MannlífiðLúxusbrauðterta með reyktum laxi7. júlí 2020 Brauðtertur eru sívinsælar og slá alltaf í gegn. Það er bara eitthvað við majónes og brauð sem fólki líkar. Svo eru þær líka svo fallegar og girnilegar. Hér er flott útfærsla á einni með reyktum laxi.
MannlífiðTrufluð túnfiskbrauðterta með nýju tvisti9. nóvember 2019 Túnfiskur er frábær tilbreyting frá rækjum og skinkum á brauðtertuna enda bæði bragðgóður og hollur.
MannlífiðMyndband: Skinkubrauðterta sem allir elska25. október 2019 Eflaust hefur það ekki farið fram hjá neinum að við á Gestgjafanum höfum verið í sannkölluðu brauðtertustuði undanfarnar vikur, enda gott að henda í brauðtertur til að hvíla kökuátið en kökublað Gestgjafans var einmitt að koma í verslanir. Þessi brauðterta er afar fersk og góð en samt nokkuð klassísk og því finnst eiginlega öllum hún góð. Brauðtertuna er afar auðvelt að gera eins og sést vel á myndbandinu sem fylgir með. Veði ykkur að góðu.
MannlífiðMyndband: Sælkerabrauðterta fyrir byrjendur og grænmetisætur18. október 2019 Brauðtertur eiga hug okkar allan þessa dagana enda fátt skemmtilegra en að henda í eins slíka til hátíðabrigða. Hér ákváðum við að skella í eina sem allir geta gert, byrjendur jafnt sem lengra komnir, en þó slær hún ekkert af í bragði. Brauðtertan hentar líka vel fyrir þá sem borða ekki kjöt eða fisk.
MannlífiðMyndband: Unaðsleg brauðterta með reyktum laxi og eplum3. október 2019 Brauðtertur eru afar vinsælar á Íslandi enda frábærar á veisluborð, í afmæli eða bara í föstudagskaffið í vinnunni. Möguleikarnir eru endalausir þegar kemur að útfærslum bæði á salatinu innan í brauðinu og skreytingunum og hver og einn getur fengið útrás fyrir sköpunarkraftinn í gegnum agúrkur, radísur og annað brauðtertuhráefni. Við hér á Gestgjafanum skelltum í eina afar gómsæta brauðtertu þar sem epli leika skemmtilegt hlutverk.
Innlent„Viljum sýna brauðtertunni þann heiður sem hún á skilinn“24. ágúst 2019 Miðbærinn mun iða af lífi um helgina á Menningarnótt Reykjavíkur og viðburðirnir vægast sagt fjölbreyttir. Einn þeirra er brauðtertukeppni og við spurðum Erlu Hlynsdóttur, annan forsprakka Facebook-hópsins Brauðtertufélag Erlu og Erlu, út í þennan einstaka viðburð.
InnlentFá „endalausar inngöngubeiðnir“ í brauðtertufélagið7. maí 2019 „Það er svolítið retró að bjóða upp á brauðtertur,“ segir Erla Hlynsdóttir, annar stofnanda Brauðterufélags Erlu og Erlu. Félagið var stofnað í gríni um helgina til að auka veg brauðtertunnar.
MannlífiðTartalettur að hætti mömmu29. nóvember 2017 Sumum finnst tartalettur alveg ómissandi um jólin. Þegar kemur að jólamat finnst mörgum gaman að halda í hefðir. Til dæmis útbúa klassískan gamaldags vanilluís, rækjukokteil eins og amma bjó til nú eða tartalettur að hætti mömmu. Sumum finnst tartalettur einmitt alveg ómissandi um jólin og hér er því uppskrift sem er bæði einföld og góð. TARTALETTUR MEÐ ASPAS OG SVEPPUM...