Lárus Björn Svavarsson, sem margir þekktu úr götulífi Reykjavíkur á árum áður og fyrir eftirminnileg tilsvör og tiltæki, lést á sunnudag, 74 ára að aldri. Hann var betur þekktur undir gælunafninu Lalli Johns eftir samnefnda heimildarmynd Þorfinns Guðnasonar.
Lalli var annálað ljúfmenni, sem snemma var brotinn af kerfinu þegar hann var sendur í vistun á hinu alræmda vistheimili Breiðuvík, þar sem hann mátti þola ofbeldi og mikla harðneskju.
Þrátt fyrir langan afbrotaferil, sem að langmestu snérist um þjófnað, var Lalli afar vel liðinn af þjóðinni, þótti góðlegur, skemmtilegur í tilsvörum og hress.
Fjölmargir Íslendingar eiga sína sögu af Lalla Johns. Undirritaður blaðamaður var að skemmta sér í miðborg Reykjavíkur einhvern tíma í kringum 2005, með félögum sínum. Sótti blaðamaðurinn salerni á nærliggjandi bar í Austurstrætinu. Á leið aftur út til félaga sinna rakst hann á Lalla Johns inni á barnum, sem hann hafði aðeins séð í …





























Athugasemdir