Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vilja laxeldi í ósnortnum firði

Bæjarráð Fjarða­byggðar skorar á atvinnu­mála­ráð­herra að hefja und­ir­bún­ing að því að leyfi til fisk­eldis í Mjó­a­firði.

Vilja laxeldi í ósnortnum firði
Fiskeldi er til umræðu Mjó­firð­ingar hafa reynslu af fisk­eldi. Ragnar Sig­urðs­son, for­maður bæj­ar­ráðs Fjarð­ar­byggðar, hvetur ríkið til útgáfu fisk­eld­is­leyfis. Mynd: Shutterstock

Bæjarráð Fjarða­byggðar hefur skorað á atvinnu­mála­ráð­herra að hefja und­ir­bún­ing að því að leyfi til fisk­eldis í Mjó­a­firði verði boðin út. Til að það ger­ist þarf að upp­færa núver­andi burð­ar­þols­mat.

Formaður bæj­ar­ráðs­ins segir að Mjó­firð­ingar vilji fisk­eldi til að byggja upp atvinnu á staðnum, eins og aust­ur­frett.is greindi fyrst frá.

Íbúar í Mjó­a­firði eru 13 tals­ins. Í kynn­ingu Visit Aust­ur­land segir að Mjói­fjörður sé þekktur fyrir ósnortna nátt­úru. „Í landi sem er þekkt fyrir ósnortna staði sem eru úr alfara­leið, má samt færa rök fyrir því að Mjói­fjörður sé sá afskekkt­asti.“

Bæjarráð Fjarða­byggðar sendi nýlega frá sér bókun þar sem ítrek­aðar voru fyrri bók­anir þess efnis að mik­il­vægt sé að bjóða sem fyrst út leyfi til eldis í Mjó­a­firði.

Vill fisk­eldiRagnar Sig­urðs­son, for­maður bæj­ar­ráðs Fjarð­ar­byggðar, vill fá fisk­eldi í Mjóa­fjörð.

Hér áður fyrr var það þannig að fisk­eld­is­fyr­ir­tæki ósk­uðu sjálf eftir leyfum innan þeirra reglna er þá giltu, en því var síðan breytt fyrir sex árum í þá átt að eld­is­svæði yrðu boðin út.

Reglu­gerð varð­andi útboðin, er kveður á um að ráð­herra ákveði hvenær sem og hve mörgum eld­is­svæðum sé úthlutað, tók gildi fyrir fimm árum síðan.

Samkvæmt Aust­ur­frétt liggur fyrir burð­ar­þols­mat á Mjó­a­firði um að þar sé hægt að ala tíu þús­und tonn af laxi, en matið hefur hins vegar ekki verið upp­fært og þá hefur málið einnig strandað á því að ný lög um lagar­eldi hafa ekki verið sam­þykkt. Er staða þeirra reyndar óljós eftir rík­is­stjórn­ar­skiptin í vetur.

Formaður bæj­ar­ráðs Fjarða­byggðar og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ragnar Sig­urðs­son, telur að lögin eigi ekki að geta hindra útboð í Mjó­a­firði:

„Lögin hafa áhrif en það ætti ekki að stranda á þeim. Mjói­fjörður er nýtt eld­is­svæði sem fellur undir útboðs­skyldu. Það eru ýmsar ástæður en að mínu viti eru færri ljón í veg­inum en oft áður. Í raun strandar þetta ekki á öðru en póli­tískum vilja ráð­herra.“

Segir Ragnar að áhugi sé hjá fisk­eld­is­fyr­ir­tækjum að hefja starf­semi í Mjó­a­firði, og einnig á meðal íbúa þar:

„Í Mjó­a­firði hefur áður verið fisk­eldi. Íbúar hafa kallað eftir atvinnu­upp­bygg­ingu og þar er lax­eldi meðal þess sem kemur til greina.“

Fram kemur í bókun bæj­ar­ráðs að „núver­andi kyrr­staða sé ekki í sam­ræmi við jákvæða byggða­þróun, né heldur þá ábyrgð sem fylgi því að styðja við brot­hættar byggðir.“

Hafa kann­anir sýnt að 60 til 70 pró­sent Íslend­inga séu á móti fisk­eldi í opnum sjó­kvíum, en and­staðan er þó minni á Aust­ur­landi sem og Vest­fjörðum, þar sem mest eldi er stundað, en í öðrum lands­hlutum:

„Lands­menn hafa efa­semdir en minnsta and­staðan er þar sem menn hafa séð ávinn­ing af eld­inu. Mjó­firð­ingar hafa séð ávinn­ing af eldi ann­ars staðar í Fjarða­byggð og þurfa atvinnu­upp­bygg­ingu til að snúa við byggða­þró­un­inni. Þess vegna held ég að lax­eldi sé einmitt það sem Mjó­firð­inga vantar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil