Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Heiðar birtir bréfið: „Var eitthvað við störf lögreglu sem ekki þolir dagsins ljós?“

Heiðar Örn Sigurfinnsson, frétta­stjóri RÚV, ætlar bersýni­lega ekki að taka því sitjandi ef lögreglan ætlar að grafa undan fjöl­miðlum og upplýsingafresli á Íslandi. Fyrr í dag var greint frá því að lögreglan hafi krafist þess að komið yrði í veg fyrir mynda­tökur af lögreglu­aðgerð á Kefla­víkur­flugvelli í nótt, þar sem fimmtán hælis­leitendum var vísað úr landi. Heiðar segist á Facebook hafa sent bréf til Ríkis­lögreglu­stjóra vegna málsins.

Heiðar bendir meðal annars á það að ekki verði komist hjá því að álykta að það sem gerðist í nótt á Kefla­víkur­flugvelli þoli ekki dagsins ljós. Hér fyrir neðan má lesa bréf Heiðars til ríkis­lögreglu­stjóra:

„Stoðdeild Ríkis­lögreglu­stjóra fylgdi brott­vísuðum hælis­leitendum út á Kefla­víkur­flugvöll í nótt en yfir­vofandi brott­flutningur hafði verið frétta­efni. Við þessa aðgerð fékk lögregla aðstoð starfs­fólks ISAVIA sem segist hafa fengið skipanir frá lögreglu um að koma í veg fyrir mynda­tökur á staðnum. Frétta­teymi RÚV var á staðnum, utan girðingar, og fékk ekki að sinna sínum störfum þar sem starfs­menn ISAVIA fylgdu fyrir­mælum lögreglunnar og skemmdu upptökurnar. Ég lít þetta að sjálfsögðu mjög alvarlegum augum enda man ég ekki eftir grófari dæmum um aðgerðir lögreglu gegn fjölmiðla­fólki að stöfum í seinni tíð. All nokkrar spurningar vakna af þessu tilefni:

1) Hvers vegna vildi lögregla ekki láta taka myndir af aðgerðinni, var eitthvað við störf lögreglu sem ekki þolir dagsins ljós?

2) Á grund­velli hvaða heimilda fyrir­skipaði lögregla að koma yrði í veg fyrir að fjöl­miðlar gætu unnið sína vinnu?

3) Hver tók ákvörðun um að koma yrði í veg fyrir mynda­tökur á staðnum?

4) Er þetta til marks um breytta stefnu í samskiptum embættisins við fjölmiðla?

5) Hvernig skilgreinir þú ríki þar sem lögregla beitir aðferðum sem þessum til að koma í veg fyrir að fjöl­miðlar sinni sínu lýðræðis­lega hlutverki, nefnilega frétta­flutningi og eðlilegu aðhaldi við stjórn­völd?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning