InnlentReiðhjólamaður féll fram af kletti við Jökulsárgljúfur – Félagi hans slasaðist við björgunaraðgerð24. júlí 2024 Reiðhjólamaður féll fram af kletti við Jökulsárgljúfur laust eftir hádegi í dag. Samferðamaður hans slasaðist einnig þegar hann reyndi að hjálpa honum. Lögreglan á Norðurlandi eystra birti rétt í þessu Facebook-færslu þar sem sagt er frá björgunaraðgerðum við Jökulsárgljúfur en rétt eftir hádegi í dag féll þar reiðhjólamaður fram af klettum Félagi hans slasaðist svo einnig er hann gerði tilraun...
HeimurTólf ára stúlka hrapaði til bana á hóteli á Spáni – Fjölskyldan svaf í næsta herbergi22. júlí 2024 Tólf ára stúlka lést er hún féll tæpa 20 metra fram af svölum á hóteli á Majorca, á meðan fjölskylda hennar svaf í næsta herbergi. Stúlkan, sem var frá Írlandi, lést um klukkan hálf sjö í morgun, þegar hún féll fram af svölu á þriggja stjörnu fjölskylduhótelinu Club Mac í Puerto de Alcudia á norðaustur Majorca. Ættingjar hennar eru sagðir...
InnlentÍslendingur stangaður í nautahlaupi á Spáni – Hornið fór í lærið19. júní 2024 Íslenskur ferðamaður var stangaður af nauti á Jávea á Spáni á þriðjudaginn. Samkvæmt frétt Costa News, var 46 ára Íslendingur stangaður af nauti í upphafi nautahlaups á götum strandbæjarins Jávea í Alicante-héraði á þriðjudaginn. Nautið er sagt hafa stangað íslenska ferðamanninn í lærið en hornið hitti ekki á slagæð. Ekki er vitað um líðan mannsins. En hvað er nautahlaup? Þetta...
InnlentÖkumaður fólksbifreiðarinnar var Íslendingur á þrítugsaldri11. júní 2024 Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Vesturlandsvegi skammt frá Hraunsnefi í Norðurárdal í Borgarfirði á sunnudagskvöld, var íslenskur karlmaður á þrítugsaldri. Samkvæmt frétt mbl.is var maðurinn fæddur 1999 og búsettur á Íslandi. Fólksbifreið sem maðurinn ók í norður, skall framan á jeppa sem ekið var til suðurs. Lést ökumaður fólksbifreiðarinnar en þyrla Landhelgisgæslunnar flutti ökumann og farþega jeppans á Landspítalann...
InnlentÓsammála um orsök rútuslyss Lionsmanna í Dynki: „Mínir menn sáu ekki þess merki“27. maí 2024 Vegagerðin segir ekkert benda til þess að vegurinn hafi gefið sig þegar rútuslys varð í Rangárvallasýslu í fyrradag, eins og lögreglan hefur haldið fram. Jón Gunnar Þórhallsson yfirlögregluþjónn á Suðurlandi sagði í viðtali við Vísi að vísbendingar væru um að vegurinn hafi gefið sig að hluta þegar rúta, sem full var af Íslendingum úr Lionsklúbbinum Dynki, 27 talsins, valt með...
InnlentKanna hvort flutningaskip hafi hvolft bátnum:„Það var svolítið myrkur en ég sá svo rekald í sjónum“16. maí 2024 Arnar Magnússon, vélstjóri úr Garðinum, hélt fyrst að um fljótandi gám væri að ræða þegar hann kom á strandveiðibát sínum að öðrum slíkum báti á hvolfi sex sjómílur norðvestur af Garðskaga. Erlendu flutningsskipi hefur verið stefnt til hafnar í Vestmannaeyjum vegna málsins. Sjá einnig: Búið að draga strandveiðibátinn að landi – Bjargvætturinn sigldi aftur til veiða Samkvæmt RÚV verður tekin...
InnlentBúið að draga strandveiðibátinn að landi – Bjargvætturinn sigldi aftur til veiða16. maí 2024 Búið er að koma strandveiðibátnum Hadda HF til hafnar við Sandgerði en hann sökk í nótt norðvestur af Garðskaga. Samkvæmt Aflafréttum er báturinn glænýr en hann var smíðaður árið 2023. Eins og fram hefur komið í fréttum barst neyðarkall klukkan 02:42 um að báturinn væri að sökkva. Strandveiðimaður sem var í grenndinni bjargaði skipstjóra Hadda HF um borð og sigldi...
InnlentStrandveiðimaður bjargaði öðrum er bátur hans sökk norðvestur af Garðskaga16. maí 2024 Á þriðja tímanum í nótt sökk strandveiðibátur norðvestur af Garðskaga en sjómaður á nálægum bát bjargaði lífi strandveiðimannsins. Samkvæmt heimasíðu Landhelgisgæslunnar barst stjórnstöð hennar neyðarkall frá skipstjóra annars strandveiðibáts klukkan 02:42, um að bátur í grendinni væri að sökkva um sex sjómílur norðvestur af Garðskagavita. Var þyrlusveit Gæslunnar kölluð strax út á hæsta forgangi auk sjóbjörgunarsveitum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum....
HeimurLoftfimleikamaður féll af „Dauðahjóli“ í miðri sirkussýningu: „Bið til Guðs að allt sé í lagi“28. apríl 2024 Sirkuslistamaður slasaðist eftir hátt fall af „Dauðahjóli“ í miðri sýningu í Blackpool, Englandi. Áhorfendur í Blackpool Tower-sirkusnum, þar á meðal börn, horfðu skelfingu lostin á þegar annar tveggja loftfimleikamanna á svokölluðu „Dauðahjóli“ (e. Wheel of Death) féll í miðri sýningu skömmu eftir klukkan 17:00 í gær, að því er Mirror hefur eftir áhorfanda. Sjúkraliðar flýttu sér að loftfimleikamanninum en hann...
InnlentVinnuslys í Hafnarfirði – Maður festist undir þakplötu sem féll á hann10. apríl 2024 Vinnuslys átti sér stað um klukkan hálf tvö í dag á Völlunum í Hafnarfirði. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er með mikinn viðbúnað á staðnum. Samkvæmt RÚV sat einn maður fastur undir fargi eftir að þakplata sem verið var að steypa, féll ofan á hann. Búið er að losa manninn og flytja á sjúkrahús. Um alvarleika áverka hans er lítið vitað. Ekki...
HeimurHarmleikur í Örebrö – Foreldrar og tvö börn þeirra látin í bruna í Svíþjóð24. mars 2024 Talið er að tvö börn og foreldrar þeirra hafi látið lífið í eldsvoða í einbýlishúsi í Örebro í Svíþjóð, að því er sænskir fjölmiðlar greina frá. Lögreglan er sögð hafa fengið tilkynningar um eldinn um miðnætti í nótt. Þegar björgunarmenn komu á vettvang var húsið alelda. Fjórir voru komnir út úr húsinu og sögðu lögreglu og björgunarsveitum að enn væru...
InnlentUnglingspiltur féll úr skíðalyftu í Bláfjöllum11. mars 2024 Slys varð í Bláfjöllum í dag er fjórtán ára drengur féll um tíu metra úr skíðalyftu. Vankaðist hann við fallið. Samkvæmt frétt RÚV barst lögreglu tilkynning um slysið klukkan 14:12 en tildrög slyssins eru ókunn, að sögn Valgarðs Valgarðssonar aðalvarðstjóra á lögreglustöð 4 á Vínlandsleið. Þegar drengurinn féll vankaðist hann en komst til meðvitundar stuttu síðar. Hlúið var að honum...