Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sveppi er kominn með annan fótinn inn í Þjóðleikhúsið: „Ég fæ allavega laun um mánaðamótin“

Dramatískur Sveppi
Dramat­ískur Sveppi Mynd: Kazuma Takigawa (Ljósmyndin hefur verið klippt til)

Sverrir Þór Sverrisson. Sveppi. Í viðtali við Reyni Traustason segir hann frá því hvernig nafnið Sveppi kom til, hann talar um æskuárin þegar hann vildi fíflast og vera fyndinn, árin í FB þar sem hann var í vídeó- og skemmtinefnd, tímann á grænmetis­lagernum, upphaf ferilsins sem hann er þekktur fyrir, sem var að ganga hringinn í kringum Ísland í tvo mánuði, hann talar um hrekkina og áskoranirnar í sjón­varpinu, svo sem þegar hann hljóp allsber niður Lauga­veginn, jákvætt áreitið og svo talar hann örlítið um fjöl­skylduna. Hann talar líka um hvað sé fram undan og hvort hann vilji verða gamalmenni á Spáni. Hér er brot úr viðtalinu.

Eitt og eitt drama

Sjónvarps­þættirnir Verbúðin berast í tal, en Sveppi lék í þeim. Hann segir að það hafi verið dásamlegt að vinna að því verkefni.

Það var enginn húmor í þessum gaur sem hann lék.

„Nei, mér fannst það og er búinn að heyra mikið um það að fólki fannst þetta skemmtilegt. Og gaman að sjá mig í þessu hlutverki. Einhverju öðru. Hann var vissulega „comic relief“-gæi í Verbúðinni í heild sinni þessi gæi, svona þannig séð, en þetta var góð týpa. Og þetta var í fyrsta skipti sem ég lék einhverja týpu sem er ekki að reyna að vera fyndinn.“

Ég er voða­lega mikið í leik­hús­inu núna.

Hvað er framundan?

„Það er alltaf happa og glappa hvað er að gerast. Ég er voðalega mikið í leik­húsinu núna. Ég hef verið að leika í Kardimommu­bænum og er að leika í leikriti sem heitir Prinsinn, í Þjóð­leikhúsinu, sem verður sýnt í haust og er kominn svolítið með annan fótinn þangað.“

Er það gaman­leikrit?

„Nei, ekkert endilega. Það dettur inn eitt og eitt drama. Og fólk segir að ég sé ágætur í því. Mér finnst alltaf jafn asnalegt að leika drama þannig séð. Svo gerir maður bara það sem leik­stjórinn segir og þá verður allt í lagi. Ef hann er ánægður, þá er þetta bara fínt.“

Ert þú laus­ráðinn hjá Þjóð­leikhúsinu?

„Ég held að ég sé nú fastráðinn. Ég var laus­ráðinn, en svo gerði ég einhvern annan samning. Ég skil þetta ekki alveg. Ég fæ allavega laun um mánaða­mótin. Það er það eina sem þetta snýst um. Þá er maður sáttur. Það er voða gaman; ég er með annan fótinn inni í Þjóð­leikhúsi. Og svo eru alltaf einhverjar þreifingar varðandi sjónvarps­þætti. Ég og Pétur erum með „podcast“,“ segir Sveppi, sem segist einnig flytja inn rauðvín. „Ég er í alls konar.“

Hvernig gengur með vínið?

„Það gengur fínt. Af því að markmið fyrir­tækisins er svo einfalt. Það er bara að fjármagna eigin neyslu. Það er það eina sem við þurfum. Og á meðan það gengur, þá gengur vel.“

Þið eruð ekki með neina stórveldis­drauma um að leggja undir ykkur rauðsvíns­markaðinn á Íslandi?

„Nei, við erum ekki með þá drauma. Þetta er aðallega stemmingin. Þetta er hobbí.“

Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér.
Þá er einnig hægt að horfa á það hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt