Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Áhöfn Húna II minnist Tryggva Ingimarssonar

„Skarðið sem Tryggvi skilur eftir sig um borð í bátnum okkar verður ekki fyllt“

Áhöfn Húna II minnist Tryggva Ingimarssonar
Tryggvi með vinum sínum Tryggva með bræðr­unum Frey­steini (til vinstri) og Bjarna Bjarna­syni (til hægri). Mynd: Aðsend

Tryggvi Ingi­mars­son sjó­maður, fæddur 6. jan­úar 1937, lést 17. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, 88 ára að aldri. Útför hans fór fram í gær frá Akur­eyr­ar­kirkju. Í minn­ing­ar­orðum áhafn­ar­innar á Húna II er horfið inn í líf, störf og áhrif Tryggva, sem kall­aður er „höfð­ingi úr ein­vala­liði Húna“.

Tryggvi Ingi­mars­sonTryggvi var alltaf að dunda

Í kveðju áhafn­ar­innar, sem birt­ist á Facebook í gær segir að dag­ur­inn sé þung­bær: „Í dag stöndum við Húnamenn hnípnir og í huga okkar er sökn­uður og sorg. Höfðingi úr ein­vala­liði Húna er fall­inn frá.“

Tryggvi var hluti af áhöfn Húna um ára­bil og hafði, að sögn félaga sinna, djúp­stæð áhrif á allt starfið. „Sann­ar­lega hefur hann markað spor í þann ágæta félags­skap,“ skrifar áhöfnin, og bætir við að sú mann­gerð sem hann hafði að geyma hafi verið „upp­full af kostum sem hverjum félags­skap er heiður að hafa innan sinna raða,“ þar á meðal „glað­værð­ina, gáskan hlý­leik­ann, vin­átt­una og síð­ast en ekki síst þá ein­stöku snyrti­mennsku“ sem hann smit­aði út í hóp­inn.

Tryggvi og IngimarFeðgarnir Tryggvi og Ingimar

Tryggvi starf­aði alla tíð á sjó, á bæði litlum og stórum skipum. Áhöfnin minn­ist þess hve gaman hafi verið að hlýða á sögur hans. Hann hafi aldrei talað illa um nokkurn mann: „Allir menn sem hann var með til sjós voru góðir, og það einmitt var hans lífsmottó, allir menn eru góðir.“

Sér­stak­lega var áhöfn­inni minn­is­stætt hvernig Tryggvi naut sín í skóla­sigl­ingum með börnum. „Það var dásam­legt að horfa á hann leið­beina krökk­unum og alltaf með þess­ari ein­stöku hlýju nær­veru og börn minn­ast Tryggva sem góða gamla manns­ins á Húna.“

Tryggvi hafi sinnt öllum verkum um borð af mik­illi alúð: „Það var hverjum manni ljóst er þekkti að Tryggva þótti ein­stak­lega vænt um bát­inn.“ Sorgin hafi því verið þung í gær: „Skarðið sem Tryggvi skilur eftir sig um borð í bátnum okkar verður ekki fyllt, og þótt ein­hver­staðar standi maður kemur í manns stað, þá var bara til einn Tryggvi Ingi­mars­son.“

Áhöfnin lýsir einnig bar­áttu hans síð­asta árið. „Vissu­lega hjó sjúk­dóm­ur­inn í hann … en ekki síður var Tryggva það erfitt að geta ekki staðið vakt­ina í Húna sem hann vildi,“ skrifa þeir og segja að hann hafi reynt „eins lengi og stætt var að vera á vakt­inni“.

Einn áhafn­ar­með­limur vitnar í orð skip­stjóra: „Sá fal­leg­asti skal vera frammá sagði Bjarni Bjarna­son skip­stjóri oft, og þá var átt við Tryggva Ingi­mars­son.“

Í lok kveðj­unnar eru birt þau orð sem áhöfnin segir með „titr­andi röddu“:
„Elsku Tryggvi Ingi­mars­son takk og aftur takk.“

Tryggvi var lagður til hinstu hvílu í gær á eyj­unni sem hann unni mest, Hrísey.

Frá jarð­ar­för­inniTryggvi lagður til hinstu hvílar við hlið eig­in­konu sinnar í Hrísey

„Við félagar hans í áhöfn­inni á Húna trúum því að nú sé Tryggvi að koma HEIM,“ segir í kveðj­unni.

Að lokum sendir áhöfnin sam­úð­ar­kveðjur til barna hans og ann­arra ást­vina: „Hvíl í frið kæri vinur. Blessuð sé minn­ing Tryggva Ingi­mars­sonar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá