Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristján Þ. Jónsson er fallinn frá

Kristján Þ. Jónsson er fallinn frá

Kristján Þ. Jónsson, fyrr­ver­andi skip­herra hjá Land­helg­is­gæsl­unni og einn þeirra sem sigldi gegn flota Breta í þorska­stríð­unum, er lát­inn 77 ára að aldri. Mbl.is sagði frá and­lát­inu.

Kristján fædd­ist í Reykja­vík 29. maí 1948, sonur hjón­anna Jóns Kr. Sveins­sonar og Sig­ur­laugar Krist­jáns­dóttur. Hann steig sín fyrstu spor á sjó aðeins fjórtán ára gam­all, þegar hann fór í sína fyrstu sjó­ferð sem nemi á varð­skip­inu Sæbjörgu snemma á sjö­unda ára­tugnum. Þar kvikn­aði ævi­langur áhugi hans á sigl­ingum, björg­un­ar­störfum og þjón­ustu við landið.

Vorið 1965 hóf Kristján störf hjá Land­helg­is­gæslu Íslands, þá sautján ára, og var fyrst á varð­skip­inu Ægi. Fljót­lega varð hann háseti og hélt í nám við Stýri­manna­skól­ann, þaðan sem hann lauk far­manna­prófi vorið 1971. Að prófi loknu tók hann við starfi sem þriðji stýri­maður á vita­skip­inu Árvakri og lauk síðar námi í varð­skipa­deild skól­ans árið 1972.

Sumarið 1985 tók Kristján fyrst að sér skip­herra­störf á Ægi og árið 1993 var hann skip­aður fastur skip­herra Land­helg­is­gæsl­unnar. Á löngum ferli sínum tók hann þátt í fjöl­mörgum björg­un­ar­að­gerðum á hafi úti og hafði lyk­il­hlut­verki að gegna í þorska­stríð­unum þegar Íslend­ingar vörðu fisk­veiði­lög­sögu sína.

Ferill hans var fjöl­breyttur; Kristján starf­aði einnig hjá flug­deild Land­helg­is­gæsl­unnar, hafði yfir­um­sjón með köf­un­ar­málum, sinnti kennslu og var yfir­maður gæslu­fram­kvæmda.

Þegar Kristján lét af störfum árið 2009, á 61 árs afmæl­is­dag­inn, var honum sýndur sér­stakur heiður þegar þremur fall­byssu­skotum var hleypt af þegar Ægir lagð­ist að bryggju. Í kveðju­orðum sínum rifj­aði Georg Kr. Lárusson for­stjóri Land­helg­is­gæsl­unnar upp að útskrift­ar­ferð Krist­jáns úr Stýri­manna­skól­anum var í leigu­bif­reið beint niður á bryggju, þar sem varð­skipið beið hans.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Krist­jáns er Svein­björg Guð­mars­dóttir, fyrr­ver­andi banka­starfs­maður. Þau eign­uð­ust fjögur börn og eiga átta barna­börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá