Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Grétar Brynjúlfur Kristjánsson látinn

Grétar Brynjúlfur Kristjánsson látinn

Grétar Brynj­úlfur Krist­jáns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Loft­leiða og stjórn­ar­maður í Flug­leiðum og fjöl­mörgum öðrum fyr­ir­tækjum, lést á Land­spít­al­anum 15. ágúst síð­ast­lið­inn, 87 ára að aldri.

Hann fædd­ist í Reykja­vík 15. sept­em­ber 1937 og ólst þar upp. For­eldrar hans voru Kristján Guð­laugs­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stjórn­ar­for­maður Loft­leiða, og Bergþóra Brynj­úlfs­dóttir hús­móðir.

Grétar lauk stúd­ents­prófi frá MR árið 1957 og lög­fræði­prófi frá Háskóla Íslands árið 1963. Síðar hélt hann til náms í alþjóða­flugrétti við McGill Uni­versity, Institute of Air and Space Law, í Montreal í Kanada. Starfs­fer­ill hans hófst hjá Loft­leiðum í New York árið 1963. Hann var fram­kvæmda­stjóri Loft­leiða á Kefla­vík­ur­flug­velli 1965–1973 og aðstoð­ar­for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins árin 1973–1974. Með stofnun Flug­leiða hf. árið 1973 hóf hann þar störf, fyrst sem lög­fræð­ingur og síðar sem yfir­maður flug­stöðv­ar­stjórnar, skrif­stofu­stjóri og for­stöðu­maður Bíla­leigu Flug­leiða-Hertz.

Á náms­árum sínum gegndi hann marg­vís­legum trún­að­ar­störfum. Hann var for­maður Ferða­þjón­ustu stúd­enta, sat í Stúd­enta­ráði HÍ, rit­stýrði Vöku, var for­maður stjórnar Hótel Garðs og einnig for­maður Orators, félags laga­nema.

Grétar átti sæti í fjöl­mörgum stjórnum fyr­ir­tækja. Hann var stjórn­ar­maður í Flug­leiðum, Flug­fé­lagi Íslands og Loft­leiðum í yfir þrjá ára­tugi, þar af í 28 ár sem vara­for­seti stjórnar, allt til árs­ins 2004. Hann sat einnig í stjórnum ann­arra félaga, m.a. Eimskips og dótt­ur­fé­laga Flug­leiða, og gegndi lengi emb­ætti stjórn­ar­for­manns Hvals hf. Þá átti hann sæti í stjórn Arn­ar­flugs og var tal­inn einn áhrifa­mesti maður íslensks flug­heims, þó hann leit­aði sjaldan í sviðs­ljósið. Auk þess sat hann í stjórnum Granda, Vogunar, Kynn­is­ferða og Sæferða.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona hans er Gerður Gunn­ars­dóttir mynd­höggv­ari, fædd 1942. Með Þóru Kristínu Jóns­dóttur eign­að­ist hann dótt­ur­ina Bergþóru Kristínu, f. 1960. Með fyrri eig­in­konu sinni, Sigríði Þor­steins­dóttur, átti hann börnin Ágústu Örnu, f. 1964, Kristján Magnús, f. 1966, og Ingu Hrönn, f. 1973. Sonur Gerðar og stjúp­sonur Grétars er Gunnar Þ. Johnson, f. 1964. Barna­börnin eru tíu og langa­fa­börnin níu.

Mbl.is sagði frá and­lát­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá