Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Misheppnuð kynlífsleit líkleg ástæða strandsins

Líklegt að honum hafi verið illa tekið.

Misheppnuð kynlífsleit líkleg ástæða strandsins
Háhyrn­ing­ur­inn í nótt Hjúpaður raka­vörn náði háhyrn­ings­kar­l­inn að skrimta fram að næsta flóði. Hér er hann mynd­aður við hlið bjarg­vætta sinna. Mynd: Víkingur

Líkleg ástæða þess að háhyrn­ingur strand­aði nálægt Geld­inga­nesi í gær­kvöldi er að hann hafi farið á fjör­urnar við kven­kyns háhyrn­ing, við litla hrifn­ingu.

Háhyrn­ing­ur­inn, sem er ungt karl­dýr, strand­aði um klukkan níu í gær­kvöldi á stað sem heitir Gorvík og liggur nærri Korp­úlfs­stöðum. Hann fest­ist aftur í grynn­ingum eftir að hafa losnað um fjögur í nótt.

Edda Elísabet Magn­ús­dóttir, hvala­sér­fræð­ingur og lektor í líf­fræði við Háskóla Íslands, sagði í sam­tali við Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni í dag að nokkrar ástæður gætu verið fyrir veg­villu háhyrn­ings­ins.

Háhyrn­ingar Kyrra­hafs­megin eru í hópum sem fylgja móður sinni alla ævi. Hér er það breyti­legra. Að mati Eddu er einna lík­leg­ast að mis­heppnuð maka­leit hafi leitt hann í strand, með þeim hætti að honum hafi verið vísað úr hópnum.

„Þar sem þetta er karl­dýr er ekk­ert ólík­legt að hann hafi verið á hött­unum eftir kven­dýri til að makast við. Og mögu­lega var honum bara ekki vel tekið.“

Karl­dýrin eiga það til að fara á flakk og svo finna þeir sinn hóp aftur. „Það er mjög óvana­legt að dýr sé rekið út úr hóp ef hann er hluti af honum, en það getur verið að þeir eru komnir á ein­hvern aldur, og kannski hentar það bara hópnum að hann finni sér ein­hvern annan.“

Aðrar ástæður geta komið til. Stundum sækja dauð­vona háhyrn­ingar í grynn­ingar. „Ef þeir eru veikir lenda þeir oft í því hægt og rólega að reka upp í grynn­ingar. Jafnvel sækja upp í grynn­ingar ef þeir vita að þeir eru að drep­ast, þá er það ekk­ert óskap­lega óvana­legt,“ sagði Edda Elísabet á Bylgj­unni.

„Þegar það er mikið flóð og straumar geta þeir veru­lega mis­reiknað sig,“ segir hún.

Síðdegis í dag var orðið stór­streymt og tókst við­bragðs­að­ilum að hrekja háhyrn­ing­inn úr grynn­ing­unum og til hafs. Hann er nú frjáls, en hvað tekur við og hvort hann finni sinn hóp eða maka verður tím­inn að leiða í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina