Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þorgerður Katrín minnist systur sinnar

„Þið verðið að sætta ykkur við það – hún var ein­fald­lega best“

Þorgerður Katrín minnist systur sinnar
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Utan­rík­is­ráð­herra minn­ist systur sinnar Mynd: Víkingur

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra, hefur birt fal­lega og áhrifa­mikla færslu á Facebook þar sem hún minn­ist systur sinnar, Kar­ítasar „Kaju“ Gunn­ars­dóttur, sem lést fyrir þremur árum.

„Fyrir þremur árum og tveimur dögum fórum við Kjartan með Kaju systur austur á Þurá. Þar sem henni leið best. Þar átti hún ein­hvern veg­inn alltaf heima. Og þar var jarð­teng­ingin sjálf,“ skrifar Þor­gerður.

Hún lýsir síð­asta deg­inum sem Kaja dvaldi á Þurá með fjöl­skyldu sinni sem „und­ur­fögrum og björtum“ og rifjar upp augna­blik sem sitja eftir sterkt í minn­ing­unni.

„Þegar við komum að Þrengsla­brún blasti Suð­ur­landið við, Ölfusið, sveitin okkar og fjöllin. Og Kaja, í öllum sínum þján­ingum, brosti aðeins, hall­aði sér fram og sagði – sjáið þetta, sjáið þessa feg­urð,“ skrifar hún.

Þor­gerður segir að þegar þau hafi komið í hlaðið hafi hest­arnir tekið á sprett í átt að fjöl­skyld­unni, „eins og þeir væru að bera hinstu kveðju til drottn­ing­ar­innar og bestu vin­kon­unnar. Þakka henni fyrir allt gam­alt og aðal­lega gott.“

Hún segir dag­inn á Þurá aldrei líða úr minni, erf­iðan en jafn­framt gef­andi.

„Fyrir okkur sem eftir lifum og elskuðum Kaju enda­laust eru minn­ing­arnar allar svo dýr­mætar. Oft hald­reipið sjálft,“ segir Þor­gerður.

Hún þakkar einnig heil­brigð­is­starfs­fólki á krabba­meins­deild Land­spít­al­ans fyrir stuðn­ing­inn og að hafa gert síð­ustu ferð Kaju mögu­lega.

„Ég get seint full­þakkað heil­brigð­is­starfs­fólk­inu á krabba­meins­deild Land­spít­al­ans fyrir útsjón­ar­sem­ina og hjálp­ina við að láta þessa stund fyrir Kaju – og okkur hin – verða að veru­leika. Það var ekki sjálf­gefið,“ skrifar hún.

Í færsl­unni segir Þor­gerður að í dag sé dán­ar­dagur Kaju og að sökn­uð­ur­inn sé enn mik­ill.

„Ég sakna hennar á hverjum degi, finnst að hún eigi að vera hjá mér, með mér í öllu því sem við höfum bar­dúsað saman í gegnum tíð­ina,“ segir hún og bætir við að hún tali oft við systur sína í hug­anum.

„Ég spjalla oft við Kaju um börnin okkar eða bara um lands­ins gagn og nauð­synjar. Fæ ráð. Hún er hérna. Og ég mun alltaf halda áfram að tala um hana. Þið verðið að sætta ykkur við það. Hún var ein­fald­lega best.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá