Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Grafarþögn í íslenskum knattspyrnuheimi – Ótti og hræðsla ræður ríkjum

Fólkið sem vill ekki svara spurningum um Ísrael – Myndin er samsett
Fólkið sem vill ekki svara spurn­ingum um Ísrael – Myndin er sam­sett

Mikil hræðsla og ótti ríkir nú í íslenska knatt­spyrnu­heim­inum.

Eins og greint var frá í nóv­em­ber mun íslenska A-lands­lið karla mæta Ísrael í mars í umspili fyrir Evr­ópu­mót karla sem haldið verður á næsta ári. Undir venju­legum kring­um­stæðum væru þetta gleði­tíð­indi fyrir land og þjóð en raunin er allt önnur. Ástæðan er ástandið á Gaza og hern­að­ar­að­gerðir Ísraels á því svæði en talið er tæp­lega 20 þús­und Palest­ínu­búa hafi lát­ist síðan í októ­ber. Þessi leikur setur því KSÍ í flókna stöðu. Sam­bandið gaf út yfir­lýs­ingu í byrjun árs 2022 að Ísland myndi ekki spila við Rússland meðan hern­aður Rússa í Úkraínu héldi áfram.

„Stríðs­á­tök hafa fært ólýs­an­legar hörm­ungar yfir mann­kynið í gegnum sög­una og nú hafa rúss­nesk yfir­völd, með stuðn­ingi Hvít-rúss­neskra yfir­valda fært slíkar hörm­ungar yfir Úkraínu,“

og

„Íslensk knatt­spyrna stendur með Úkraínu og hvetur Rússa til að hætta árásum og draga her­lið sitt til baka taf­ar­laust,“ sagði meðal ann­ars í yfir­lýs­ing­unni. Engin slík yfir­lýs­ing hefur verið gefin út varð­andi Ísrael. Ljóst er að kom­ist Ísland á EM muni það þýða miklar tekjur fyrir KSÍ en Ísland mun þurfa að spila við Ísrael, eins og staðan er núna, til að eiga þann mögu­leika fyrir hendi.

Mannlíf hefur reynt að ná í bæði Vöndu Sig­ur­geirs­dóttur, for­mann KSÍ, og Klöru Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóra KSÍ, til að spyrj­ast fyrir um þetta mál. Hvort það sé rétt­læt­an­legt að leika við Ísrael en ekki Rússland og ef svo er, af hverju?
Þær fyr­ir­spurnir hafa verið huns­aðar.  Önnur flækja í mál­inu er að nýr for­maður mun taka við KSÍ í febr­úar en Vanda hefur gefið það út að hún mun ekki sækj­ast eftir áfram­hald­andi for­mennsku. Eins og staðan er í dag er Guðni Bergsson eini fram­bjóð­and­inn. Eftir að hafa reynt ná í Guðna í gegnum tölvu­póst án árang­urs svar­aði Guðni blaða­manni Mannlífs sím­leiðis og bað um að fá að senda svör sín með tölvu­pósti næsta dag. Síðan þá hafa liðið fjórir dagar og ekk­ert bólar á svörum Guðna.

Þá hefur Mannlíf sent svip­aðar fyr­ir­spurnir á Íslenskan Topp­fót­bolta, hags­muna­sam­tök félags­liða í tveimur efstu deildum karla og kvenna, og Leik­manna­sam­tök Íslands en engin svör hafa borist þaðan.

Heim­ildir Mannlífs herma að málið þyki svo eld­fimt að fólk ein­fald­lega þori ekki að svara og KSÍ og aðrir hags­muna­að­ilar muni þegja um málið eins lengi og mögu­legt er. Svipar staða KSÍ mikið til RÚV en fjöl­miðla­veldið hefur átt í stök­ustu vand­ræðum með að rétt­læta þátt­töku Ísraels í Eurovision meðan stofn­unin krafð­ist þess að Rússum yrði vikið, sem varð raunin á end­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Fimm ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur á Bústaðarvegi.
Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum