Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Illugi minnist Halldórs Blöndals

„Hann var vissu­lega með skemmti­legri mönnum“

Illugi minnist Halldórs Blöndals

Rit­höf­und­ur­inn og fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son minn­ist Halldórs Blöndals, fyrr­ver­andi for­seta Alþingis og ráð­herra, í Facebook-færslu í kjöl­far and­láts hans. Þar rifjar Illugi upp fyrstu kynni sín af Halldóri þegar hann var ungur blaða­maður á Vísi.

Illugi segir að þegar hann var tví­tugur hafi hann tekið röð stórra helg­ar­við­tala við ýmsa Íslend­inga, meðal ann­ars stjórn­mála­menn, þrátt fyrir að áhugi hans á íslenskri flokkapóli­tík hafi verið lít­ill á þeim tíma.

„Einu sinni datt mér í hug að taka við­töl við til þess að gera unga íslenska stjórn­mála­menn þó ég hefði þá nær engan áhuga á íslenskri flokkapóli­tík og hefði lítið fylgst með því ati öllu,“ skrifar Illugi.

Hann hóf þá við­tals­röð­ina á Jóni Baldvini Hanni­bals­syni og Svavari Gests­syni, en segir að næst hafi komið að full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann hafi þó haft eitt skil­yrði.

„Eina skil­yrðið var að við­kom­andi þurfti að vera skemmti­legur.“

Illugi seg­ist ekki hafa verið sann­færður um yngri kyn­slóð Sjálf­stæð­is­manna á þeim tíma og leit­aði ráða hjá móður sinni, sem benti honum á Halldór Blöndal.

„Svo ég fór og tók við­tal við Halldór Blöndal og hann tók mér fagn­andi og við­talið tókst svona ljóm­andi vel, fannst mér, enda var Halldór vissu­lega með skemmti­legri mönnum,“ skrifar Illugi.

Hann segir hlýju hafa fylgt honum í garð Halldórs allar götur síðan og að Halldór hafi haldið áfram að vera „með skemmti­legri mönnum í íslenskri póli­tík“. Síðustu kynni þeirra hafi verið í heita pott­inum á Sel­tjarn­ar­nesi fyrir fáeinum árum.

„Hann fór eitt­hvað að hnota­bít­ast við mig út af ein­hverju sem ég hafði sagt eða skrifað um póli­tík en allt var það í mestu góð­semi og húmor,“ segir Illugi.

Í lok færsl­unnar vottar Illugi aðstand­endum Halldórs samúð sína og þakkar honum sér­stak­lega fyrir við­talið sem þeir áttu fyrir 45 árum.

„Nú er Halldór lát­inn og ég votta ást­vinum hans og afkom­endum alla mína hlut­tekn­ingu, og þakka honum sjálfum fyrir þetta ágæta við­tal fyrir 45 árum.“

Að lokum bætir Illugi við léttum tón:

„Það má svo fylgja sög­unni að ég fann aldrei skemmti­legan Fram­sókn­ar­mann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá