InnlentSegir „hugvillu“ almennings í seinni heimstyrjöldinni endurtaka sig í dag: „Jólapakkarnir á Gaza“ Kristinn Hrafnsson bendir með köldum hætti á sinnuleysi margra þegar snýr að þjóðarmorðunum sem eiga sér stað í rauntíma og í beinni útsendingu á Gaza, í nýrri færslu á Facebook. Færslan er stutt en sterk. Þar líkir hann sinnuleysi almennings varðandi það sem er að gerast á Gaza, við sinnuleysi þýsku þjóðarinnar í seinni heimstyrjöldinni. Birti hann skjáskot við færsluna,...
InnlentUmdeild tillaga Bjarna komi á óvart: „Eitthvað alveg nýtt“ Tillaga Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra að skipa Svanhildi Hólm Valsdóttur sem sendiherra Íslands í Bandaríkjunum kemur Hauki Arnþórssyni stjórnsýslufræðingi á óvart. Sendiherrastaðan í Bandaríkjunum er almennt talinn sú stærsta og mikilvægasta í íslensku stjórnkerfi. Svanhildur var lengi aðstoðarmaður Bjarna og mun hún vera sendiherra í fimm ár verði tillaga Bjarna samþykkt. „Já, það er virkilega búið að lækka þröskuldinn fyrir sendiherratign...
InnlentDagbjört áfram í gæsluvarðhaldi Landsréttur staðfesti í gær úrskurð um að framlengja gæsluvarðhald yfir konu fram til 11.janúar á næsta ári. Konan, Dagbjört Rúnarsdóttir, hefur verið ákærð fyrir manndráp í Bátavogi fyrr á árinu. Lögregla var kölluð út í félagsíbúð við Bátavog þann 23.september síðastliðinn en þar fannst 58 ára karlmaður meðvitundarlaus. Lögregluþjónar hófu endurlífgunartilraunir í íbúðinni en maðurinn síðan fluttur á Landspítalann þar...
InnlentHæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. braut persónuverndarlög Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson braut persónuverndarlög þegar hann birti upplýsingar úr lögregluskýrslu í september árið 2021. Lögregluskýrslan var vegna kæru Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur á hendur fótboltamanninum Kolbeini Sigþórssyni en sakaði hún hann um ofbeldi. Vísir greindi frá niðurstöðu Persónuverndar í morgun en taldi Sigurður sig ekki hafa brotið á neinum þegar hann birti upplýsingarnar. Þá skrifaði Sigurður pistil á Facebook-síðu...
InnlentHelmingur sammála tímasetningu verkfallsaðgerða – Flugumferðastjórar draga í land Í skoðanakönnun Mannlífs í gær voru lesendur spurðir hvort þeir væru hlynntir tímasetningu verkfallsaðgerða flugumferðastjóra. Rétt rúmur helmingur er sammála tímasetningunni eða 50,8 prósent. Ósammála henni eru 48,2 prósent. Óvissir eru eitt prósent þátttakanda. Haft var eftir innviðarráðherra að: „… Mikill ábyrgðarhluti að vera í svona aðgerðum á þessum tíma rétt fyrir jól og beint ofan í þær náttúruhamfarir sem...
InnlentBragi Páll svarar Helga Hrafni fullum hálsi: „Hættið þessari fokking þvælu og fordæmið þjóðarmorð“ „Ekki hlusta á Helga Hrafn sem kemur uppljómaður undan sínum gáfumannafeld, tveim mánuðum eftir að þjóðarmorðið hófst, til þess að segja okkur að ástandið sé flókið. Að ómögulegt sé að fordæma þjóðarmorð nema skilja fyrst til fullnustu sagnfræðilegan aðdraganda þess.“ Svona byrjar Facebook-færsla rithöfundarins Braga Páls Sigurðarsonar, sem hefur verið hvað duglegastur að minna Íslendinga á það hrylling sem á...
InnlentBiðjast afsökunar á kynferðisbrotum séra Friðriks: „Hörmum að félagið hafi ekki verið vakandi“ KFUM og KFUK hafa sent frá sér tilkynningu á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem félagið gengst við því að séra Friðrik Friðriksson, stofnandi samtakanna, hafi brotið á börnum í skjóli félagsins. Ásakanir um hegðun séra Friðriks komu fram í nýrri bók sagnfræðingsins Guðmundar Magnússonar. Í framhaldi af því ákvað KFUM og KFUK að rannsaka málið og er niðurstaðan sú að séra...
InnlentÓk um bæinn með börnin laus í aftursætinu Lögregla stöðvaði tvo ökumenn í gærkvöldi. Í báðum bifreiðunum voru börn í óöruggum aðstæðum. Fyrri ökumaðurinn var undir áhrifum áfengis með börn með sér. Sá seinni var með tvö börn í aftursætinu án öryggibúnaðar, annað barnið var í fangi fullorðins einstaklings. Síðar um kvöldið barst lögreglu heldur óvanaleg tilkynning. Viðskiptavinur verslunar hafði samband við lögreglu og sakaði starfsmann um líkamsárás....
56:43InnlentSjóarinnValda grunaði að eitthvað væri í ólagi áður en Dísarfellið sökk: „Blessaður, þetta er bara í þér“ Valdimar Sigþórsson, betur þekktur sem Valdi Víðátta, var um borð í Dísarfellinu þegar það fórst milli Íslands of Færeyja árið 1997. Hann er nýjasti gestur Sjóarans. Slysið er tekið fyrir í nýútkominni bók Svövu Jónsdóttur, Heimtir úr Helju. „Við vorum í kolvitlausu veðri á leiðinni heim og vorum langt á eftir áætlun,“ segir Valdimar er hann rifjar upp hinn örlagaríka...
InnlentÁhöfnin á Polar Ammassak varð vitni að upphafi gossins: „Þessu mun maður aldrei gleyma“ Áhöfn grænlenska skipsins Polar Ammassak varð vitni að upphafi eldgossins í gærkvöldi en skiptið var statt um átta mílur út af Krísurvíkurbjargi. Fallegt er það.Mynd: Geir Zoëga Síldarvinnslan segir frá því á heimasíðu sinni að grænlenska skipið Polar Ammassak hafi verið statt um sjö til átta mílur út af Krísurvíkurbjargi, þegar eldgosið hófst á Reykjanesi upp úr klukkan 22 í...
InnlentVindar og breytingar á Veðurstofu Íslands: „Vinna hættumat vegna náttúruhamfara“ Átta einstaklingar sóttu um starf forstjóra Veðurstofu Íslands en starfið var auglýst laust til umsóknar í nóvember og rann umsóknarfresturinn út 11. desember. Nýr forstjóri mun taka við af Árna Snorrasyni hefur starfað sem forstjóri Veðurstofu Íslands frá 2010 við gott orðspor. Umsækjendur eru: Fannar Karvel Steindórsson, framkvæmdastjóri Haraldur Ólafsson, prófessor Hildigunnur Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Ingvar Kristinsson, framkvæmdastjóri athugunar- og upplýsingatæknisviðs...
InnlentStjörnu-Sævar bendir á möguleikann á einstöku sjónarspili Sævar Helgi Bragason eða Stjörnu-Sævar eins og hann er oft kallaður bendir fylgjendum sínum að líta til bæði himins og jarðar, í nýrri fésbókarfærslu. Sævar bendir á að ef léttir til seinni partinn og/eða í kvöld megi búast við þreföldu sjónarspili; Glitskýi, eldgosi og norðurljósum. Á heimasíðu Veðurstofu Íslands hljómar spáin svoleiðis: „Vestan 8-13 m/s og él. Norðvestlægari síðdegis og...