Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sveppi hljóp nakinn niður Laugaveginn: „Það er æðislegt að hlaupa allsber í margmenni“

Sveppi hljóp nakinn niður Laugaveginn: „Það er æðislegt að hlaupa allsber í margmenni“
Sveppi hálf nak­inn Mynd: Kazuma Takigawa

Sverrir Þór Sverr­is­son. Sveppi. Í við­tali við Reyni Trausta­son segir hann frá því hvernig nafnið Sveppi kom til, hann talar um æsku­árin þegar hann vildi fífl­ast og vera fynd­inn, árin í FB þar sem hann var í vídeó- og skemmti­nefnd, tím­ann á græn­met­isla­gernum, upp­haf fer­ils­ins sem hann er þekktur fyrir, sem var að ganga hring­inn í kringum Ísland í tvo mán­uði, hann talar um hrekk­ina og áskor­an­irnar í sjón­varp­inu, svo sem þegar hann hljóp alls­ber niður Lauga­veg­inn, jákvætt áreitið og svo talar hann örlítið um fjöl­skyld­una. Hann talar líka um hvað sé fram undan og hvort hann vilji verða gam­al­menni á Spáni. Hér er brot úr við­tal­inu.

Allsber á Lauga­vegi

Þú ert stjarna sem gerir út á börn með mynd­irnar þínar og þá þarftu nátt­úr­lega að passa upp á að for­tíðin sé ekki að banka upp á hjá þér með ein­hverjum gervi­typpum.

„Já, það er bara tíma­spurs­mál hvenær það ger­ist.

Fólki fannst þetta ekki alveg passa; að þetta væri sami gæinn.

Ég man þegar ég byrj­aði með barna­tím­ann á Stöð 2. Þá vorum við Auddi með þátt sem hét bara Auddi og Sveppi. Við vorum á hverjum föstu­degi í hálf­tíma og máttum bara gera það sem við vildum. Það var oft dálítið kvartað yfir því að ég væri á föstu­dögum; í eitt skiptið hljóp ég alls­ber niður Lauga­veg­inn. Mér fannst það æðis­legt. Og svo dag­inn eftir var ég með barna­þátt í Stöð 2. Fólki fannst þetta ekki alveg passa; að þetta væri sami gæinn. En ég nennti ekki að pæla í því. Þetta var bara svona.“

Hvernig datt þér í hug að hlaupa alls­ber niður Lauga­veg­inn?

„Það var ein­hver áskorun. Við vorum rosa mikið í áskor­unum; alltaf að skora á hver annan að gera eitt­hvað út í hött. Og bara hvað sem var. „Basically“ bara það sem okkur fannst fyndið. Þetta var áskorun sem ég tók; hljóp alls­ber. Það er æðis­legt að hlaupa alls­ber í marg­menni.“

Hvernig voru við­brögðin?

„Fólk hefur gaman af því að sjá ein­hvern karl.“

Flestir þekktu þig. Svo voru ein­hverjir túristar sem sáu eitt­hvað krullað fyr­ir­bæri nakið á harða­hlaupum.

„Ógeðs­lega gaman. Þetta er það sem þau muna. Þetta er bara Gullfoss og Geysir og alls­beri kall­inn á Lauga­vegi.“

Þetta hefur verið áhuga­vert.

Það blundar enn þá í mér svona fífla­skapur.

„Þetta var mjög skemmti­legur tími. Það blundar enn þá í mér svona fífla­skapur. Ég hef oft hugsað, þegar ég er að keyra bíl­inn og sé eitt­hvað, „djöf­ull væri fyndið að stökkva út og hlaupa alls­ber í gegn“.“

Þú ert svo­lítið bút­t­aður. Hefur aldrei verið við­kvæmt fyrir þig að sýna það?

„Hvernig ég er vax­inn?“

Nekt þína.

„Það er dálítið fyndið. Það eig­in­lega hent­aði betur, af því að ef þú ert svona asna­legur, svona lít­ill og kubbs­legur, þá er allt í lagi. Þá er maður svo góð­legur. Ef ég er ber að ofan þá finnst öllum það bara fyndið og krútt­legt, en þegar Auddi var ber að ofan þá fannst öllum hann vera að monta sig. Ef ég væri með „sixpack“ og ógeðs­lega vöðva­stæltur og væri alltaf að fífl­ast eitt­hvað ber að ofan niðri í bæ þá væru allir „voða­lega hefur hann mikla þörf fyrir að sýna vöðvana sína“. En ef því að ég er svona asna­legur þá er þetta miklu fyndn­ara. Það sama með Pétur.“

Þá fer þetta að snú­ast um kjark.

„Já, akkúrat.“

Viðtalið í Mannlífi er hér.

Podcastið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu