Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ósáttur karl­maður Ein­stæðir karl­menn eru sá hópur sem sýnir minnsta ánægju og næst mesta óánægju með lífið. Myndin er svið­sett. Mynd: Shutterstock

Þetta er óánægðasta fólk Íslands

Sumt kann að koma á óvart, en annað síður.

Ný rann­sókn á ánægju Íslend­inga hefur verið birt. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2014 sem Gallup birtir sam­bæri­lega könnun. Í sund­ur­liðun á nið­ur­stöðum sést hvaða hópar það eru sem upp­lifa mesta ánægju og hverjir minnstu. Taka ber fram að ekki þarf að vera orsaka­sam­hengi að ræða þótt fylgni sé til staðar. Til við­bótar ber að athuga ánægju­stigið getur verið frekar orsök en afleið­ing.

1. Kjós­endur Sós­í­alista­flokks Íslands

23% þeirra eru óánægðir með lífið. Allt bendir til þess að það sé ástæða þess að þeir kjósa miklar breyt­ingar. Flestir þeirra, 71% eru þó ánægðir með lífið.

2. Ein­stæðir karl­menn

Karlar sem eru ekki í sam­búð eða hjóna­bandi eru næst­lík­leg­astir allra hópa til að vera óánægðir með lífið. 17% þeirra eru það. Sömu­leiðis eru fæstir þeirra ánægðir með lífið af öllum, eða 64%.

3. Ein­hleypir mið­aldra

Fólk frá 35 til 66 ára sem býr eitt er flest ánægt með lífið, en 14% þeirra eru óánægð.

4. Fólk með grunn­skóla­próf

Mun fleiri eru ánægðir með lífið sem hafa háskóla­próf og mennta­skóla­próf en hinir. 13% fólks með grunn­skóla­próf er óánægt með lífið, en bara 4% hinna. Samt eru 79% grunn­skóla­mennt­aðra ánægð með lífið, en þó 85% mennta­skóla­geng­inna og 91% háskóla­geng­inna. Senni­lega er sama ástæða fyrir því að fólk getur sótt sér aukna menntun og að fólk sé ánægt.

5. Ungt barna­fólk

Hvort sem það er skortur á leik­skóla­plássi eða of stór skammtur af Hvolpa­sveit­inni, er 12% fólks á aldr­inum 18 til 45 ára með börn óánægð með lífið. Senni­lega er þó álag og fjár­hags­á­hyggjur lyk­il­þáttur í óánægj­unni, eins og öfugt er með eldra fólk og Sjálf­stæð­is­menn, sem eru meðal þeirra ánægð­ustu.

6. Sam­bands­lausar konur
Ein­stæðar konur eru mun ánægð­ari með lífið en karlar sem ekki eru í sam­búð. Sömu­leiðis eru karlar sem eru í sam­búð ánægð­ari en konur í sam­búð. Til allrar ham­ingju fyrir karl­menn eru þó konur í sam­búð almennt ánægð­ari en konur utan sam­búðar.

Almennt eru Íslend­ingar mun „ánægð­ari með lífið“ 2025 en áður og segj­ast 85% ánægð. Árið 2014 voru það 74% en neðst fór ánægjan í 69% árið 2012.

Þess ber þó að geta að í ár var könnun Gallups gerð í vor­mán­uð­inum apríl, sem var sá hlýjasti á öld­inni, en fyrri kann­anir voru gerðar í októ­ber, nóv­em­ber og des­em­ber, með meiri og vax­andi dimmu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag