Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hödd segist taka „glöð á móti heimsóknum á Hólmsheiði“

Hödd Vil­hjálms­dóttir upp­lýsir um að hún hafi fengið afhenta stefnu „sem þing­fest verður í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 4. sept­em­ber“

Hödd segist taka „glöð á móti heimsóknum á Hólmsheiði“
Hödd Vil­hjálms­dóttir Hitti stefnu­vott Mynd: X-fyrrum Twitter

Almanna­teng­ill­inn Hödd Vil­hjálms­dóttir upp­lýsir um að hún hafi nýverið fengið afhenta stefnu af afskap­lega almenni­legum stefnu­votti „sem þing­fest verður í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 4. sept­em­ber.“

Hödd nefnir að sá sem stefnir henni sé „Hörður Ólafsson og þó ég hélt ég myndi nú aldrei hrósa honum þá verð ég nú að segja að það kom mér skemmti­lega á óvart að hann hefði pung í þetta.“

Bætir því við að „litli kall­inn fær prik hjá mér fyrir og enn meira prik fyrir að hafa það fyrir aðal­kröfu að pistlar mínir er hann varða verði í heild dæmdir dauðir og ómerkir.“

Hödd nefnir að „mesta prikið fær hann þó fyrir að krefj­ast þess að ég sitji inni í 2 ár fyrir að segja sann­leik­ann, greiði honum 5 millj­ónir í miska­bætur og til að kór­óna sirku­svit­leys­una 3 millj­ónir til að standa straum af birt­ingu nið­ur­stöðu dóms­ins í fjöl­miðlum.“

Hödd segir að henni hafi nú fund­ist hann sjaldan „fynd­inn en honum tókst árið 2025 að láta mig hlæja. Ég hef verið opin með það að ég hætti fyrst að drekka áfengi 2018 og verið edrú mestan hluta tím­ans síðan. Ég hef þrjóskast við á köflum því mér hefur þótt fer­lega svekkj­andi að hrein­lega geta ekki eitt­hvað – og það þá í þessu til­felli að geta ekki drukkið áfengi. Það er þó orðið kýr­skýrt að ég og áfengi verðum ekki frekar sam­ferða í þessu lífi. Í hjarta mínu og í mínum mót­þró­araskaða haus er loks sátt um þá nið­ur­stöðu.“

Hún trúir því að hún „hafi þróað með mér alkó­hól­isma út frá áföllum og sést það skýrt í því að ég tengi áfengi ekki við neitt skemmti­legt heldur hef ég notað það til að deyfa sár sem ég hafði ekki unnið úr. Því sári skil­aði ég út kerf­inu þann 18. júlí síð­ast­lið­inn, þá vel hvítvín­s­legin. Ég vil þakka hvítvín­inu fyrir sam­fylgd­ina og þrátt fyrir að það hafi stundum lækkað greind­ar­vísi­tölu mína undir frost­mark þá gaf það mér í kveðju­gjöf styrk...eða kannski nógu mikið kæru­leysi til að skella sár­inu í status og negla honum inn í lok­aðri færslu á Facebook.“

Hún seg­ist alls ekki sjá eftir því:

„Því sé ég alls ekki eftir og stend ennþá gall­hörð við það sem ég skrif­aði því ég veit að það er sann­leik­ur­inn. Edrú núna í 41 dag og þeim megin í líf­inu ætla ég að vera. Ég stend keik og mæti vit­leysu Harðar Ólafs­sonar og er stolt af því að hafa loks­ins gert það sem ég þurfti til að fá frið í hjartað mitt.“

Hödd er von­góð og trúir því að „sann­leik­ur­inn sigri að lokum en ef svo ólík­lega vill til að hann gerir það ekki þá tek ég glöð á móti heim­sóknum á Hólms­heiði á meðan ég sit inni. Ég von­ast til þess að fanga­gall­inn þar sé app­el­sínu­gulur því þó ég segi sjálf frá ... þá er ég bara sjúk­lega sæt í órange.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina