarða króna landkynningarherferðar“ Kristinn Hrafnsson er ósammála Víði Reynissyni um eldgosið við Sundhnúkagíga. Segir ritstjórinn að sannarlega sé um „túristagos“ að ræða. Víði Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnarsviðs hjá ríkislögreglustjóra, sagði í gærkvöldi að hið nýja eldgos á Reykjanesskaga, sé ekki „túristagos“. Þessu er Kristinn Hrafnsson ristjóri ósammála. Skrifaði hann Facebook-færslu í morgun um gosið þar sem hann kallar Víði „Hlýðni-Víðir en hann segist „algjörlega...
InnlentPétur Arason er látinn Pétur Kristinn Arason, listaverkasafnari og fv. kaupmaður í Faco/Levi’s-búðinni, er látinn. Mbl.is greindi frá. Pétur var 79 ára að aldri en hann fæddist þann 17.ágúst 1944 í Reykjavík. Pétur og bróðir hans Fjölnir, tóku við rekstri á fataverslun föður þeirra sem framleiddi herrafatnað. Verslunin hafði skammstöfunina Faco en samhliða henni ráku þeir verslanirnar Fons, Fönn og Fídó. Faco seldi Levi’s...
Innlent„Við erum lánsöm að eiga vísindamenn sem eru tilbúnir að hugsa upphátt með okkur“ Guðmundur Andri Thorson, rithöfundur, deilir hugrenningum sínum og upplifun gærkvöldsins á Fésbókarsíðu sinni. Þar lýsir hann gærkveldinu: „Silfrið mallaði eins og ekkert gefi í skorist. Aldrei þessu vant var kveikt á símanum og því heyrði ég blíng þegar ég var við að festa blund; dóttir mín að tilkynna um eldgos.“ „Við fórum út á svalir og sáum himininn loga í...
InnlentInnviðaráðherra ánægður með þróun gossins: „Vonum að það haldi áfram“ Sigurður Ingi Jóhannsson segir að staðsetningin á gosinu virðist nokkuð heppileg. Innviðaráðherrann Sigurður Ingi Jóhannsson var í viðtali við RÚV á leið sinni inn á ríkisstjórnarfund í morgun. „Já, án efa, þetta er auðvitað svakalegur atburður,“ sagði Sigurður Ingi aðspurður hvort staða innviða yrði rædd á fundinum. Þegar fréttamaður RÚV spurði hann hvort búið sé að reisa nægilega stóra varnargarða...
InnlentHundruðir Íslendingar skráðir í snjóboltastríð: „Stærsta snjóstríð í sögu íslensku þjóðarinnar“ 663 Íslendingar hafa boðað komu sína í snjóboltastríð sem verður haldið miðvikudaginn 20. desember. Stríðið fer fram á Arnarhóli klukkan 20:00. Þá hafa rúmlega 2500 Íslendingar sagt að þeir séu að íhuga að mæta. Líklegt er að þetta verði stærsta snjóboltastríð sem hefur verið haldið hérlendis. Hægt er að skrá þátttöku sína hérna. „Get ready to rubmle Stærsta snjóstríð í...
InnlentRögnvaldur er fallinn frá Rögnvaldur Þór Gunnarsson er látinn, 32 ára gamall. Vísir greinir frá. Rögnvaldur var búsettur í Stryn í Noregi en fæddist á Íslandi. Leitað hafði verið að Rögnvaldi í tvo daga áður en hann fannst en lögregla telur að andlát hans hafi ekki borið að með saknæmum hætti. Fjölskylda hans þakkar viðbragðsaðilum fyrir aðstoðina.
Innlent„Það er sjálfsagt byrjað að draga úr því nú þegar“ Búast má við að það dragi hratt úr hraunflæði eldgossins sem hófst á Reykjanessskaga seint í gærkvöldi. Hraun rennur ekki í átt að Grindavík og þykir gosið vera á heldur heppilegum stað að sögn jarðeðlisfræðings. „Sú lýsing sem hefur komið fram, og hún bara stendur, er að þetta er verulegt gos. Það er fjögurra kílómetra löng sprunga sem nær svona...
InnlentÞriggja bíla árekstur í Hafnarfirði Lögregla var kölluð út í gærkvöldi vegna þriggja bíla áreksturs sem varð á Reykjanesbraut við Hafnarfjörð. Áreksturinn átti sér stað rétt fyrir miðnætti í gær. Tveir voru fluttir á slysadeild í kjölfarið. Ekki liggur fyrir hver tildrög slyssins voru en sem betur fer voru áverkar ökumanna ekki alvarlegir. Þá sinnti lögregla einnig reglubundnu umferðareftirliti og útköllum vegna fólks í annarlegu...
InnlentNeyðarfundur hjá HS veitum: „Einn hinn versti staður til að fá gos“ „Einn hinn versti staður til að fá gos,“ sagði Kristín Jónsdóttir sérfræðingur frá Veðurstofu Íslands í viðtali við fréttastjóra Rúv um staðsetningu gossins og ógn innviða á svæðinu. Varnargarðar fyrir virkjunina á Svartsengi voru ekki fullunnnir og eru því mikilvægir innviðir fyrir Reykjanesskaga í hættu. Fram kom að neyðarfundur sé hjá HS veitum.
InnlentKvikustrókar allt að hundrað metra háir – „Ekkert túristagos“ Veðurstofa Íslands hefur gefið út áætlaða staðsetningu gossprungunnar á Reykjanesskaga. Eldgosið hóst klukkan 22.17 í kvöld. Aðdragandinn var mjög snarpur og kom sérfræðingum töluvert á óvart. Eldgosið er talið stærra en fyrri gos. „Það kom okkur töluvert á óvart,“ sagði Kristín Jónsdóttir frá Veðurstofunni í aukafréttatíma RÚV. Fyrstu upplýsingar benda á að sprungan sé um það bil 2800 metra löng...