Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Birgir Guðjónsson er fallinn frá

Birgir Guðjónsson er fallinn frá

Birgir Guð­jóns­son, stærð­fræði­kenn­ari við Mennta­skól­ann í Reykja­vík og fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­maður með KR, lést á líkn­ar­deild Land­spít­al­ans í Kópavogi að morgni sum­ar­dags­ins fyrsta, 24. apríl síð­ast­lið­inn, 68 ára að aldri.

Frá and­láti hans er greint í Morg­un­blað­inu í dag og honum er einnig minnst á heima­síðu Mennta­skól­ans í Reykja­vík og Knatt­spyrnu­fé­lags Reykja­víkur. Birgir starf­aði sem kenn­ari við MR í rúma fjóra ára­tugi.

Hann lætur eftir sig eig­in­konu sína, Guðrúnu Þór­halls­dóttur, dós­ent í íslenskri mál­fræði, og dóttur þeirra, Ragn­heiði Birg­is­dóttur, menn­ing­ar­blaða­mann hjá Morg­un­blað­inu.

Útför Birgis fer fram frá Dóm­kirkj­unni í Reykja­vík mið­viku­dag­inn 8. maí klukkan 15.

Rót­gró­inn KR-ingur

Birgir fædd­ist 16. apríl 1957, sonur Guðjóns Peter Hansen og Hólm­fríðar Krist­jáns­dóttur. Hann var dótt­ur­sonur Krist­jáns L. Gests­sonar, fyrr­ver­andi for­manns KR og leið­toga félags­ins á fyrri hluta 20. aldar.

Hann hóf snemma æfingar með KR og þótti efni­legur leik­maður. Hann lék sinn fyrsta leik með meist­ara­flokki sum­arið 1976 og lék með lið­inu til árs­ins 1983 þegar meiðsli urðu til þess að hann lagði skóna á hill­una. Birgir lék alls 133 leiki fyrir meist­ara­flokk KR og skor­aði 14 mörk.

Að loknum leik­manna­ferli starf­aði hann áfram innan félags­ins, meðal ann­ars í meist­ara­flokks­ráði og síðar sem rit­ari í stjórn knatt­spyrnu­deildar KR á árunum 1991–1993.

Kennari sem nem­endur nutu leið­sagnar af

Birgir hóf kennslu við Mennta­skól­ann í Reykja­vík árið 1979 og sinnti því starfi í 44 ár, þar til hann veikt­ist fyrir tveimur árum. Hann var vin­sæll kenn­ari sem hafði alltaf hags­muni nem­enda og skól­ans í for­gangi, og var hlý­legur og vel lið­inn sam­starfs­maður.

„Við frá­fall Birgis er höggvið stórt skarð í starfs­manna­hóp­inn. Við munum sakna góðs vinar,“ segir í minn­ing­ar­orðum á heima­síðu MR. Skólinn verður lok­aður 8. maí þegar útförin fer fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá