Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hörður Svavarsson er fallinn frá

Hörður Svavarsson er fallinn frá
Hörður Svav­ars­son

Hörður Svav­ars­son, leik­skóla­stjóri Aðal­þings, lést á krabba­meins­deild Land­spít­al­ans 19. júní sl. eftir skamma sjúkra­hús­legu, 65 ára að aldri.

Hörður fædd­ist 15. jan­úar 1960 í Reykja­vík. For­eldrar hans voru þau Svavar Gests hljóð­færa­leik­ari og María Stein­gríms­dóttir hús­móðir. Hörður ólst upp í Reykja­vík en hefur búið í Hafn­ar­firði á þriðja ára­tug með konu sinni Díönu Sig­urð­ar­dóttur. Saman eiga þau dótt­ur­ina Guðrúnu Eddu Min, en einnig á Hörður dótt­ur­ina Maríu Eldey. Þá ólst upp hjá Herði sonur Díönu, Pétur Ágúst Hjör­leifs­son, en einnig á Hörður upp­eld­is­dótt­ur­ina Margréti Heiði Jóhanns­dóttur. Systkini Harðar eru þau Hjördís, Gunnar, Máni og Nökkvi og Bryndís sem er látin.

Hörður gekk í Ísaks­skóla, síðar í Hlíða­skóla, en lauk námi við Fóst­ur­skóla Íslands. Hörður lauk síðar meist­ara­námi frá Háskóla Íslands í mennta­vís­indum, en loka­verk­efni hans var um rými barna í leik­skólum. Fjöl­margir, á alþjóða­vísu, sótt­ust eftir umfjöllun um nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar „Börnin í veggj­unum“. Hörður starf­aði um ára­bil í leik­skólum í Reykja­vík en hóf síðar útgáfu­starf á tíma­rit­inu Uppeldi auk smá­rita um upp­eld­is­mál og starf­aði við það fram yfir alda­mótin. Þá hóf Hörður störf sem með­ferðar- og vímu­efna­ráð­gjafi hjá SÁÁ m.a. á Stað­ar­felli á Fells­strönd.

Hörður hóf störf sem leik­skóla­stjóri í Aðal­þingi í Kópavogi fyrir nær 15 árum en leik­skól­inn Aðalþing er rek­inn í anda hug­mynda­fræði Loris Malaguzzi, oft­ast kennd við bæinn Reggio Emilia á Ítalíu. Hörður hefur haldið víða erindi og fyr­ir­lestra, hér­lendis sem erlendis, á ráð­stefnum um hug­mynda­fræð­ina. Þá hlaut Aðalþing Íslensku mennta­verð­launin 2021, Orð­sporið 2022 og nýlega hlaut Aðalþing veg­legan styrk til að þróa nýtt innra mats­kerfi sem nýtir gervi­greind. Allt þetta var hug­ar­fóstur Harðar í leik og starfi.

Hörður var lengi vel for­maður Íslenskrar ætt­leið­ingar svo og for­maður fim­leika­fé­lags­ins Björk í Hafn­ar­firði. Þá sat hann í for­varn­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar svo og í Fræðslu­ráði Hafn­ar­fjarðar, var virkur félagi í FÁR félagi Áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafa, auk þess að taka þátt í ýmsum öðrum félags­störfum innan sam­fé­lags leik­skóla­kenn­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá