Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Jón birtir yfirlýsingu og segist ekki hafa hótað henni – Öll spjót beinast að Jóni í dag

Jón Gunnarsson
Jón Gunn­ars­son Mynd: Rúv-skjáskot

Jón Gunnarsson innan­ríkis­ráðherra er ekki að eiga mjög góðan dag, má vænta, en öll spjót beinast að honum nú. Á samfélags­miðlum er honum úthúðað fyrir brott­vísun flótta­manna í nótt en það sem verra er fyrir hann, þá er sumir Sjálfstæðis­menn einnig ósáttir við hann. Þar á meðal er Unnur Berglind Friðriks­dóttir, formaður Sjálfstæðis­félagsins í Kópavogi, en hún segir hann hafa hótað sér.

Hér fyrir neðan má lesa yfir­lýsingu hans.

Í tilefni af fréttum sem hafa birst í dag um aðkomu mína að vali á landsfundar­fulltrúum í Kópavogi vil ég taka eftir­farandi fram:

Allt þetta mál snýst um 4. tölul. 9. gr í lögum Sjálfstæðis­flokksins en þar segir m.a.:

„Kosning landsfundar­fulltrúa skal ávallt fara fram á almennum fulltrúa­ráðs- eða félags­fundum og skal kosninganna getið í fundar­boði”.

Í því sveitar­félagi sem ég bý, Kópavogi, var komin upp alvarleg staða við val á landsfundar­fulltrúum. Í stað þess að sjálfstæðis­félögin í Kópavogi hefðu haldið félags­fundi til þess að staðfesta val sitt á fulltrúum, eins og ber að gera samkvæmt lögum flokksins, þá samþykkti stjórn fulltrúa­ráðsins í Kópavogi listana. Að loknum stjórnar­fundi þess ágæta ráðs, en áður en listinn var sendur til skrif­stofu Valhallar, var þó fjölda aðila einhliða bætt á listann án þess að það hefði verið borið undir stjórn eða félags­fund. Ekki þarf að fjölyrða um lögmæti þessara vinnu­bragða.

Í ljósi þessara vinnu­bragða var hætta á því að allur listi landsfundar­fulltrúa frá Kópavogi yrði úrskurðaður ógildur af kjörbréfa­nefnd lands­fundar. Sú niður­staða hefði leitt til þess að það harðduglega fólk sem myndar gras­rótina í flokks­starfinu í Kópavogi hefði ekki fengið að taka þátt á Lands­fundi. Ég og margir aðrir í flokks­starfinu í Kópavogi, þ.m.t. stjórnar­menn í sjálfstæðis­félögunum og fulltrúa­ráðinu – hvöttum því bæði formann Sjálfstæðis­félagsins og formann fulltrúa­ráðsins í Kópavogi til að halda þar til bæra fundi til að afgreiða lögmæta lista. Þannig væri hægt að tryggja breiða og lýðræðis­lega aðkomu Kópa­vogsbúa að lands­fundinum. Í mínum huga hefði það verið óhugsanlegt að halda landsfund án þess að eitt stærsta sveitar­félag landsins hefði sína fulltrúa á þar.

Kjörbréfa­nefnd var skipuð lögmönnum beggja fram­bjóðenda og oddamanni, Brynjari Níelssyni, sem báðir fram­bjóðendur samþykktu. Eftir fundi hennar með formönnum félaganna í Kópavogi náðist niður­staða i málinu.

Ég hafna því eindregið að hafa beitt nokkurn mann hótunum í tengslum við framan­greint. Ég átti eitt stutt símtal við formann Sjálfstæðis­félagsins í Kópavogi sunnu­daginn 30. október þar sem ég benti henni á ólögmæti listanna. Ég lýsti áhyggjum mínum af því að ef ekki yrði brugðist við væri hætta á að fáir hefðu heimild til setu á lands­fundi fyrir hönd Kópavogs.

Mikilvægt er að nefna að stjórnir Týs félags ungra Sjálfstæðis­manna og Edda félag sjálfstæðis­kvenna í Kópavogi boðuðu til félags­funda, þegar þeim var vandinn ljós, og gengu formlega frá vali sinna fulltrúa.

Lýðræðisleg vinnu­brögð eru hornsteinn öflugs flokks­starfs og ég mun ætíð beita mér fyrir slíkum vinnu­brögðum. Að blanda saman stöðu minni sem dómsmála­ráðherra og því að ég sé í símtölum við flokks­menn að tala fyrir kjöri formanns, sem ég styð, dæmir sig sjálft.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning