Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Tveimur knattspyrnudómurum hótað lífláti: „Þetta er fyrir neðan allar hellur og með öllu ólíðandi“

Vanda Sigurgeirsdóttir er formaður KSÍ
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir er for­maður KSÍ

KSÍ sendi frá sér yfir­lýs­ingu þar sem fólk er beðið um að sýna still­ingu í kjöl­farið á því að tveimur dóm­urum hefur verið hótað líf­láti á und­an­farið.

Svo segir í yfir­lýs­ingu KSí að of margir telji sig hafa rétt til þess að tala á slæman hátt um dóm­ara.

„Að vera dóm­ari í fót­bolta er mik­il­vægt starf og knatt­spyrnu­í­þróttin getur ekki verið án dóm­ara. Nýliðun í félög­unum gengur mis­vel og það er mikil áskorun fyrir knatt­spyrnu­hreyf­ing­una að fjölga dóm­urum. Þessi áskorun er ekki bundin við fót­bolt­ann – aðrar íþrótta­greinar eru líka að takast á við hana, enda er það því miður þannig að alltof margir ein­stak­lingar telja sig hafa rétt á því að sýna nei­kvæða hegðun í garð dóm­ara vegna þeirra starfa,“ segir í áður­nefndri yfir­lýs­ingu KSÍ.

Hótanir um líf­lát hafa borist sam­band­inu:

„KSÍ vill vekja athygli á því að á síð­ustu vikum hefur tveimur dóm­urum sem dæma leiki í mótum meist­ara­flokka á vegum KSÍ borist líf­láts­hót­anir.“

KSÍ segir að hót­anir eins og þessar fari langt yfir strikið:

„Þetta er fyrir neðan allar hellur og með öllu ólíð­andi, og skiptir engu hvort um er að ræða barna­skap og meint grín, eða hreina og klára til­raun til lík­ams­árásar. Neikvæð hegðun í garð dóm­ara á fót­bolta­leikjum – eða ýmsum öðrum íþróttum – er ekki ný af nál­inni. Ógnanir og hót­anir eru aug­ljós­lega langt yfir strikið en þegar ekki er tekið á nei­kvæðri hegðun og gripið inn í, þá stig­magn­ast hún. Ábyrgðin er vissu­lega þess sem hagar sér með þessum hætti, en með sam­hentu átaki geta allir þátt­tak­endur leiks­ins unnið bug á þess­ari mein­semd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas