„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
InnlentGlúmur um fundinn: „NATO Kata tekur brosandi á móti þeim – ógnin er kjarnorkustríð“ Glúmur Baldvinsson er skeleggur samfélagsrýnir sem kann betur en flestir að munda pennann. Segir: „Það er dáldið skondið að allir þeir leiðtogar Vesturlanda sem reyna að hræða líftóruna úr öllum almenningi allra landa vegna loftslagsbreytinga af manna völdum lendi hér á einkaþotum. Og keyri um á brynvörðum svörtum CO2 eldspúandi bláblikkandi trukkum.“ Katrín Jakobsdóttir. Hann segir að þetta sýni „bara...
InnlentGeðshræðing Stefáns: „Á löngum köflum vissi ég allt um gjaldþrotalöggjöf fyrirtækja í Englandi“ Sagnfræðingurinn og bjóristinn Stefán Pálsson hefur um áratugaskeið haldið með Luton Town í enska boltanum. Hann fagnar: „Jahérna… Það að binda tilfinningar sínar við íþróttafélag í öðrum löndum tekur stundum á sig skrítnar myndir. Eftir fjörutíu ár af tilfinningalegri sambúð við Luton Town hef ég upplifað allan skalann af tilfinningum. Oft og lengi ósigra og niðurlægingu. Á löngum köflum vissi...
InnlentTekið að hitna í kolunum og kortunum – Hitinn gæti farið í tæp tuttugu stig Það er að hitna í kolunum og kortunum; hiti verður allt að 17 stigum norðaustanlands í dag; suðvestan gola eða kaldi; smáskúrir á víð og dreif; þurrt og bjart á Norðaustur- og Austurlandi. Svo fer að rigna í kvöld suðvestanlands; á morgun er spáð sunnan og suðaustan 8 til 13 metrum á sekúndu með rigningu víða. En hiti er hiti...
InnlentÞór tæklaði Líf: „Halda ekki vatni yfir því að fá að snerta fasista“ Fyrrum alþingismaðurinn Þór Saari er ekki ánægður með forsætisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, og segir að þar hafi verið „fagnaðarfundir Katrínar Jak. og fasistans Giorgiu Meloni. Svona er nú komið fyrir „Vinstri-grænum“ og íslenskum forsætisráðherra. Halda ekki vatni yfir því að fá að snerta fasista.“ Bætir við: „Það má rekja Bræðralag Ítalíu beint til fasistaflokks Mussólíní, í gegnum nafnbreytingar og sameiningar. Svei...
InnlentSólveig Anna rífur leiðtogafundinn í sig: „Það er hátt risið á hundaskítnum“ „Í tilefni leiðtogafundar sendi ég heitar baráttukveðjur til alþýðu þeirra landa sem sjálfs-upphafningarnir sem að nú kom saman í Reykjavík stýra.“ Svo byrjar langur reiðilestur Sólveigar Önnu Jónsdóttur verkalýðshetju Eflingar á Facebook í dag. Þar fer hún afar hörðum orðum yfir ýmsa stjórnmálahópa á Íslandi en hún kallar þá meðal annars narsissista. Sólveig hét áfram: „Ég óska þess að þau...
InnlentVill minna þjóðarleiðtogana á Julian Assange: „Eini pólitíski fanginn í Bretlandi“ Kristinn Hrafnsson vill minna þjóðarleiðtoga Evrópuráðsins á fangelsun blaðamanna í Evrópuríkjum. Bendir hann sérstaklega á að í Bretlandi sitji einn blaðamaður sem pólitískur fangi. Í færslu ritstjóra Wikileaks segir hann hafa heimsótt Julian Assange í fangelsið Belmarsh í Bretlandi þar sem hann hefur mátt dúsa í fjögur ár fyrir að birta gögn um stríðsglæpi Bandaríkjajhers í stríðinu í Írak. Færsla...
InnlentÁslaug Arna: „Virkilega ánægjulegt að sjá þetta unga fólk að læra þessa mikilvægu iðn“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir kynnti sér Kvikmyndaskóla Íslands og var hæst ánægð með starfið sem þar fer fram. Ráðherra háskóla-, iðnaðarmála og nýsköpunar, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, kom í heimsókn í Kvikmyndaskóla Íslands í gær, mánudaginn 15.maí, til að kynna sér starfsemina. En það eru liðin þrjú og hálft ár síðan Kvikmyndaskóli Íslands sótti formlega um að færast upp á háskólastig og...
Innlent„Súrrealísk“ stemmning í miðborginni: „Manni líður aldrei vel í kringum vopn“ Hvert sem litið er í miðborg Reykjavíkur má sjá þungvopnaða lögreglumenn og merkta og ómerkta lögreglubíla, vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins sem haldinn er í dag og á morgun. Þá eru leyniskyttur á þaki Hörpu og Seðlabankanum. Léleg ljósmynd af leyniskyttum á toppi Seðlabankans.Mynd: Björgvin Gunnarsson Mannlíf skoðaði stemmninguna í miðborg Reykjavíkur í dag en verður henni varla betur lýst en sem...
InnlentÁrásir á íslenskar stofnanir vegna leiðtogafundar: „Verið að reyna að trufla“ Leiðtogafundur Evrópuráðsins verður haldinn í dag og á morgun en hann er sá fjórði í sögu ráðsins. Síðast var slíkur fundur haldinn árið 2004. Þungamiðja umræðunnar á leiðtogafundinum er innrás Rússa í Úkraínu. Hópur sem kallar sig NoName057 sérhæfir sig í tölvuárásum en þeir eru opinberlega hliðhollir Rússum. Hópurinn stóð fyrir netárásum á nokkra hýsingaraðila. Annars vegar með því að...
InnlentMinna magn hærra verð – Ora vinnur ekki gegn matarsóun „Er ekki eitthvað öfugsnúið við að minni dósin sé dýrari en sú stærri?“segir Sædís inn á grúppunni Vertu á verði á Facebook. Þar er átt við Ora maískorn í Hagkaup en þar kostar 1/4 dós 349 krónur en 1/2 dós 329 krónur. Minni dósin er dýrari. Mannlíf kannaði einnig verð á sömu vöru í öðrum verslunum. Hjá Nettó kostar 1/4...
InnlentTveimur knattspyrnudómurum hótað lífláti: „Þetta er fyrir neðan allar hellur og með öllu ólíðandi“ KSÍ sendi frá sér yfirlýsingu þar sem fólk er beðið um að sýna stillingu í kjölfarið á því að tveimur dómurum hefur verið hótað lífláti á undanfarið. Svo segir í yfirlýsingu KSí að of margir telji sig hafa rétt til þess að tala á slæman hátt um dómara. „Að vera dómari í fótbolta er mikilvægt starf og knattspyrnuíþróttin getur ekki...
InnlentSofia var jarðsett í fyrradag: „Megir þú hvíla í friði og megi sannleikurinn koma í ljós“ „Í gær söfnuðust meira en 200 manns sem voru fjölskylda, vinir , frænkur , vinnufélagar og guðbörnin við jarðarför Sofia Kolesnikova.“ Svona hófst færsla Völdu Nicolu, systur Sofiu Kolesnkikova, sem fannst látin í heimahúsi á Selfossi í lok apríl. Einn maður situr enn í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Valda Nicola gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta færslu sína. „Ég vaknaði...