Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Daniel Cornic er látinn

Daniel Cornic er látinn

Daniel Cornic, mik­ill Íslands­vinur, er lát­inn í Frakk­landi, 72 ára að aldri.

Daniel fædd­ist í Bretagne 17. mars 1953. Eftir skóla­göngu og her­þjón­ustu stofn­aði hann, ásamt eig­in­konu sinni Brigitte, fyr­ir­tækið Cornic SAS, síðar Cornic – Novamer SAS, sem sér­hæfði sig í sölu og dreif­ingu sjáv­ar­af­urða.

Fljót­lega hófst sam­starf við Iceland Seafood og SH um inn­flutn­ing á frystum sjáv­ar­af­urðum, auk þess sem fyr­ir­tækið varð umboðs­að­ili SÍF Union í Frakk­landi fyrir salt­aðar fiskaf­urðir. Á 9. og 10. ára­tug síð­ustu aldar urðu þessi við­skipti mjög umfangs­mikil, og var Cornic-fyr­ir­tækið eitt stærsta við­skipta­fyr­ir­tæki Frakka í inn­flutn­ingi á íslenskum sjáv­ar­af­urðum. Und­an­farin ár hafa við­skiptin einkum verið við Brim, Samherja, Þormóð ramma (nú Ísfé­lagið), GRUN Grund­ar­firði og Leo Seafood í Vest­manna­eyjum.

Fyrir um 15 árum keypti félag á vegum Daniels hlut í Ísfangi hf. á Ísafirði og, með milli­göngu þess félags, var fjár­fest í nokkrum fast­eignum á Ísafirði. Daniel seldi sinn hlut í fast­eign­unum fyrir um fimm árum. Á síð­asta ári fjár­festi hann í Laxey hf. í Vest­manna­eyjum, sem stunda land­eldi á laxi.

Daniel heim­sótti Ísland reglu­lega til að styrkja við­skipta­sam­bönd og ferð­ast um landið. Í gegnum árin skap­aði hann traust og vin­áttu við fjöl­marga aðila í sjáv­ar­út­vegi og varð mik­il­vægur tengiliður milli Íslands og Frakk­lands.

Ferðir hans til Íslands voru þó ekki ein­ungis í við­skipta­skyni. Frá 9. ára­tug síð­ustu aldar kom hann nán­ast árlega í tæp 40 ár til lax­veiða, aðal­lega í Norðurá og Víði­dalsá, auk fleiri áa. Í Reykja­vík gisti hann jafnan á Hótel Holti.

Við­skipti og tengsl Daniels Cornic við Ísland spanna rúm 40 ár. Hann hafði sterka teng­ingu við land og þjóð og lagði sitt af mörkum til að efla orðstír íslenskra sjáv­ar­af­urða í Frakk­landi.

Jarð­ar­för hans fer fram í Fécamp í Normandí 25. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Mbl.is sagði frá and­lát­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá