Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Land­spít­al­inn er í kreppu Vantar sár­lega sjúkra­liða Mynd: Stundin/Kristinn

Sjúkraliðum „mætt með þögn og aðgerðaleysi“

Land­spít­al­inn er í miklum vand­ræðum vegna mann­eklu enda er fjöldi stöðu­gilda ómann­aður og spít­al­ann vantar sér­stak­lega sjúkra­liða

Land­spít­al­inn á í miklum vand­ræðum vegna mann­eklu og álags, og þá er fjöldi stöðu­gilda ómann­aður og sér­stak­lega vantar sjúkra­liða.

Margir sem eru búsettir á Íslandi og líka ferða­menn sem koma hingað kann­ast við að þurfa að bíða klukku­stundum saman eftir því að fá þjón­ustu á slysa­deild eða sjúkra­húsi.

Staðan á Land­spít­ala er grafal­var­leg og mikil mann­ekla - sem þýðir löng bið - sem þar ríkir og er biðin lengri en venju­lega og álagið eykst sem því nemur og var það þó alveg nóg að mati flestra ef ekki allra.

Komið er á dag­inn að alls voru á fjórða hund­rað stöður sjúkra­liða ómann­aðar á LSH í fyrra og end­ur­nýjun í stétt­inni er langt frá því að vera næg.

Land­spít­al­inn hefur lengi verið und­ir­mann­aður, en sjaldan eins og nú líkt og segir í úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar á spít­al­anum, mönnun hans sem og flæði sjúk­linga.

Kemur á dag­inn að sjúk­lingum er leita þangað fjölgar mikið en starfs­fólki sem og rúmum á legu­deildum fækkar, og það er ákveðið vanda­mál.

Land­spít­al­inn glímir við mann­eklu eins og fram hefur komið, en 50 stöðu­gildi hjúkr­un­ar­fræð­inga, 30 stöðu­gildi lækna, 14 stöðu­gildi ljós­mæðra og um það bil 380 stöðu­gildi sjúkra­liða voru ómönnuð í fyrra.

Stór hluti þeirra sjúkra­liða sem nú eru starf­andi, eitt­hvað um 40%, mun eld­ast úr starfi á næstu 15 árum, en með­al­aldur sjúkra­liða er um það bil 49 ár.

Blasir því við alvar­legur skortur, sem ger­ist á þeim sama tíma og búast má við að öldruðum fjölgi um 40% á næstu árum, hrjáir Land­spít­al­ann og honum bráð­vantar að fá sjúkra­liða.

Sjúkra­liða­fé­lag Íslands er vel með­vitað um stöð­una og segir á heima­síðu félags­ins að „Rík­is­end­ur­skoðun hefur nú opin­berað það sem sjúkra­liðar hafa lengi varað við. Að mönnun stétt­ar­innar á Land­spít­al­anum er í algjöru lág­marki og þró­unin stefnir að óbreyttu í kerf­is­hrun.“

Sandra B Franks for­maður Sjúkra­liða­fé­lags Íslands.

Fjallað er um skýrsl­una á vef sjúkra­liða og þar segir að „sam­kvæmt nýju skýrsl­unni um Mönnun og flæði sjúk­linga á Land­spít­ala kemur fram að árið 2024 voru heil 379 stöðu­gildi sjúkra­liða ómönnuð, aðeins 52% af áætl­aðri mönnun var í raun fyllt. Það þarf ekki sér­fræð­ing til að sjá að þetta er neyð­ar­á­stand.“

Sjúkra­liðar telja sig vera van­nýtta fag­stétt í kerf­inu og er með­al­aldur sjúkra­liða hærri en hjá öðrum heil­brigð­is­stéttum og ein­ungis 29% er í fullu starfi á spít­al­anum en á sama tíma fjölgar útgefnum starfs­leyfum, en þeir skila sér ekki í störfin á Land­spít­ala:

„Við höfum ítrekað bent á þetta, og núna hefur Rík­is­end­ur­skoðun stað­fest það sem við höfum bent á. Sjúkra­liðar eru kerf­is­bundið huns­aðir og van­nýttir, þrátt fyrir að bera mikla ábyrgð og sinna störfum sínum af fag­mennsku,“ segir Sandra B. Franks, sem er for­maður Sjúkra­liða­fé­lags Íslands.

Hún segir einnig að Land­spít­al­inn kjósi ófaglært starfs­fólk fram yfir mennt­aða sjúkra­liða og að staðan á bráða- og lyf­lækn­inga­sviði sé grafal­var­leg:

„Þar vant­aði 177 sjúkra­liða í stöður, en á sama tíma voru 174 ófag­lærðir starfs­menn umfram áætlun. Þetta er óneit­an­lega skýrt merki um að Land­spít­al­inn velur að treysta á ófaglært starfs­fólk í stað þess að byggja upp fag­mennt­aða heil­brigð­is­stétt með fram­tíð­ar­sýn og ábyrgð“ og að hennar mati er Þetta „ekki fag­leg stefna, heldur stjórn­un­ar­leg und­an­brögð.“

Kemur fram í máli Söndru að „Rík­is­end­ur­skoðun lætur engan vafa liggja á því að Land­spít­al­inn þurfi að bregð­ast við nú þegar“ og að í „skýrsl­unni er skýrt kveðið á um að grípa þurfi til mark­vissra aðgerða“ ætli spít­al­inn sér að snúa þess­ari þróun við. „Þar segir meðal ann­ars að tryggja verði raun­hæfar starfs­þró­un­ar­leiðir fyrir sjúkra­liða og bæta nýliðun, meðal ann­ars með öfl­ugu sam­starfi við mennta­stofn­anir. Þá sé nauð­syn­legt að nýta menntun og hæfni sjúkra­liða í sam­ræmi við breyttar reglu­gerðir um rétt­indi þeirra, og að við­ur­kenna verði fag­legt hlut­verk þeirra innan hjúkr­un­arteyma, í stað þess að reiða sig áfram á ófaglært starfs­fólk.“

Sandra segir að þetta sé „ekki ný sjón­ar­mið, heldur þau sömu sem sjúkra­liða­stéttin hefur end­ur­tekið bent á í mörg ár. Nauð­syn­legt er að tryggja fram­tíð sjúkra­liða innan heil­brigð­is­kerf­is­ins og þessi staða er ekki aðeins ófag­leg heldur kerf­is­bundin van­virð­ing við heil­brigð­is­stétt sem hefur menntun, hæfni og lög­verndað hlut­verk innan heil­brigð­is­þjón­ust­unnar.“

Sandra segir það sýna svart á hvítu að „vilji Land­spít­al­ans til að byggja upp stöðu­gildi sjúkra­liða er lít­ill sem eng­inn.“

Sjúkra­liða­fé­lagið hefur lýst yfir vilja sínum til að vinna með spít­al­anum að því að snúa þess­ari þróun við, en a- sögn Söndru hefur þeim vilja að mestu verið „mætt með þögn, tregðu og aðgerða­leysi. Skýrslan frá Rík­is­end­ur­skoðun dregur fram skýra ábend­ingu um að Land­spít­ali verði að setja sér mark­mið um að fjölga sjúkra­liðum, hvetja ófaglært starfs­fólk til að fara í nám, og tryggja að þeir sem ljúka sjúkra­liða­námi fái tæki­færi til að starfa í fag­inu.“

Hun segir að „Sjúkra­liða­fé­lagið hefur talað fyrir því að sjúkra­liðar starfi í sam­ræmi við sína menntun“ og bent á að ekki er nóg að gefa út starfs­leyfi, „heldur þurfi líka að vera raun­veru­leg starfs­þróun og raun­veru­legur fram­gangur í starfi, þannig að fólk velji sjúkra­liða að ævi­starfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við