Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Sigríður Dögg svarar ekki ásökunum um skattaundanskot

Sigríður Dögg Auðuns­dóttir, frétta­maður á Ríkis­útvarpinu og formaður Blaðamanna­félags Íslands, svarar ekki ítrekuðum spurningum Mannlífs varðandi ásakanir Páls Vilhjálms­sonar um skatta­undanskot.

Mogga­bloggarinn og framhalds­skóla­kennarinn Páll Vilhjálmsson sakaði Sigríði Dögg Auðuns­dóttur í sumar um að hafa skotið 25 milljónum undan skatti. Sagði hann formann Blaðamanna­félags Íslands hafa um árabil sleppt því að gefa upp til skatts, tekjur af Airbnb íbúðum sínum. Skatt­rannsóknar­stjóri, að sögn Páls, fékk upplýsingar um útleigu fasteigna Íslendinga fyrir árin 2015 til 2018 í gegnum vef og greiðslu­kerfi Airbnb. Páll fullyrti í bloggi sínu að leigu­tekjur Sigríðar Daggar hafi numið tugum milljónum króna en að henni hafi verið gert að greiða vangoldinn skatt með 25 prósenta álagi.

Páll sagði ennfremur að Sigríður Dögg hafi fengið sérmeðferð hjá skatta­yfirvöldum, að hún hafi fengið leyfi til að setja útleiguna í einka­hlutafélag sitt sem skilaði sjö milljón króna hagnaði árið 2021. Skatta­undanskotin árin á undan segir hann að hafi verið á kennitölu Sigríðar Daggar.

Ásakanirnar eru grafal­varlegar en Páll hefur engin gögn birt, málinu til stuðnings. Séu þær rangar er nokkuð ljóst að framhalds­skóla­kennarinn gæti átt yfir höfði sér meiðyrðamál.

Mannlíf sendi spurninga­lista til Sigríðar Daggar í sumar og tvær ítrekanir, þá seinni í byrjun september en enn hefur blaða­konan ekki svarað þeim. Spurningarnar eru eftir­farandi:

1. Kannast þú og /eða eigin­maður þinn við að hafa leigt út íbúðir á airbnb?

2. Voru tekjur af leigunni ekki gefnar upp til skatts upphaf­lega? Eru ásakanir um slíkt rangar?3. Er rétt að þú/þið hafið gert sátt við skatta­yfirvöld um að greiða skatt af innkomunni og 25 prósenta álag.4. Er rétt að einka­hlutafélag ykkar, Miðlun, hafi í fram­haldinu tekið yfir þann rekstur sem snýr að útleigunni.5. Ef rétt er hermt með sáttina: Telur þú að í þessu felist brot af þinni hálfu sem þú þurfir að axla af ábyrgð? Ef svo. Hvernig munt þú bregðast við?Hefur þú gert stjórn Blaðamanna­félagsins og yfir­stjórn Ríkis­útvarpsins grein fyrir þessu máli?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim