Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dularfullt skattamál Sigríðar

Dularfullt skattamál Sigríðar

Páll Vil­hjálms­son, kenn­ari við Fjöl­braut­ar­skól­ann í Garðabæ og blogg­ari, stendur í ströngu þessa dag­ana. Hann hefur kallað yfir sig reiði stjórn­enda Rík­is­út­varps­ins með umfjöllun sinni um „skattsvika­mál“ Sigríðar Daggar Auð­uns­dóttur, umsjón­ar­manns Kast­ljóss. Páll full­yrðir að Sigríður hafi leigt út fjórar íbúðir í húsi sínu við Surð­ur­götu á air­bnb án þess að gefa upp tekjur upp á millj­óna­tugi. Þá segir sögu­kenn­ar­inn að Sigríður Dögg hafi notið náðar Bryn­dísar Gunn­ars­dóttur skatt­rann­sókna­stjóra sem hafi leyft henni að greiða álag og sekt í stað þess að fara til dóm­stóla með málið. Þessu til við­bótar gefur Páll til kynna að fjöl­miðla­fyr­ir­tæki Sigríðar hafi unnið fyrir skatt­rann­sókna­stjóra. „Um það leyti sem skattsvika­mál Sigríðar Daggar var á borði Bryn­dísar skatt­rann­sókna­stjóra stóð Bryndís í stór­ræðum í opin­berri umræðu …,“ skrifar Páll.

Páll hefur ekki sýnt fram á gögn í mál­inu en full­yrðir að heim­ildir séu fyrir því að mál séu svona vaxin. Sigríður Dögg hefur einnig hafnað því að gefa upp þau gögn sem eru að baki „end­ur­á­lagn­ingu“ skatta vegna leigu­í­búða hennar við Suð­ur­götu. Hún svarar ekki ítrek­uðum spurn­ingum Mannlífs um þetta efni sem gefur henni tæki­færi til að hreinsa nafn sitt. Þess í stað gaf hún gaf ein­hliða yfir­lýs­ingu á Facebook um að hún væri sak­laus af áburð­inum.

Víst er að ef um upp­spuna er að ræða hjá sögu­kenn­ar­anum þá mun Sigríður Dögg geta náð út háum bótum í gegnum dóm­stóla. En ef satt reyn­ist þá er hins vegar um að ræða spill­ing­ar­mál af stærri gerð­inni.

Stjórn­endur Rík­is­út­varps­ins standa þétt að baki Sigríði Dögg sem var mætt í Kastljós í gær. Það er vís­bend­ing um að Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri og und­ir­menn hans  telji hana sak­lausa og leggi nafn og heiður stofn­un­ar­innar undir í mál­inu. Einu fréttir Rík­is­út­varps­ins af Páli og bloggi hans eru þær að krefja hann svara vegna umfjöll­unar um mál­efni trans­fólks. Nokkur sam­staða er meðal fjöl­miðla í land­inu um að spyrja ekki spurn­inga varð­andi Sigríði Dögg og dul­ar­fulla skatta­málið. Aftur á móti hefur verið boðað að málið verði tekið upp á Alþingi og kallað eftir gögnum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Slúður