Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Nýbygging Félagsbústaða vekur hroll og aðdáun

Hús sem verð­launa­arki­tekt hann­aði skiptir álits­gjöfum í tvö horn.

Nýbygging Félagsbústaða vekur hroll og aðdáun
Húsið umdeilda Guðjón telur það líta út eins og drauga­hús. Mynd: Víkingur

Miklar umræður hafa skap­ast á Facebook-síðu Guðjóns Frið­riks­sonar sagn­fræð­ings en hann birti færslu á sam­fé­lags­miðl­inum um nýlegt hús sem stendur við Háteigs­veg 59. Húsið er í eigu borg­ar­innar og Félags­bú­staða en það er hannað af Arnhildi Pálma­dóttur, sem þykir einn fremsti arki­tekt Íslands.

Guðjón er allt annað en sáttur með útlit húss­ins. „Ég er ekki einn af þeim sem hef allt á hornum mér varð­andi nýbygg­ingar fjöl­býl­is­húsa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þó að auð­vitað finn­ist mér þau mis­jafn­lega fal­leg eins og gengur og ger­ist,“ skrifar Guðjón.

„Ég verð þó að játa að ég hálf­part­inn hrökk í kút þegar mér var gengið upp að Sjó­manna­skóla í dag og sá til­sýndar þar í næsta nágrenni kol­svart nýtt hús sem lítur út eins og drauga­hús úr kvik­mynd eftir Hitchcock. Það lá við að ég yrði myrk­fæl­inn. Þegar ég gekk nær sá ég að klæðn­ingin á hús­inu voru sund­ur­sag­aðar slitnar fjalir sem líta út eins og þær væri sviðnar eftir eld. Heim­kom­inn fletti ég upp teikn­ingum af hús­inu á vef Reykja­vík­ur­borgar og sá að umrætt hús er eftir enga aðra en Arnhildi Pálma­dóttur sem fékk umhverf­is­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs á síð­asta ári og er það teiknað fyrir Félags­bú­staði. Vafa­laust er húsið frum­legt og umhverf­is­vænt en enga að síður get ég ekki varist því að það setur að mér hroll þegar ég lít það augum.“

Hall­grímur Helgason dásamar húsiðEgill Helgason vill meina að það sé ljótt og dap­urt.

Yfir 130 athuga­semdir hafa verið rit­aðar við færslu Guðjóns og er óhætt að segja að fólk skipt­ist í tvær fylk­ingar þegar kemur að hús­inu. „Mikið er þetta dap­urt og ljótt,“ skrif­aði sjón­varps­mað­ur­inn Egill Helgason um húsið.

Andri Snær Magnason er hins vegar tals­vert hrif­inn af hús­inu. „Viðurinn er svið­inn með jap­anskri aðferð, húsið minnir frekar á gömlu tjöru­húsin, af því ytra byrði er viður. Allt of mörg svört hús eða grá með þver­liggj­andi báru­járni eiga ofan­greindan dóm skilið en ekki þetta. Það er feg­urð í hugsun og dirfsk­unni,“ skrifar rit­höf­und­ur­inn.

Fyrr­ver­andi fjöl­miðla­mað­ur­inn Eiríkur Hjálm­ars­son tók í svip­aðan streng og Andri og sagði að ytra byrði húss­ins væri frá­bært. Guðfinna Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi, seg­ist hins vegar finna bruna­lykt við það eitt að horfa á húsið.

„Þetta finnst mér flott!“ skrifar fyrr­ver­andi þing­mað­ur­inn Margrét Tryggva­dóttir. Heim­spek­ing­ur­inn Atli Harð­ar­son segir að húsið tóni við myrkrið og kuld­ann, dumb­ung­inn og drung­ann.

„Geggjað dæmi eftir heitasta arki­tekt Íslands, Arn­hildur er nýbúin að inn­rétta Forlagið á Fiski­slóð, vinna Norð­ur­landa­verð­launin í arki­tektúr, slá í gegn á arki­tekta­bíennalnum í Feneyjum og er að reisa mjög metn­að­ar­fulla og merki­lega spenn­andi blokk á horni Skúla­götu og Frakka­stígs,“ skrifar Hall­grímur Helgason við færslu Guðjóns, sem svarar honum með því að segja að það sé oft­ast mik­ill karakter í drauga­húsum.

Að lokum segir Guðjón segja að það verði víst ekki deilt um smekk.

Þá hefur líf­leg umræða um húsið skap­ast í Arki­tekt­úr­upp­reisnin á Íslandi - Byggjum fal­legt aftur. Þar eru sömu­leiðis deildar mein­ingar.

Húsið var hins vegar kynnt af Félags­bú­stöðum í vetur og vígt af Einari Þor­steins­syni borg­ar­stjóra, ásamt Heiðu Björg Hilm­is­dóttur, núver­andi borg­ar­stjóra.

Þar sagði að „nýtt fal­legt hús“ hefði verið vígt. „Arkitekt húss­ins, Arn­hildur Pálma­dóttir hlaut nýverið umhverf­is­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs fyrir þver­fag­lega nálgun og áherslu á minnk­aða kolefn­islosun og end­ur­nýt­ingu bygg­ing­ar­efnis, en stór hluti kjarn­ans er unnin úr end­ur­nýttu timbri. Meðal ann­ars fengu afgangar af stein­flísum sem féllu til við bygg­ingu Smiðju, skrif­stofu­bygg­ingar Alþingis, nýtt hlut­verk í íbúða­kjarn­anum, en þær prýða nú gólf í and­dyri hans. Fleira bygg­ing­ar­efni var end­ur­nýtt, svo sem afgangstimbur frá Húsa­smiðj­unni, afgangs­gluggar frá Glugga­gerð­inni og afgangstimbur frá Byko en öll gáfu fyr­ir­tækin efnið til verk­efn­is­ins.“

Á síð­unni Byggjum grænni fram­tíð er verk­efn­inu lýst nánar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina