Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ingi­björg Isaksen Þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins Mynd: Víkingur

„Sex þúsund Íslendingar verða fyrir áhrifum af sjálfsvígum á hverju ári“

„Tíma­mót í sjálfs­vígs­for­vörnum“ segir þing­flokks­for­maður Fram­sóknar, í grein þar sem hún fjallar um geð­rækt og sjálfs­vígs­for­varnir

„Tíma­mót í sjálfs­vígs­for­vörnum“ segir Ingi­björg Isaksen, sem er þing­flokks­for­maður Fram­sóknar, í grein þar sem hún fjallar um geð­rækt og sjálfs­vígs­for­varnir.

„Gulur sept­em­ber er helg­aður geð­rækt og sjálfs­vígs­for­vörnum, sam­vinnu­verk­efni fjöl­margra stofn­ana og félaga­sam­taka sem vinna saman að for­vörnum“ segir Ingi­björg og bætir við að „ástæðan er ein­fald­lega sú að mál­efnið snertir okkur öll sem sam­fé­lag.“

Sjálfs­víg og and­lát vegna óhappa­eitrana (s.s. lyfja- eða fíkni­efna­of­skammta) eru afar við­kvæmir og sárs­auka­fullir atburðir er hafa djúp­stæð áhrif á aðstand­endur, fjöl­skyldur og sam­fé­lagið í heild.

Í máli Ingi­bjargar kemur fram að reynsla og rann­sóknir sýni að hver ein­stak­lingur er sviptir sig lífi skilji eftir sig stóran hóp af syrgj­endum og ást­vinum. Og að sam­kvæmt tölum Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar verða að með­al­tali 135 manns fyrir áfalli eða sam­bæri­legum áhrifum í kjöl­far eins sjálfs­vígs:

„Talið er að um sex þús­und Íslend­ingar verði fyrir áhrifum af sjálfs­vígum á hverju ári en tíðni sjálfs­víga hér á landi hefur staðið í stað um langt skeið.“

Þetta segir Ingi­björg vera að ger­ast þrátt fyrir ýmis fyr­ir­byggj­andi úrræði og vinnu sem þegar eru til staðar:

„Við verðum því að gera betur og leita nýrra leiða til að fækka sjálfs­vígum. Einn mik­il­vægur þáttur í þeirri við­leitni er að afla betri þekk­ingar á orsaka­ferl­inu sem leiðir til sjálfs­víga og óhappa­eitr­unar, þannig að hægt sé að grípa fyrr inn í og bjarga manns­lífum.“

Hún segir að „af þess­ari ástæðu lagði ég upp­haf­lega fram á Alþingi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um rann­sókn á orsaka­ferli í aðdrag­anda sjálfs­víga og dauðs­falla vegna óhappa­eitrana. Nú hefur þessi til­laga verið lögð fram í þriðja sinn, upp­færð í hvert skipti í takt við þróun mála. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga sama efnis var fyrst flutt á Alþingi árið 2023, end­ur­flutt 2024 með nokkrum breyt­ingum og er nú lögð fram að nýju haustið 2025.“

Í milli­tíð­inni hefur starfs­hópur á vegum Lífs­brúar, mið­stöðvar sjálfs­vígs­for­varna hjá emb­ætti land­læknis, hafið einmitt þá vinnu er til­lagan fjall­aði um:

„Tillagan gengur nú út á að styðja þetta mik­il­væga rann­sókn­ar­verk­efni, tryggja að það hafi nauð­syn­legt fjár­magn og stuðn­ing til að vinna úr þeim gögnum sem safnað hefur verið svo rann­sóknin skili sem bestum árangri“ og segir hún einnig að mark­miðið sé að fá „áreið­an­legar nið­ur­stöður um hvaða áhættu­þættir og atburðir eru til staðar í aðdrag­anda sjálfs­víga og ban­vænna ofskammta, og hvernig megi nýta þá vit­neskju til að móta mark­vissar for­varnir.“

Hún segir að málið hafi hlotið óvenju breiða sam­stöðu og að þingið hafi nán­ast allt „sam­ein­ast á bak við til­lög­una, þvert á flokka, sem sýnir fram á mik­il­vægi hennar. Slíkur stuðn­ingur allra þing­flokka og þing­manna er fáheyrður og fyrir það er ég inni­lega þakk­lát. Ég fagna því sér­stak­lega að finna hljóm­grunn hjá fram­kvæmda­vald­inu fyrir þessu mik­il­væga máli.“

Ingi­björg nefnir að þegar til­lagan var rædd í þing­inu hafi heil­brigð­is­ráð­herra tekið jákvætt í málið, og lýsti nýlega því yfir að ráð­ist verði í að rann­saka sjálfs­víg á Íslandi betur, fyrst um sinn aft­ur­virkt til árs­ins 2020.

„Nánar til­tekið von­ast ráð­herra til að í fram­tíð­inni verði einnig hægt að kanna hvert ein­stakt til­felli í þaula, til að sjá hvort eitt­hvað hefði mátt fara öðru­vísi og draga af því lær­dóm. Þessi yfir­lýs­ing heil­brigð­is­ráð­herra þýðir að vilji stjórn­valda stendur nú til þess sama og við á Alþingi höfum kallað eftir. Jafn­framt kynnti heil­brigð­is­ráðu­neytið í mars síð­ast­liðnum nýja aðgerða­á­ætlun til að fækka sjálfs­vígum með 26 aðgerðum og er sú vinna þegar hafin.“

Hún segir einnig að með slíku átaki og áherslu á úrbætur í geð­heil­brigð­is­þjón­ustu sé ljóst að mála­flokk­ur­inn hafi fengið nauð­syn­lega athygli og for­gang og að nú reyni „á að fylgja þessu eftir af fullum krafti. Rann­sókn­ar­verk­efni Lífs­brúar þarf að njóta alls þess stuðn­ings sem til þarf svo gögnin verði rétt og ítar­lega greind og nið­ur­stöður liggi fyrir sem fyrst. Síðan þarf að hrinda til­lögum í fram­kvæmd án tafar. Með vís­inda­lega ígrund­uðum for­vörnum getum við snúið við þeirri þróun að sjálfs­vígs­tíðni standi í stað eða fari vax­andi. Markviss inn­grip, aukið aðgengi að sál­rænum stuðn­ings­úr­ræðum og vak­andi augu okkar allra geta skipt sköpum.“

Að lokum áréttar Ingi­björg að Gulur sept­em­ber minni okkur á að „við eigum að hlúa að and­legri heilsu, alla mán­uði árs­ins. Ef við höldum áfram að vinna saman, deila þekk­ingu og sýna hug­rekki til að ræða opin­skátt um sjálfs­víg, þá getum við, sem sam­fé­lag, komið í veg fyrir að fleiri fjöl­skyldur upp­lifi þann óbæt­an­lega missi sem fylgir þessum harm­leikjum. Það er sam­eig­in­legt verk­efni okkar allra að berj­ast gegn sjálfs­vígum og bjarga manns­lífum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við