Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Þetta er ánægðasta fólk landsins

Er kannski best að kjósa Framsókn, eld­ast og fara í sam­búð?

Hamingjan
Ham­ingjan Eldra fólk finnur ham­ingj­una mun fremur en aðrir. Mynd: Shutterstock

Rannsókn hefur verið birt á ánægju Íslend­inga í fyrsta sinn í meira en ára­tug hjá Gallup. Árið 2025 eru Íslend­ingar mun „ánægð­ari með lífið“ en áður og segj­ast 85% ánægð. Árið 2014 voru það 74% en neðst fór ánægjan í 69% árið 2012.

Þess ber þó að geta að í ár var könnun Gallups gerð í vor­mán­uð­inum apríl, sem var sá hlýjasti á öld­inni, en fyrri kann­anir voru gerðar í októ­ber, nóv­em­ber og des­em­ber, með meiri og vax­andi dimmu.

Gallup deilir nið­ur­stöðum sínum niður á mis­mun­andi hópa, meðal ann­ars aldur, stjórn­mála­skoð­anir og sam­búð­ar­form.

Þetta eru þeir hópar sem mæl­ast ánægð­astir.

1. Fram­sókn­ar­fólk

Er það sveitin, sýnin eða Sigurður Ingi? 97% Fram­sókn­ar­fólks er ánægt með lífið og aðeins 2% óánægt. Þess ber að geta að þeim hefur fækkað svo­lítið síð­ustu árin og því úrtak minna og skekkju­mörk meiri. Þau eru orðin fágæt­ari.

2. Þroskaða fólkið

Þau sem eru orðin 67 ára eru annað hvort miklu harð­ari af sér eða mun ham­ingju­sam­ari. Aðeins 2% þeirra segj­ast óánægð með lífið, en 92% eru ánægð. Þau gefa líf­inu ágæt­is­ein­kunn.

3. Barnlaus, mið­aldra pör

Hver hefði haldið að þetta væri lyk­ill að ham­ingj­unni? Af fólki á aldr­inum 46 til 66 ára sem ekki er með börn á heim­il­inu segj­ast 90% ánægð með lífið, en það fellur niður í 84% ef börn eru á heim­il­inu, sem þá eru gjarnan orðin vel stálpuð og hugs­an­lega fjár­frek.

4. Háskóla­fólk

Þau sem klára háskóla­gráðu verða á óút­skýrðan hátt ham­ingju­sam­ari. 91% þeirra eru ánægð með lífið, en bara 79% grunn­skóla­geng­inna.

5. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins

91% þeirra sem kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn eru ánægð með lífið. Þó er eins og með Fram­sókn­ar­menn, að þeim hefur fækkað. Sömu­leiðis eru þeir eldri og þar með þroskaðri en meðal­jón.

6. Karlar í sam­bandi

Af ein­hverri ástæðu mæl­ast karlar í sam­búð eða hjóna­bandi ánægð­ari með lífið en konur í sömu stöðu. 90% þeirra eru ánægðir með lífið og aðeins 3% óánægðir. Hins vegar eru 7% kvenna í sam­búð óánægðar með lífið, sem kalla má skekkju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni