Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Óþokkar á Yaris réðust á hjólreiðafólk við Þingvelli – María: „Ég gjörsamlega trylltist af hræðslu“

Þessi mynd var tekinn stuttu áður en ósköpin dundu yfir fjölskylduna.
Þessi mynd var tek­inn stuttu áður en ósköpin dundu yfir fjöl­skyld­una.

„Ég talaði við vin minn hjá lögreglunni, en ég hef oft unnið með lögreglunni í sambandi við umferðamál hjólreiða og slíkt. En hann sagði mér að þetta væri hrein og bein líkams­árás sem við þyrftum að kæra, sem við svo gerðum. Drengurinn var kallaður í yfirheyrslu og mætti með pabba sínum sem var skráður eigandi bílsins, það fór svo að drengurinn sagðist hafa verið sofandi og viti ekki til þess að þetta hafi gerst. Nota bene, þá var hann ekki sofandi hann var að teygja úr sér fyrir utan bílinn nokkrum mínútum áður. Málið fór ekki lengra.“

Þetta segir María Ögn Guðmunds­dóttir, hjólreiðar­kona og sálfræðingur, í pistli sem hún birtir innan Facebook-hópsins Samgöngu­hjólreiðar en hún hefur einnig gefið Mannlíf góðfúslegt leyfi til að birta frásögn sína. Hún segir þar frá því þegar ungmenni á Yaris hafi ráðist á fjöl­skyldu sína þegar þau voru að hjóla við Þingvelli. Lögreglan gerði ekkert líkt og kemur fram hér fyrir ofan. Hér fyrir neðan má lesa pistil Maríu í heild sinni.

Ég hef hugsað mjög oft hvort ég ætti að segja frá þessarri lífs­reynslu minni og okkar, en hef bara ekki verið tilbúin til þess. Alltaf þegar það kemur upp núningur í garð hjólreiða­fólks þá hugsa ég til þessa dags.

Laugar­dagurinn 25 apríl 2020, fyrir hádegi, það var nýbúið að kynna okkur fyrir Covid, samgöngu­takmarkanir í gangi og lífið bara rólegt.

Ég, Hafsteinn og Elvar vinur okkar ákveðum að hjóla til Þingvalla, nýta tækifærð því það var engin ferðamannatraffík. Við hjólum til Þingvalla, Elvar hafði bakað hjónabands­sælu og tekið með sér því sjoppan var að sjálfsögðu lokuð, en það er mjög gömul hefð fyrir því að hjóla til Þingvalla og fá sér kaffi og heima­bakaða hjónabands­sælu (áður en nýjir rekstrar­aðilar tóku við).

Við hjólum svo til baka og erum komin rétt við bílastæði ofan við Almannagjá þegar ég sé þrjú ungmenni tvo stráka og eina stelpu stíga út úr hvítum Yaris og teygja úr sér, ég hugsaði oh en fallegt, vinirnir að taka rúnt snemma á þessum covid laugardags­morgni.

Þegar við nálgumst afleggjara að Grafning þá koma bílar fram úr okkur, fram að því hafði varla verið traffík á veginum, þarna koma þrír bílar, bíll fremst, svo Yaris og svo blár eða grænn Landcruiser. Hafsteinn hjólaði fremstur, ég fyrir aftan hann og Elvar var aðeins fyrir aftan okkur, en við öll út við hægri kant.

Það sem gerist þegar bílarnir fara fram úr okkur er að Yarisinn kemur algjör­lega allur inn á akgreinina okkar og einn strákurinn (í hvítri hettu­peysu) fer vel út um gluggann og slær Hafstein nokkrum sinnum í andlitið og öxlina með hvítri síma­hleðslu­snúru eða headphones, sem sagt ræðst bara á Hafstein, sem verður til þess að hann fipast allsvakalega, nær að halda sér á hjólinu en ég klessi með fram­dekkið í hjólið hans (það kom stórt bruna ”sár” á afturskiptinn hjá honum eftir dekkið mitt) sem verður til þess að ég missi jafnvægið, riða út um allt og er að detta í götuna í áttina að bílnum sem er fyrir aftan Yarisinn nema næ að setja vinstri fótinn út í loft og einhvernvegin svo ótrúlega næ að halda þannig jafn­væginu og í því ati snerti ég þennan græna landcruiser með fætinum í stað þess að lenda undir honum. Elvar sem var aðeins fyrir aftan okkur náði bílnúmerinu á Yarisnum, stoppaði og skrifaði það á símann sinn áður en hann myndi gleyma því. Við Hafsteinn náðum sem sagt bæði að bjarga okkur frá því að detta í götuna í þessu rugli, en það er bara af því að við erum bæði alveg rosalega góð á hjóli, íslands­meistarar og allur pakkinn.

Ég gjör­samlega trylltist af hræðslu þegar ég náði að átta mig á því hvað hefði gerst, strákarnir hringja strax í 112 og byðja um að lögreglan komi frá Mosó á móti Yarisnum á Mosfells­heiðinni og grípi bílinn, manneskjan í símanum tók símtalinu ekki alvarlega, gerði lítið úr og engin lögregla kom.

Ég titraði í langan tíma eftir þetta, var marga daga að jafna mig og er mögulega bara ekkert alveg búin að jafna mig. Ég tók þessu mjög persónu­lega, af hverju langaði þessum krökkum að ráðast svona á okkur, af hverju er svona mörgum ókunnugum illa við mig, vilja hreyta í mig og hata mig þegar ég er hjólandi María Ögn, en ókunnugum finnst María Ögn án hjálmsins hinsvegar bara vera frábær manneskja.

Ég fletti upp bílnumerinu og sá að viðkomandi átti heima í Árbænum, við Hafsteinn fórum á rúntinn um kvöldið, létum Hafrúnu Bríeti sofna í bílnum og fórum í Árbæinn, ætluðum að skera á dekkin á bílnum, við vorum svo reið og við höfðum bara þörf fyrir að gera eitthvað í reiðinni. Bíllinn var ekki heima þegar við komum á stæðið, við horfðum á hvort annað og sögðum ókeyókey við erum að verða 40 ára, með 3 ára barn sofandi í bílnum og ætluðum að skera á dekk á bíl í Árbænum…þroskað hummm. Þegar við vorum að snúa við þá mætum við bílnum, púlsinn á mér fór upp í 200, en við keyrðum í burtu og skárum aldrei á dekkin.

Ég talaði við vin minn hjá lögreglunni, en ég hef oft unnið með lögreglunni í sambandi við umferðamál hjólreiða og slíkt. En hann sagði mér að þetta væri hrein og bein líkams­árás sem við þyrftum að kæra, sem við svo gerðum. Drengurinn var kallaður í yfirheyrslu og mætti með pabba sínum sem var skráður eigandi bílsins, það fór svo að drengurinn sagðist hafa verið sofandi og viti ekki til þess að þetta hafi gerst. Nota bene, þá var hann ekki sofandi hann var að teygja úr sér fyrir utan bílinn nokkrum mínútum áður. Málið fór ekki lengra.

Hjólreiða­fólk hoppar ekki í það að skrifa endalausa leiðinda­pistla um alla þá neikvæðu upplifun sem fólk á reiðhjóli þarf að þola frá ókunnugum samborgurum á hverskyns stígum eða vegum. En það er aðallega af því að um leið og það kemur neikvæð umræða í fjöl­miðlum sama hvers eðlis eða hvaðan hún er sprottin þá finnum hjólreiða­fólk fyrir því í umhverfinu okkar, heiftin í garð hjólreiða­fólks ýfist í hjarta þeirra sem finnst við vera fyrir, óvelkomin. Vorin eru til dæmis sérstak­lega slæmur tími, en þá setur maður á sig skráp og tekur þetta á ennið.

Við erum samferða í þessu lífi, ef þú getur ómögulega sýnt náunganum í samfélaginu þínu umburða­lyndi, vertu þá bara heima hjá þér, pantaðu allt í heimsendingu og ekki fara út fyrir garðinn þinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning