InnlentHarmafregn: Svavar Pétur er látinn Tónlistarmaðurinn Svavar Pétur Eysteinsson er látinn eftir nokkurra ára baráttu við krabbamein. Þetta kemur fram í tilkynningu frá eiginkonu hans, Berglindi Hasler. „Svavar Pétur var stoltur Breiðhyltingur. Gekk í Hólabrekkuskóla og Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Svavar Pétur var menntaður grafískur hönnuður og ljósmyndari en er þekktastur sem tónlistarmaður og textahöfundur. Hann spilaði meðal annars með hljómsveitunum Múldýrinu, Rúnk og Skakkamanage, en...
InnlentRíkislögreglustjóri segir sig frá hryðjuverkamálinu – Fleiri verið handteknir undanfarið – MYNDIR Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hefur sagt sig frá rannsókn á meintri skipulagningu hryðjuverka. Ástæðan er sú að ættingi hennar tengist málinu á einhvern hátt. Koma þetta fram hjá Sveini Ingibergi Magnússyni yfirlögregluþjóns hjá héraðssaksóknara, á fréttamannafundi lögreglu síðdegis. Lögreglan hélt mjög að sér upplýsingum um málið á fundinum og það átti einnig við um ættingja Sigríðar en hvort kom fram...
InnlentVilhjálmur segir svigrúm til veglegra launahækkana: „Allt tal um annað er innantómt kjaftæði“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, segir ljóst að mikið svigrúm sé til launahækkana í aðdraganda kjarasamninga á næstunni. Hann vísar í frétt Vísis þar sem greint er frá því að innlán íslenskra fyrirtækja hjá bönkum sjalda eða aldrei verið meiri. Allt tal um svigrúm sé því þvæla. „Eins og alltaf í aðdraganda kjarasamninga á hinum almenna vinnumarkaði ómar...
InnlentSjálfstæðisflokkurinn stundaði sömu kosningasvindl og Rússar nú: „Síðar verðlaunaður með embætti“ Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrverandi prófessor í íslensku, bendir á Facebook á það að ekki sé langt síðan Sjálfstæðisflokkurinn framdi nákvæmlega sömu kosningasvik og Rússar er sagðir stunda núna. Þar er ríkisstjóri Lúhansk sagður hafa neytt fólk út úr húsum sínum til að kjósa. BBC fullyrðir og hefur eftir rússneskum fjölmiðlum að gengið verði með kjörkassa í hús til að láta fólk...
InnlentÓþokkar á Yaris réðust á hjólreiðafólk við Þingvelli – María: „Ég gjörsamlega trylltist af hræðslu“ „Ég talaði við vin minn hjá lögreglunni, en ég hef oft unnið með lögreglunni í sambandi við umferðamál hjólreiða og slíkt. En hann sagði mér að þetta væri hrein og bein líkamsárás sem við þyrftum að kæra, sem við svo gerðum. Drengurinn var kallaður í yfirheyrslu og mætti með pabba sínum sem var skráður eigandi bílsins, það fór svo að...
InnlentEgill þakkar konunni á bak við tjöldin: „Ragga á að fá sérstök heiðursverðlaun“ Egill Helgason fjölmiðlamaður þakkar Ragnheiði Thorsteinsson kærlega fyrir samstarfið á Facebook. Ragnheiður er svokallaður pródúsent á RÚV og hefur því bak við tjöldin haft talsverð áhrif á íslenska þáttagerð. Egill segir hana ósungna hetju. „Þetta er hún Ragnheiður Thorsteinsson eða Ragga Thorst. Hún er samstarfskona mín til margra ára. Ragga á ef eitthvað er meira í þáttum eins og Bæir...
InnlentPirraði nágranna með tónlist í botni – Þjófur braust inn á heimili en gleymdi þýfinu Lögreglunni barst tilkynning um að brotist hafi verið inn á heimili í Reykjavík í gærkvöldi. Þjófurinn ákvað hinsvegar að skilja þýfið eftir á vettvangi. Síðar um kvöldið varð lögregla vör við heldur undarlegt aksturslag. Þegar athugað var með ástand ökumannsins kom í ljós að hann var undir áhrifum áfengis. Pirraður nágranni tilkynnti hávaða vegna tónlistar til lögreglu í gærkvöldi. Þegar...
InnlentKeflavíkurflugvöllur lokaður vegna sprengjuhótunar Fram kom rétt í þessu á mbl.is að allri umferð hafi verið frestað til og frá flugvellinum í Keflavík vegna sprengjuhótunar. Samkvæmt mbl.is var bara rétt í þessu að lenda fraktflugvél á Keflavíkurflugvelli sökum sprengjuhótunar í vélinni. Þar með hefur allri umferð til og frá flugvellinum verið lokað; en þetta staðfesti Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum í samtali við mbl.is....
InnlentMelkorka afhjúpar typpamyndaperrana á Instagram: „Stelpum finnst þetta náttúrulega ógeðslegt“ Melkorka Torfadóttir, fitnesstjarna og hárgreiðslukona, hefur fengið algjörlega nóg af óumbeðnum typpamyndasendingum, sem henni berast stundum daglega. Til að berjast gegn perrunum hefur hún ákveðið að afhjúpa þá á Instagram. „Ég fékk slíkar myndir mjög oft, óeðlilega oft. Þetta var nánast upp á hvern dag þegar ég var ljóshærð,“ segir Melkorka í samtali við DV. Eftir að hún litaði hárið...
InnlentMYNDIR – Kóresk farþegaþota rakst á vél Icelandair á Heathrow – 70 nemendur Versló um borð Kóresk farþegaþota rakst utan í Boeing 767 farþegavél Icelandair nú í kvöld þegar báðar vélarnar voru leið að flugstöðvarbyggingunni á Heathrow flugvelli. Skemmdir urðu á íslensku farþegavélinni við áreksturinn og neyðarsveitir flugvallarins ræstar út vegna atviksins. Frá þessu er greint í Dailymail en áreksturinn átti sér stað um klukkan 20 í kvöld. Enginn slasaðist í árekstrinum. Ljóst er að einhverjar...
InnlentHrottalegt morð á Smiðjuvegi: „Ég var að þvo blóð af höndum mér“ Það var þann 14.mars 1985 þegar maður fannst látinn á kaffistofugólfinu á trésmíðaverkstæði við Smiðjuveg. Kom strax upp sá grunur að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Sá látni hét Jósef Liljendal Sigurðsson og var 29 ára gamall. Síðdegis sama dag handtók lögreglan 19 ára gamlan pilt sem grunaður var um ódæðið. „Samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarlögreglunni hefur hann játað...
InnlentMYNDBÖND – Gífurlegt eignatjón í Egilsstaðabruna – Íbúar beðnir að sofa með lokaða glugga Gríðarmikill eldur kviknaði í þvottahúsi Vasks á Egilsstöðum um klukkan 16:20 síðdegis í dag. Slökkvilið og aðrir viðbragðsaðilar mættu fljótt á staðinn og fljótlega var ljóst að fólk væri ekki í hættu. Mikinn reyk bar frá staðnum til norðurs og voru nágrannar fljótt beðnir um að loka gluggum og hvatt til að vera ekki á ferðinni í nágrenni brunans því...