Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Halldór Blöndal er fallinn frá

Halldór Blöndal er fallinn frá

Halldór Blöndal er lát­inn, 87 ára að aldri. Hann lést á Land­spít­al­anum í Fossvogi aðfara­nótt þriðju­dags. Frá þessu greinir RÚV.

Halldór átti að baki langan og far­sælan feril í stjórn­málum og sat á Alþingi sam­fellt í nær þrjá ára­tugi. Hann var fyrst kjör­inn þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­ur­landi eystra árið 1979 og gegndi þing­mennsku til árs­ins 2007.

Halldór fædd­ist í Reykja­vík 24. ágúst 1938 og ólst upp við Laugaveg. For­eldrar hans voru Krist­jana Bene­dikts­dóttir, systir Bjarna Bene­dikts­sonar fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Lárus H. Blöndal bóka­vörður. Hann var einn fimm systk­ina. Halldór lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum á Akureyri árið 1959 og stund­aði síðar nám í lög­fræði og sagn­fræði við Háskóla Íslands.

Áður en hann hóf stjórn­mála­feril sinn starf­aði Halldór meðal ann­ars við hval­veiðar í Hval­firði í fimmtán ver­tíðum, þar sem hann vann við hval­skurð. Þá sinnti hann blaða­mennsku og kennslu og rit­stýrði fjölda tíma­rita, þar á meðal Gambra, Munni, Vöku, Vest­ur­landi og Íslend­ingi. Hann starf­aði jafn­framt sem blaða­maður á Morg­un­blað­inu með hléum frá 1961 til 1979 og við end­ur­skoð­un­ar­störf á Akureyri um skeið.

Halldór sett­ist fyrst á Alþingi sem vara­þing­maður árið 1971, en var kjör­inn þing­maður árið 1979. Hann var þing­maður Norð­ur­lands eystra til árs­ins 2003 og síðar þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis eftir breyt­ingar á kjör­dæma­skipan.

Á ráð­herra­ferli sínum gegndi Halldór emb­ætti land­bún­aðar- og sam­göngu­ráð­herra á árunum 1991 til 1995 og var sam­göngu­ráð­herra frá 1995 til 1999. Hann var for­seti Alþingis á árunum 1999 til 2005.

Halldór kvænt­ist fyrst Renötu Brynju Krist­jáns­dóttur árið 1960 og eign­uð­ust þau tvær dætur, Ragn­hildi og Stellu, en hjóna­band­inu lauk síðar. Renata lést árið 1982. Síðar kvænt­ist hann Kristrúnu Eymunds­dóttur og eign­uð­ust þau son­inn Pétur. Kristrún lést árið 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá