„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
InnlentStjórnarformaður Íslandsbanka segir mikla vinnu framundan: „Traustið kemur ekki af sjálfu sér“ „Það er mikil vinna framundan hjá öllum deildum bankans. Traustið kemur ekki af sjálfu sér,“ segir Finnur Árnason, stjórnarformaður Íslandsbanka, í samtali við Mannlíf um tíðindi undanfarinna daga og brotthvarf Birnu Einarsdóttur bankastjóra sem kvaddi starfsfólk sitt í morgun eftir 30 ára starf í bankanum. Hluthafafundur verður haldinn í Íslandsbanka þann 28. júlí næstkomandi. Þar kemur í ljós hvort breytingar...
InnlentSéra Davíð tekur Jón Gunnarsson í nefið: „Það kostar minna en ekkert að taka á móti flóttafólki“ Davíð Þór Jónsson sóknarprestur í Laugarneskirkju skýtur nístingsfast í þá ráðamenn sem talað hafa um „flóttamannavandann“ en bæði Jón Gunnarsson fyrrverandi dómsmálaráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafa tala um þann meinta vanda. Í færslu á Facebook bendir séra Davíð Þór á þá staðreynd að meðalflóttamaður borgi upp þann kostnað sem hlýst af því að taka á móti honum, á tveimur...
InnlentSteinunn um mál Jakubs: „Manneskjan sjálf og náttúran er einskis virði gagnvart blindum hrokanum“ Mikil reiði er í samfélaginu eftir að sagt var frá því í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær að ungur öryrki, Jakub Polkowski standi eftir allslaus eftir að sýslumaðurinn á Suðurnesjum samþykkti nauðungasölu á einbýlishúsi Jakubs, sem hann hafði staðgreitt með bótum sem hann fékk eftir læknamistök sem gerð voru er hann var 13 ára. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leik- og sjónvarpskona er...
InnlentHelga Vala útilokar ekki sakamálarannsókn á bankasölunni: „Hún er ekki eini gerandinn í þessu máli“ Helga Vala Helgadóttir þingkona Samfylkingarinnar segir að Birna Einarsdóttir, fráfarandi bankastjóri Íslandsbanka, ekki sú eina seka í bankasölunni umdeildu. „Það kemur mér ekki á óvart að stjórn taki ákvörðun um að hún fari úr stóli bankastjóra. Það er auðvitað einn liður í því að reyna að koma í veg fyrir frekara tjón á bankanum, að gengi og virði bankans lækki....
InnlentÍbúi hringdi í áfalli á lögreglu eftir óhugnalegt atvik Lögregla var kölluð út í tvígang með stuttu millibili í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Í fyrra skiptið hafði lögregla afskipti af mönnum vegna slagsmála og verður annar þeirra kærður fyrir vopnalagabrot. Í seinna skiptið var tilkynnt um átök í heimahúsi. Lögregla fór á vettvang til þess að tryggja ástand og verður einn kærður fyrir líkamsárás og eignaspjöll. Auk þess verða...
InnlentBirna hætti sem bankastjóri í nótt: „Umræðan óvægin og ýmsum hefur verið tíðrætt um afsögn mína“ „Ég hef ákveðið að stíga til hliðar sem bankastjóri Íslandsbanka með hagsmuni bankans að leiðarljósi svo ró geti myndast vegna sáttar Íslandsbanka við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands,“ segir í yfirlýsingu Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, sem sendi í nótt yfirlýsingu um starfslok sín í kjölfar alvarlegra lögbrota starfsmanna bankans við sölu hlutabréfa. Fjármálastjóri bankans, Jón Guðni Ómarsson tekur við stöðu bankastjóra. Afsögnin...
InnlentHringiður í mannhafi dauðans: Níu krömdust til bana á Hróarskeldu árið 2000 Fyrir 23 árum síðan, þann 30. júní árið 2000, gerðust þeir voflegu atburðir að níu manns krömdust til bana og 26 manns slösuðust til viðbótar á Hróarskelduhátíðinni þegar Bandaríska gruggsveitin Pearl Jam kom fram á appelsínugula sviðinu. Allir hinir látnu voru karlmenn á aldrinum 17 til 26 ára en auk þeirra slösuðust tveir mjög alvarlega. Greinarhöfundur, ásamt fjölmörgum Íslendingum, var...
InnlentÍslandsbanki hríðfellur í Kauphöllinni – Bjarni ætlar ekki að axla ábyrgð Viðskiptablaðið greinir frá því í dag að hlutabréf Íslandsbanka hafi lækkað um 3,51 prósent við lokun Kauphallarinnar í dag en þetta kemur ofan á tæplega 3 prósent lækkun gærdagsins. Hlutabréfaverð bankans standi nú í 110 krónum á hlut en hafi staðið í 117 krónum fyrir helgi. Gengi bankans hefur því lækkað umtalsvert í kjölfar sáttar Íslandsbanka og FME um tæplega...
InnlentMikinn reyk leggur frá eldi sem er kominn upp í Blesugróf Þessa stundina eru viðbragðsaðilar að kljást við eld sem kviknaði í húsnæði við Blesugróf 25. Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu biður fólk að halda sig frá eldstað til að tryggja aðkomu viðbragðsaðila til- og frá vettvangi auk þess að tryggja lögreglu og slökkviliði vinnufrið. Mikinn reyk leggur frá eldstað og lögreglan fer þess á leit við nágranna að loka gluggum.
InnlentLögreglan leitar að 46 ára karlmanni: „Tomasz er ekki talinn hættulegur“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Tomasz Miastkowski, 46 ára, frá Póllandi, en fyrir liggur staðfest ákvörðun um að verða við beiðni um afhendingu á honum til Póllands á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar.Tomasz er ekki talinn hættulegur. Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í...
InnlentGlúmur hneykslast á svörum bankastjóra: „Þetta er mesta bullshit ræða sem upp var fundin“ Glúmur Baldvinsson hneykslast á forstjórum íslenskra fyrirtækja og segir þá fara með sömu kjaftæðisræðuna, þegar þeir hafa klúðrað málunum. Forsetaframbjóðandinn fyrrverandi, Glúmur er orðheppinn með eindæmum en í nýrri færslu á Facebook pirrar hann sig á stöðluðu svari sem hann segir forstjóra íslenskra fyrirtækja koma með eftir að hafa klúðrar málunum. „Þetta er mesta bullshit ræða sem upp var fundin,“...
InnlentKristrún fundaði með forsætisráðherra Noregs: „Jonas hvatti mig til að halda mínu striki“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar fundaði með forsætisráðherra Noregs þar sem þau ræddu leiðina frá stjórnarandstöðu til ríkisstjórnar. Kristrún, sem nú fer með himinskautum með flokki sínum í skoðanakönnunum en Samfylkingin er stærsti flokkur landsins samkvæmt þeim könnunum, birti færslu á Facebook þar sem hún segir frá spjalli sínu við Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra og formann Verkamannaflokksins í Noregi. Er þetta...