Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hrottalegt morð á Smiðjuvegi: „Ég var að þvo blóð af höndum mér“

Mynd úr myndabanka
Mynd úr mynda­banka

Það var þann 14.mars 1985 þegar maður fannst látinn á kaffi­stofu­gólfinu á trésmíða­verkstæði við Smiðjuveg. Kom strax upp sá grunur að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Sá látni hét Jósef Liljendal Sigurðsson og var 29 ára gamall. Síðdegis sama dag handtók lögreglan 19 ára gamlan pilt sem grunaður var um ódæðið.

„Samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknar­lögreglunni hefur hann játað að hafa lent í rifrildi við hinn látna en segist ekki muna málsatvik nákvæmlega vegna ölvunar. Í morgun var lögð fram krafa um gæslu­varðhald yfir hinum grunaða til 1.júní.,“ segir í frétt DV þann 15. Mars 1985.

Gestur sem var að yfirgefa Smiðju­kaffi nóttina örlaga­ríku sagðist hafa fundið reykja­lykt en gátu önnur vitni í samtali við lögreglu ekki staðfest það. Það var þá þegar vaknaði grunur um að sá sem sagði frá lyktinni gæti hafa vitað meira. „Starfs­menn Smiðju­kaffis brutust inn í verk­stæðið og slökktu eldinn með hand­slökkvitækjum. Þá komu lögregla og slökkvilið fljótlega á vettvang. Fundu þeir Jósef liggjandi inni í kaffi­stofu og var hann látinn. Við nánari rannsókn kom í ljós að eldur hafði verið borinn að líkinu og á því voru stungu­áverkar eftir skrúfjám og áverkar eftir barsmíð. Í gærdag tók Rannsóknar­lögreglan skýrslu af gestinum sem tilkynnti um eldinn. Í fyrstu var hann ekki undir grun en fljótlega vaknaði sá grunur að hann ætti hlut að máli.,“ segir í frétt DV.

Tveimur dögum síðar hafði pilturinn játað á sig morðið á Jósef. Morðinginn hét Sigurður Adólf Frederiksen og hafði komið við sögu hjá lögreglunni áður þrátt fyrir ungan aldur. Var það við yfirheyrslu þann 15.mars er afdráttar­laus játning Sigurðar kom fram. Sagðist hann ekki geta gefið nánari lýsingu á því hvernig það bar að. Eftir rannsókn kom í ljós að Sigurður hafði verið sleginn margsinnis í höfuðið með járnröri og stunginn með skrúf­járni í maga og andlit. „Ég sá rautt, tók járnrör og sló hann og síðan man ég litið eftir mér fyrr en í Smiðju­kaffi þegar ég var að þvo blóð af höndum mér,“ sagði Sigurður í dóms­yfirheyrslum árið 1985, hálfu ári efftir morðið. Jósef lét eftir sig þrjú börn en Sigurður var dæmdur í 17 ára fangelsi.

„Ég sá rautt, tók járnrör og sló hann og síðan man ég litið eftir mér fyrr en í Smiðju­kaffi þegar ég var að þvo blóð af höndum mér,“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning