InnlentSema Erla um atburð næturinnar: „Svona fara íslensk stjórnvöld með fatlað flóttafólk“ Óhætt er að segja að samfélagið logi eftir að fregnir bárust af handtöku fimm manna fjölskyldu frá Írak en í henni er einn fatlaður einstaklingur í hjólastól. Voru þau send til Grikklands þar sem fátt bíður þeirra nema gatan. Sema Erla Serdar, stofnandi Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi skrifaði pistil um málið á Instagram. „Svona fara íslensk...
InnlentHeiðar birtir bréfið: „Var eitthvað við störf lögreglu sem ekki þolir dagsins ljós?“ Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri RÚV, ætlar bersýnilega ekki að taka því sitjandi ef lögreglan ætlar að grafa undan fjölmiðlum og upplýsingafresli á Íslandi. Fyrr í dag var greint frá því að lögreglan hafi krafist þess að komið yrði í veg fyrir myndatökur af lögregluaðgerð á Keflavíkurflugvelli í nótt, þar sem fimmtán hælisleitendum var vísað úr landi. Heiðar segist á Facebook...
InnlentSpádómur dagsins: Mun Katrín segja þetta í kvöld? Margir virðast hafa fengið sig fullsadda af því hvernig Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra harmar eigin ákvarðarnir. Í það minnsta eru nokkur dæmi um að sama dag og ríkisstjórnin tilkynnir eitthvað umdeilt, þá sé Katrín mætt í sjónvarpsfréttir og láti eins og móðir óþekktaorma. Hún harmi gjörðir þeirra og muni skamma þá. Þórunn Ólafsdóttir, baráttukona í málefnum flóttamanna, spáir því að landsmenn...
InnlentJón birtir yfirlýsingu og segist ekki hafa hótað henni – Öll spjót beinast að Jóni í dag Jón Gunnarsson innanríkisráðherra er ekki að eiga mjög góðan dag, má vænta, en öll spjót beinast að honum nú. Á samfélagsmiðlum er honum úthúðað fyrir brottvísun flóttamanna í nótt en það sem verra er fyrir hann, þá er sumir Sjálfstæðismenn einnig ósáttir við hann. Þar á meðal er Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi, en hún segir hann hafa...
InnlentSteinunn um aðkomu Mast að hrossaníðsmálinu:„Gera vesalingana nógu horaða. Hægt að drepa á staðnum“ Steinunn Árnadóttir, hestakona og organisti segir það ósatt að Mast hafi komið skjótt að málum í hestaníðingsmálinu í Borgarnesi. Steinunn ÁrnadóttirMynd: Aðsend Þessu heldur Steinunn fram í nýlegri Facebook-færslu en hún er sú sem kom upp um níðingsverk eigenda hrossanna í sumar. Síðan þá hefur hún verið dugleg að minna á málið og segja frá frekari níð sem virðist viðgangast...
InnlentBragi Páll æfur út í Jón Gunnarsson: „Ég sé þig, siðblinda rolan þín. Farðu í rassgat, aumingi“ Bragi Páll Sigurðarson rithöfundur er síður en svo sáttur við aðgerðir lögreglunnar í nótt þar sem fimm manna fjölskylda frá Írak var handtekin og send með flugi til Grikklands þar sem ekkert bíður þeirra nema strætið. Bragi Páll er mjög ósáttur við aðferðir dómsmálaráðherrans, Jón Gunnarsson, líkt og margir ef marka má Twitter en rithöfundurinn var afar orðhvass í færslu...
InnlentLögregla tók leikfangabyssur úr umferð – Stærðarinnar unglinga partý í Hlíðunum Lögreglu barst tilkynning í gærkvöldi um bifreið með hópi manna að veifa skotvopni. Skömmu síðar fann lögregla bifreiðina og gaf stöðvunarmerki. Við leit í bifreiðinni fundust fjórar leikfangabyssur sem voru handlagðar af lögreglu. Skömmu síðar reyndi aðili í annarlegu ástandi að komst inn í bílskúr. Endaði það með því að þurfti að fjarlæga manninn af vettvangi. Brotist var inn í...
InnlentBörnin sem fæddust í sjúkrabílunum – „Þetta gerðist svo hratt – svo var þetta bara búið“ Þau eru fjölmörg íslensku börnin sem hafa legið svo á að komast í heiminn að þau fæddust í sjúkrabílnum á leiðinni á spítalann. Fyrsta barn þessa árs fæddist til að mynda í sjúkrabíl á leið frá Dalvík til Akureyrar klukkan 00:23 á nýársnótt og var það stúlkubarn sem vó 14 merkur. Foreldrar ungu stúlkunnar, þau Elfa Sif Kristjánsdóttir og Ásgeir...
InnlentLeiðrétting: Elín starfar enn sem ritstjóri Fréttavaktarinnar Ranghermt var í frétt Mannlífs á þriðjudag um uppsagnir á fjölmiðlafyritækinu Torgi, að Elínu Hirst, ritstjóra Fréttavaktarinnar, hafi verið sagt upp störfum. – Elín er hér með beðin afsökunar á þessum mistökum og því ónæði sem þau kunna að hafa valdið.
InnlentMYNDAND – Inga varð orðlaus í Costco: „Ooiojjjjj. Allt morandi í lífi!!“ Ingu Rósu nokkurri brá heldur betur í brún þegar hún kom heim til sín með pastapakkningu úr Costco. Pakkningin reyndist vera full af bjöllum og segir hún að verslunin hafi neitað sér um skaðabætur vegna vörunnar. Inga segir frá upplifuninni í fjölmennu samfélagi Costco-unnenda á Facebook. Þar segir hún: „Vonbrigði dagsins fá Costco fyrir að bjóða ekki upp á neinar...
InnlentInga var um borð í Goðafossi þegar kviknaði í: „Eldurinn stóð nokkra metra upp“ „Það kviknaði í skorsteininum. Það var svipað og gerðist nokkrum árum áður,“ segir Inga Fanney Egilsdóttir stýrimaður í viðtali við Reyni Traustason um það þegar hún var að vinna um borð í Goðafossi og það kviknaði í. Hún var þá annar stýrimaður. „Það var skítabræla eins og alltaf þegar eitthvað leiðinlegt gerist. Við vorum á leiðinni til Íslands og það...
InnlentBjörn segir íslenskan milljónamæring traðka á fólki: „Satt að segja finnst mér það ógeðslegt“ Samfélagsrýnirinn úr Grindavík, Björn Birgisson, segir það afskaplega sérkennilegt að framkvæmdastjóri SA, Samtaka atvinnulífsins, sé með 4,5 milljónir króna í mánaðarlaun, á sama tíma og hann traðki á þúsundum íslenskra launþega í landinu. „Satt að segja finnst mér það ógeðslegt,“ segir Björn. Halldór Benjamín Þorbergsson Í nýjum pistli sínum á Facebook fer Björn yfir það hvað það er sem honum...