SkoðunKolbeinn ÞorsteinssonEiturbyrlun í Dúkskoti – „Glitti í spýjuna í myrkri sem á maurildi sæi“31. ágúst 2024 Þann 13. nóvember, 1913, lést karlmaður á Landakotsspítala. Fannst lögreglu og læknum sitthvað grunsamlegt við andlát mannsins. Að krufningu lokinni og í ljósi niðurstöðu hennar, sá lögregla sér ekki fært annað en að taka málið til rannsóknar. Banamein mannsins var fosfóreitrun. Í Morgunblaðinu 17. nóvember sama ár var haft á orði að voðaatburður hefði átt sér stað „sem eigi á...
SkoðunAðsend greinOpið bréf til félaga í Blaðamannafélagi Íslands: Vegnir, metnir og léttvægir fundnir29. ágúst 2024 Ágætu félagar. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka ykkur traustið sem þið hafið sýnt mér í gegnum árin og áratugina með því að hafa stutt mig til forystustarfa í Blaðamannafélaginu frá árinu 1990. Sérstaklega þakka ég ykkur sem hafið hvergi hvikað þrátt fyrir það moldviðri sem þyrlað hefur verið upp vegna starfa minna fyrir félagið að undanförnu....
SkoðunBrynjar BirgissonÍslendingar elska að hata fólk24. ágúst 2024 Undanfarnar vikur hefur mynd af lesendabréfi úr DV frá árinu 2000 gengið á milli manna á internetinu. Titill þess er „Kynþáttahatur – eða þjóðernishyggja?“ og undir það skrifar „Íslenskur ríkisborgari“ og það er magnaður lestur. Í bréfi þessu er varað við miklum straumi innflytjenda. Ríkisborgarinn segir að þeir séu yfirleitt dökkir og ofbeldisfullir ungir karlmenn sem komi til landsins til...
SkoðunKolbeinn ÞorsteinssonFólskuverk á Flögu – Vanfær kona myrt um miðja nótt í Vatnsdal17. ágúst 2024 Á bænum Kornsá, í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu, bjuggu árið 1766 hjónin Jón Þórarinsson og Gróa Jónsdóttir og áttu þau tvo syni. Á bænum var vinnukona að nafni Helga Símonardóttir og þegar eftirfarandi atburðir áttu sér stað, í júní, 1766, var Helga, þá hálffertug, vanfær eftir eldri son hjónanna, Jón yngri, sem þá var tvítugur. Þannig var mál með vexti að...
SkoðunKolbeinn ÞorsteinssonBonnie og Clyde – Ástfangið og forhert par sem hikaði ekki við að láta byssurnar tala10. ágúst 2024 Sá ævintýraljómi sem lék um Bonnie og Clyde í upphafi sameiginlegrar sögu þeirra máðist skjótt. Rómantíkin sem almenningur í Bandaríkjum kreppuáranna tengdi við þau fölnaði og eftir stóðu forhertir morðingjar. Það sem hófst sem ævintýri ungs ástfangins pars breyttist í flótta undan vörðum laganna og í kjölfarið hrúguðust líkin upp. Bonnie Parker og Clyde Barrow voru alræmdir útlagar og bankaræningjar...
SkoðunBrynjar BirgissonBörn á Íslandi vinna of mikið7. ágúst 2024 Fyrir nokkrum mánuðum heimsótti ég vin minn sem býr í enskum bæ rétt hjá Stoke. Þar gisti ég hjá honum í fimm nætur og við heimsóttum á þeim tíma marga bari, verslanir og veitingastaði. Eitt sem vakti athygli mína meðan þessari heimsókn stóð yfir var aldur starfsmanna hvert sem við fórum, sérstaklega í matvörubúðunum. Meðalaldur starfsmanna í búðunum, sem hægt...
SkoðunKolbeinn ÞorsteinssonLafðin og óþokkinn: Hjónabandssælan varð skammlíf og tuttugu ára prísund beið eiginkonunnar3. ágúst 2024 Lafði Elizabeth Cathcart taldi sig hafa fundið ástina þegar hún kynntist írskum karlmanni, Hugh Maguire að nafni. Elizabeth keypti handa honum ofurstatign og nánast bjargaði honum úr ræsinu. Þau gengu síðar í hjónaband, en Hugh reyndist vera úlfur í sauðargæru og líf Elizabeth varð að helvíti. En það gekk erfiðlega fyrir Hugh að brjóta eiginkonu sína til hlýðni þegar hann...
SkoðunAðsend greinTölum endilega íslensku, takk25. júlí 2024 Um þessar mundir eiga sér íslenskunámskeið Háskólaseturs Vestfjarða stað á Ísafirði. Námskeið í íslensku sem annað mál eins og gefur að skilja. Árlegur viðburður. Íbúar Ísafjarðar ættu orðið að þekkja það íslenskuþyrsta fólk sem námskeiðin sækir. Fólk sem oft og tíðum auðnast að læra ansi skaplega íslensku á mjög skömmum tíma og leiðir okkur fyrir sjónir að það er ALLS...
SkoðunAðsend greinAð forðast raunveruleikann23. júlí 2024 Það birtist á laugardaginn var í Morgunblaðinu ritstjórnargrein undir fyrirsögninni: Lærdómur plágunnar. Boðskapur greinarinnar er sá að við þurfum að leggja meira á okkur við að læra af Covid-19 faraldrinum og tek ég undir hann heilshugar. Ég hef margsinnis hvatt stjórnvöld til þess að setja á fót farsóttarstofnun sem hefði því hlutverki að gegna að rýna í reynsluna af Covid-19...
SkoðunAðsend greinFjölskylduerjur16. júlí 2024 Fjölskylduerjur eru algengar og þær koma í allskonar myndum þrátt fyrir að uppsprettan oftast er sú sama. Þessi kynslóð fólks á Íslandi í skugga stríðs og kreppu fór út í heiminn með ríka tilfinningu skorts. Við sem erum í dag miðaldra skiljum oft ekki foreldra okkar, það er sem við tölum ekki sama tungumál kynslóða á milli enda bakgrunnur okkar...
SkoðunAðsend greinUppreisnarhaf íslenskunnar8. júlí 2024 Dagurinn var kaldur; eins og allir dagar á Íslandi. Ég man hvað ég var spennt. Ég var búin að læra ómissandi orð. Ég var búin að læra að segja góðan daginn “gondain” og tölurnar upp í tíu: „ein, tueir, trir, fiorir, fim, secs, shiu, auta, niu, tiu.“ Svo var ég með aðra setningu upp í erminni: „eki ropa nuna,“ endurminning...
SkoðunAðsend greinHver er svo sem ekki með hálfa milljón í rassvasanum?7. júlí 2024 Það er enginn undirbúinn fyrir það að greinast með krabbamein, hvað þá heldur aðstandendurnir sem elska hann, hafa planað og séð fyrir sér alla framtíðina með viðkomandi. Ég hef því miður reynslu af þessu sem aðstandandi. Það má segja að sorgarferlið byrji strax frá upphafi þar sem maður fer að hugsa um hvað af því sem maður hafði séð fyrir...