Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Inga Sæland for­maður Flokk fólks­ins Viða­mikil und­ir­bún­ingur hefur staðið yfir vegna sam­þætts sér­fræði­mats Mynd: Golli

Segir að framundan séu „spennandi tímar fyrir fatlað fólk og öryrkja“

Und­an­farið hefur farið fram viða­mik­ill und­ir­bún­ingur vegna sam­þætts sér­fræði­mats og hefur Inga Sæland, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, nú lagt fram skýrslu á Alþingi um inn­leið­ingu og und­ir­bún­ing þess

Und­an­farið hefur farið fram afar viða­mik­ill und­ir­bún­ingur vegna sam­þætts sér­fræði­mats og hefur Inga Sæland nú lagt fram skýrslu á Alþingi um inn­leið­ingu og und­ir­bún­ing þess.

Kemur fram að núgild­andi lækn­is­fræði­legt örorku­mat hafi verið inn­leitt hér á landi árið 1999. Hefur það staðið óbreytt síðan, en með nýju örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­kerfi verður því hætt og í stað­inn fyrir það verður tekið upp sam­þætt sér­fræði­mat.

Ekki er langt í að breyt­ing­arnar eigi sér stað; en þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi mun nýja kerfið taka gildi.

Í inn­gangs­orðum skýrsl­unnar leggur Inga áherslu á að sam­þætta sér­fræði­matið muni fela í sér nýja og tíma­bæra hugsun:

„Núgild­andi mats­kerfi byggir ein­göngu á lækn­is­fræði­legum for­sendum“ en með nýja mat­inu verði horft heild­rænt á ein­stak­ling­inn og einnig litið til „sál­fræði­legra og félags­legra þátta“ segir ráð­herra og bætir því við að „meg­in­á­herslan er á færni við­kom­andi í sam­spili við umhverfi og aðstæður“ og að hugs­unin að baki „snýr að vald­efl­ingu og að styðja fólk til að nýta sem best alla sína getu.“

Inga segir að fram undan séu svo „sann­ar­lega spenn­andi tímar“ með nýrri hugsun sem og stórum skrefum fyrir „fatlað fólk og öryrkja á Íslandi.“

Í skýrsl­unni er gerð grein fyrir vinnu starfs­hóps sem þáver­andi félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra skip­aði í maí 2024 í þeim til­gangi að útfæra sam­þætta sér­fræði­matið.

Segir í máli ráð­herra að vinnu­hópur á vegum Trygg­inga­stofn­unar sem í voru sér­fræð­ingar frá Trygg­inga­stofnun, VIRK starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóði og Vinnu­mála­stofnun skipu­lagði vinnu starfs­hóps­ins.

Með skýrsl­unni fylgja tveir við­aukar er starfs­hóp­ur­inn vann; ann­ars vegar um þau atriði sem líta skal til við sam­þætt sér­fræði­mat; hins vegar leið­bein­andi við­mið um áhrif þeirra atriða á færni­vanda.

Var talið brýnt að í starfs­hópnum væru fag­að­ilar er byggju yfir sér­þekk­ingu sem og reynslu sem taka þyrfti mið af við mótun á nýju heild­rænu mats­kerfi.

Starfs­hóp­ur­inn var því sam­an­settur af full­trúum þeirra heil­brigð­is­stétta er hafa aðkomu að heil­brigð­is­þjón­ustu eða end­ur­hæf­ingu, full­trúum frá heil­brigðis- og vel­ferð­ar­stofnum, háskólum, hags­muna­að­ilum, líf­eyr­is­sjóðum og heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu.

Einnig kemur fram að sam­kvæmt lög­unum sem Alþingi sam­þykkti síð­ast­liðið sumar um end­ur­skoðun örorku­líf­eyr­is­kerfis almanna­trygg­inga skal sam­þætta sér­fræði­matið byggja á hug­mynda­fræði sem liggur að baki ICF-flokk­un­ar­kerf­inu, en það er alþjóð­legt flokk­un­ar­kerfi um færni, fötlun og heilsu sem var þróað af Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni, WHO.

Nið­ur­stöð­urnar skulu segja til um getu við­kom­andi ein­stak­lings til virkni á vinnu­mark­aði og þegar sú geta er metin í sam­þættu sér­fræði­mati verður auk heilsu­fars­þátta að líta til færni til athafna og þátt­töku, umhverf­is­þátta og per­sónu­bund­inna þátta:

„Færni ein­stak­lings­ins er skoðuð út frá því sam­fé­lagi sem hann býr í, án til­lits til þess hvað olli skerð­ing­unni sem hann býr við, höml­unum við athafnir eða tak­mörk­unum á þátt­töku“ segir Inga og bætir því við að „flokk­un­ar­kerfið gerir not­endum þess kleift að lýsa sam­spili ólíkra þátta mark­visst og gagn­kvæmum áhrifum þeirra.“

Hún færir í tal að sam­kvæmt skil­grein­ingu í samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks er fötlun enda afsprengi sam­spils milli fólks með skerð­ingar ann­ars vegar og umhverfis og við­horfa hins vegar sem „hindra fulla og árang­urs­ríka sam­fé­lags­þátt­töku þess“ til jafns við aðra og „próf­anir á mat­inu hafa farið fram hjá Trygg­inga­stofnun og sömu­leiðis er áfram unnið að útfærslu á nýja mats­kerf­inu og umsóknum um örorku.“

Þá kemur fram að það hafi verið útbúnar hand­bækur fyrir fag­að­ila um nýja kerfið og boðið verður uppá nám­skeið fyrir fag­að­ila hjá TR.

Tekið er fram að vert sé að und­ir­strika að Trygg­inga­stofnun verði heim­ilt að víkja frá skil­yrðum um sam­þætt sér­fræði­mat ef slíkt mat er ber­sýni­lega óþarft að mati stofn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina